Morgunblaðið - 28.11.2012, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 333. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Öllu starfsfólkinu sagt upp
2. Björgólfur Thor og Kristín selja …
3. Áttu fótum sínum fjör að launa
4. Nauðgaði 11 ára stúlku
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Skáldsaga Bergsveins Birgissonar,
Svar við bréfi Helgu, hefur selst vel í
Noregi; á dögunum tókst henni að
velta Fimmtíu gráum skuggum úr
fyrsta sæti metsölulista þar. Í janúar
kemur sagan út í Bandaríkjunum hjá
forlaginu Amazon Crossing. Fyrstu
umsagnir um bókina vestra eru lof-
samlegar: Einföld saga en glæsilega
skrifuð, segir í Publishers Weekly.
„Svar“ Bergsveins
kemur út vestanhafs
Sigríður Thor-
lacius syngur ein-
söng með
Kvennakór
Reykjavíkur á að-
ventutónleikum í
Fella- og Hóla-
kirkju á morgun,
fimmtudag, kl. 20
og aftur á laugar-
dag kl. 16. Tónleikarnir eru tileinkaðir
Ingibjörgu Þorbergs og verða fluttar
nýjar útsetningar á lögum eftir hana,
meðal annars Jólakettinum.
Tónleikar tileinkaðir
Ingibjörgu Þorbergs
Snemma árs tóku Guðrún Eva Mín-
ervudóttir og Páll Björnsson við Ís-
lensku bókmenntaverðlaununum á
Bessastöðum. Þessa dagana sitja
valnefndir á rökstólum um hvaða
bækur verða tilnefndar næst og víst
er að sitt sýnist hverjum um það
hvaða bækur eru forvitnilegastar og
bestar. Tilnefn-
ingarnar verða
tilkynntar í
Lista-
safni Ís-
lands á
laug-
ardaginn
kemur.
Styttist í tilnefningar
Á fimmtudag Austlæg átt, yfirleitt 3-8 m/s. Rigning með köflum S-
og V-til og hiti 1 til 6 stig. Skýjað og úrkomulítið N- og A-lands og
frost 0 til 6 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG 10-18 m/s og rigning með köflum. Hægari
vindur N- og A-lands og bjartviðri að mestu. Hiti 0 til 6 stig, en frost
0 til 7 stig fyrir norðan og austan.
VEÐUR
„Við erum ekki í hlutverki
stóra liðsins í þessum leik,“
sagði Guðmundur Þ. Guð-
mundsson, þjálfari Rhein-
Neckar Löwen, við Morg-
unblaðið en í kvöld taka
hans menn á móti Evrópu-
og Þýskalandsmeisturum
Kiel í sannköllum stórleik í
þýsku 1. deildinni í
handknattleik.
Þarna mætast tvö
efstu lið deild-
arinnar. »2
Guðmundur og Al-
freð takast á
Eftir sex daga leikur kvennalandsliðið
í handknattleik fyrsta leik sinn í úr-
slitakeppni Evrópumótsins í Serbíu,
gegn Svartfellingum. Þetta er í annað
skiptið í röð sem Ísland leikur á EM
og liðið fór auk þess á HM í Brasilíu í
fyrra. Morgunblaðið fjallar ítarlega
um keppnina frá og með deginum í
dag og kynnir m.a. fjóra leikmenn ís-
lenska liðsins. »4
Sex dagar í fyrsta leik
Íslands á EM í Serbíu
Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Við-
arsdóttir, landsliðskonur í knatt-
spyrnu, eru hættar hjá sænska
úrvalsdeildarfélaginu Örebro eftir
fjögurra ára dvöl þar. Svo kann að
fara að þær spili á Íslandi á næsta ári.
„Félagið er illa statt fjárhagslega,
það fór nánast á hausinn í sumar,“
sagði Edda í samtali við Morgun-
blaðið í gær. »3
Edda og Ólína eru hætt-
ar hjá Örebro
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
„Bráðum koma“ – og nær allir Ís-
lendingar geta klárað ljóðlínuna, svo
margir eru þeir sem hafa alist upp
með ljóðabók Jóhannesar úr Kötl-
um, Jólin koma, kynnst Askasleiki,
Hurðaskelli og félögum hans. Og
vita líka hvað móðir þeirra gerði við
„hin óþekku angaskinn“ áður en
börn fóru að haga sér svo vel að hún
dó úr ófeiti, kerlingin ljóta.
