Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Qupperneq 18
Á
stin blómstrar í París,
hvort sem er á Signu-
bökkum, undir Eiffelturn-
inum eða á kaffihúsum.
„Þetta eru almælt tíðindi,“ segir
Sigurður Pálsson skáld. „Það er
náttúrlega spenna og fegurð yfir
París. Og ekkert óeðlilegt að fólk
verði ástleitið við þær kringum-
stæður.“
Hann leitar að röksemdum, öðrum
en að Parísarbúar vilji einfaldlega
standa undir nafni, og segir svo:
„Hefurðu gert þér grein fyrir hversu
almenningsrýmið í París er glæsi-
legt, allar þessar breiðgötur, almenn-
ingsgarðar og mannvirki. Það má
rekja þá 400 ára sögu til konung-
anna, einkum Lúðvíks fjórtánda. Víða
er glæsileikinn lokaður af, þannig að
pöpullinn kemst ekki inn. En í París
verður til þessi löngun með konungs-
veldinu að sýna glæsileikann, þannig
að hann sé öllum ljós, og það kallar
á glæsileg almenningsrými.“
Síðan verður eðlisbreyting með
byltingunni fyrir 200 árum, að sögn
Sigurðar, og þá verður það fólkið
sjálft sem á rýmið. „Áfram er hugs-
að um glæsileikann, en fólk getur
RÓMANTÍKIN SVÍFUR YFIR VÖTNUM Í PARÍS
Borg elskendanna
LÖNGUM HEFUR VERIÐ SAGT AÐ PARÍS SÉ BORG
ELSKENDANNA. OG VART VERÐUR ÞVERFÓTAÐ
FYRIR FÓLKI Í ÁSTARBRÍMA Á STRÆTUM OG
TORGUM. EN HVERNIG SKYLDI SIGURÐUR
PÁLSSON UPPLIFA ÞESSA HLIÐ Á PARÍS?
Myndir og texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is
gengið um og þarf ekki að hafa
eina evru í vasanum – allt er opið.
Víða annars staðar sér almenningur
rétt glitta í glæsileikann á bakvið
þykka veggi og sterkar hliðgrindur.
En í París hafa allir aðgang að
glæsileikanum. Þaðan kemur þessi
ótrúlega fegurð Parísar. Svo er allt-
af dularfull og magísk spenna í
loftinu, þar fer saman saga, goð-
sagnir og ára. Margt blandast inn
í. En niðurstaðan er þessi: það er
ekkert óeðlilegt að fólk verði upp-
tendrað í París. Það blasir við að
ástleitnin fær grænt ljós.“
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2013
Ferðalög og flakk