Morgunblaðið - 05.12.2012, Blaðsíða 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2012
Bókin Víti í Vestmannaeyjumeftir Gunnar Helgasonsem kom út fyrir síðustujól var í hópi skemmtileg-
ustu barna- og unglingabóka þá ver-
tíðina. Bókin var skrifuð í hressileg-
um stíl en blandaði saman gamni og
fúlustu alvöru í lífi nokkurra fótbolta-
peyja, með Shell-mótið í Eyjum sem
bakgrunn. Nú hefur Gunnar sent frá
sér beint framhald sem nefnist Auka-
spyrna á Akureyri og fyrir þá fjöl-
mörgu sem höfðu
gaman af Vítinu
er gaman að segja
frá því að hér fá
þeir meira af svo
góðu.
Uppskriftin að
Víti í Vestmanna-
eyjum gekk firna-
vel upp og Gunnar
endurtekur hér leikinn með glans.
Aftur eru Jón Jónsson og félagar í
Þrótti komnir á stórmót síns árgangs
í boltanum og nú er N1-mótið á Ak-
ureyri sögusviðið. Vitaskuld drífur
margt á daga hinna knáu Þróttara,
innan vallar sem utan. Söguhetjan
verður fyrir því að iPodinn hans
hverfur, rómantíkin bankar upp á
enda pjakkarnir tveim árum eldri en í
Vestmannaeyjum, og alvara lífsins
knýr á með ýmsum hætti. Þá mætir
skaðræðið hann Tóti, pabbi Ívars úr
Vítinu, aftur til leiks og eins og gefur
að skilja veldur það titringi meðal
strákanna enda lentu þeir illa í klóm
hans í síðasta ævintýri.
Sem fyrr eru leikjalýsingar Gunn-
ars það hnitmiðaðar að engum þarf
að leiðast rétt á meðan boltinn rúllar;
þvert á móti er stálfjöðurspennan við-
varandi og hver einasti leikur knúinn
hnausþykku drama sem ætti að halda
öllum lesendum við efnið. Gunnar
fléttar einnig með liprum hætti í
framvinduna þá lesti sem helst plaga
hina fögru íþrótt um þessar mundir,
kynþáttaníð og leikaraskap. Það ger-
ir hann þó ekki í predikunartóni held-
ur með lunkinni atburðarás sem segir
mun meira en fyrirlestur í umvönd-
unartón.
Mest er þó um vert að höfundur
kann einfaldlega að búa til grípandi
frásögn sem heldur vel og hreinlega
togar lesandann áfram; það er ekki
laust við að manni hitni í hamsi þegar
best lætur og það er gæðastimpill út
af fyrir sig þegar höfundi tekst að
koma lesanda þannig á vissan hátt úr
jafnvægi. Sögulok lofa þá góðu því
þau gefa fyrirheit um að framhald
verði á.
Bókin er í stuttu máli sagt jafn
ljómandi vel heppnuð og Víti í Vest-
mannaeyjum og stefnir í að bolta-
bækurnar um Þróttarann Jón Jóns-
son komi sér fyrir á klassísku hillunni
fyrir íslenskar barna- og unglinga-
bækur. Það er alkunna að Gunnar
Helgason er maður fráleitt einhamur
en nú gæti farið svo að rithöfund-
urinn í honum gerðist æ fyrirferð-
armeiri og er það vel því honum lætur
sá starfi hörkuvel.
Skeytin inn
Fótboltasaga „Höfundur kann einfaldlega að búa til grípandi frásögn sem
heldur vel og hreinlega togar lesandann áfram,“ segir um bók Gunnars.
Barnabók
Aukaspyrna á Akureyri bbbbn
Höfundur: Gunnar Helgason.
Mál og menning 2012. 293 blaðsíður.