Bókin kemur nú út í vandaðri út-
gáfu í tilefni áttræðisafmælisins,
gömul en samt síung. Og það sem
vekur athygli er að snilldarteikn-
ingar Tryggva Magnússonar eru
flestar mun skýrari og betri en í ein-
tökunum sem við þekkjum. Orðnar
eins og nýjar.
Sonur skáldsins ástsæla úr Döl-
unum, Svanur Jóhannesson bók-
bindari, var þriggja ára þegar bókin
kom fyrst út. Hann man eftir fyrstu
jólunum sínum.
„Fyrsta jólatréð sem ég man eftir
var á Hróðnýjarstöðum, þar sem ég
fæddist,“ segir Svanur. „Þetta var
renndur stofn með spýtum í allar
áttir, allt var þetta klætt með krep-
pappír.“ Jólavísur föðurins hafi að
sjálfsögðu orðið ómissandi hluti há-
tíðarinnar. Þórhallur Bjarnason
prentari gaf út Jólin koma og fleiri
bækur eftir Jóhannes, Ömmusögur,
Bakkabræður og smásagnasafnið
Fuglinn segir. Myndirnar í þeim
voru alltaf eftir Tryggva.
„Þórhallur varðveitti teikningar
Tryggva og sonur hans, Guð-
mundur, gaf Landsbókasafninu
þessar upphaflegu teikningar
sem notaðar voru í fyrstu út-
gáfuna 1932,“ segir Svanur.
„Menn hafa alltaf reynt
að gera þetta á sem ódýr-
astan hátt, endurprentað
síðustu útgáfu. En ég
benti Forlaginu á teikning-
arnar og ákveðið var að not-
ast ekki núna við sinkklisjur af
teikningunum úr næstu bók á und-
an. Beitt var nýjustu tækni og þess
vegna eru nær allar myndirnar
orðnar miklu skýrari. Fáeinar teikn-
ingar höfðu ekki varðveist, þær varð
bara að endurprenta. Munurinn sést
vel.“
Forn og flottur
Tryggvi bjó líka í Dölunum, þeir
Jóhannes voru báðir í ungmenna-
félagshreyfingunni. Tryggvi kom
mjög við sögu Alþingishátíðarinnar
1930, teiknaði hátíðarfrímerkin og
líka rómantískan fornmannabúning
Jóhannesar, litklæði sem hann
klæddist á hátíðinni. Glæsilegur,
silfurskreyttur búningurinn er nú
varðveittur á Landsbókasafninu.
Pörupiltar og dauð kerling
Jólavísur
Jóhannesar úr
Kötlum sívinsælar
List Svanur, sonur Jóhannesar úr Kötlum, er bókbindari, fyrir nokkrum árum var hann þátttakandi í námskeiði þar
sem kennt var bókband fyrri alda. Hér er Svanur að þrykkja blindramma með koparrúllu á bókarspjald.
Jólin koma var fyrst gefin út 1932
en Sigþrúður Gunnarsdóttir hjá
Forlaginu segir að hún seljist
stöðugt, nokkur hundruð ein-
tök á hverju ári. Fáar íslensk-
ar bækur hafa verið jafn-
lengi á markaði, hún er
einfaldlega prentuð eins
oft og þarf. Viðhafnar-
útgáfan á þessu ári er sú 27.
í röðinni.
Nýjar kynslóðir heillast af
ljóðunum og ekki síður teikningum
Tryggva Magnússonar af Grýlu,
Leppalúða og börnum þeirra, jóla-
sveinunum óþekku. „Ég held að
ótrúlega stórum hluta þjóðarinnar
finnist það vera hluti af jólunum
að draga fram þessa bók og skoða
hana,“ segir Sigþrúður. Grýla og
Leppalúði hafi eitt sinn þótt ógn-
vekjandi en líklega þurfi nú meira
en myndir á pappír til að hræða
börn.
Nauðsynlegur hluti af jólahaldi
JÓLIN KOMA SELST ALLTAF ÞRÁTT FYRIR HÁAN ALDUR
Stúfur