JÓN AGNAR
ÓLASON
BÆKUR
Allt svo grænt og við einnig.Að innan, að minnsta kosti,í sálinni, þar sem gleðin ásér upphaf á góðum degi.“
Þannig lýkur einum af vel á annað
hundrað köflum í hugljúfri end-
urminninga- og hug-
leiðingabók Óla
Ágústar, Litlatré. Á
kápu er vitnað í Ísak
Harðarson skáld, að
þetta sé „mannbæt-
andi texti“, og óhætt
er að taka undir þau
orð. Eins og höfund-
urinn lýsir því hér að
framan, þá er bókin full af jákvæðum
og góðum tilfinningum, sem ánægju-
legt er að lesa um.
Þetta er brotakennt verk, enda
ekki skrifað sem bók heldur sam-
ansafn færslna sem höfundurinn tók
að skrifa og birta á netinu eftir að
hann fór á eftirlaun. Lesandinn kynn-
ist höfundinum Óla og Ástu konu
hans, fyrri störfum hans hjá verk-
takafyrirtæki og sem trúboði. En
einkum snúast skrifin þó um ástríkt
líf hjónanna, í bænum og í sumarhús-
inu í Borgarfirði, þar sem þau kynnt-
ust á unglingsárum, en húsið nefna
þau Litlatré eftir hokinni hríslu og
með vísun í bókina um indjánadreng-
inn Litla tré. Bækur og gróður eru
einmitt lykilefni Litlatrés, rétt eins
og fuglarnir, Borgarfjörður og ljúfar
minningar. Bækur og skáld skipa
stóran sess, og ástin á lífinu.
Kaflar bókarinnar eru vissulega
misáhrifamiklir en heildin er sterk og
hugljúf, og þetta er ánægjulestur,
enda umræðuefnið það sem mestu
skiptir: lífið, vináttan, ástin og feg-
urðin, og höfundurinn skrifar um allt
þetta af mikilli hlýju og einlægni.
Einnig má finna fyrir eilífri þrá
mannsins til að skrásetja líf sitt og
upplifanir fyrir þá sem á eftir koma,
því eins og segir í einni ljóðafærslu:
Þannig er með lífið, það fennir hratt í
sporin.
Og ferðalögin gleymast bæði stór og
smá.
Ánægjulestur
um lífið og fegurðina
Litlatré bbbnn
Eftir Óla Ágústar.
Tindur, 2012. 230 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Óli Segir frá af hlýju og einlægni.
Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900
Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur
Allar GSM rafhlöður
2.990.-
SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali -
Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick
Gerið verðsamanburð!
iPad borðstandur - Festing fyrir
sætisbak fylgir 5.990.-
Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum!
Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad
og aðra spilara eða síma.
Innbyggð rafhlaða. 4.990
Allt fyrir IPod og Ipad
Ipad bílhleðslutæki
1.490.-
Öll GSM bílhleðslutæki
990.-
12V tvídeilir 1490.-
Flott úrval 12V fjöltengja
í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið.
12V þrídeilir með Micro-USB
útgangi og viðvörunarljósi ef raf-
geymirinn í bílnum er að tæmast
2.990.-
KILLING THEM SOFTLY Sýndkl.8-10
NIKO 2: BRÆÐURNIR FLJÚGANDI Sýndkl.6
SKYFALL Sýndkl.6-9
PITCH PERFECT Sýndkl.8-10:15
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
12
12
16
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL
J. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÍSLENSKT TAL
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10.15 16
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
HERE COMES THE BOOM KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
NIKO 2 KL. 4 - 6 L
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.30 7
SKYFALL KL. 5 - 8 12
SKYFALL LÚXUS KL. 5 12
ARFUR NÓBELS KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 16
SNABBA CASH 2 KL. 10.40 16
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 8 - 9 16
DJÚPIÐ KL. 5.50 10
KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10 16
HERE COMES THE BOOM KL. 8 7
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.40 - 10 12
SKYFALL KL. 5.20 12
“GEÐVEIK RÓMANTÍK”
-S.G.S., MBL