Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2013
HEIMURINN
PÁFAGARÐUR
Jorge Mario Bergoglio, 76 ára gamall erkibiskup frá Buenos Aires, var kjörinn
páfi á kjörfundi 115 kardinála í Páfagarði. Hann verður Frans páfi og er fyrsti
forustumaður katólsku kirkjunnar frá Ameríku. Frans páfi hefur barist gegn
félagslegu misrétti. Hann þykir íhaldssamur í siðferðismálum og er andvígur
hjónaböndum samkynhneigðra, fóstureyðingum og getnaðarvörnum.
GRÆNLAND
NUUK Jafnaðar-
mannaflokkurinn
Siumut var sigur-
vegari í kosningum
á Grænlandi og
fékk 42,8% atkvæða. Leiðtogi
flokksins, Aleqa Hammond,
fékk umboð til stjórnarmynd-
unar. Inuit Ataqatigiit, sósíal-
istaflokkur Kuupiks Kleists,
formanns fráfarandi landstjórn-
ar, fékk næstmest fylgi, 34,4%,
og tapaði 9%. Siumut ætlar að
auka námagröft í landinu og
aflétta banni við vinnslu úrans.
KÍNA
PEKING Xi Jinping
var formlega skip-
aður forseti Kína á
alþýðuþingi landsins. Xi
gegndi þegar tveimur
mikilvægustu embættum Kína,
stöðu framkvæmdastjóra kínverska
kommúnistaflokksins og yfirmanns
kínverska heraflans.
SUÐUR-AFRÍKA
HÖFÐABORG Fangelsið á
Robben-eyju þar sem Nelson
Mandela sat í fangelsi í 27 ár
á tímum aðskilnaðarstefn-
unnar verður vettvangur nýs
tölvuleiks. Mandela varð fyrsti forseti
Suður-Afríku eftir að aðskilnaðarstefnan
var lögð niður. Leikurinn á að hafa
námsgildi og verður hægt að kynnast því
hvernig lífið var í fangelsinu.
Jóhanni Karli Spánarkonungi,
sem orðinn er 75 ára gamall,
hefur verið eignaður heið-
urinn af því að stýra Spáni á
braut lýðræðis eftir dauða
einræðisherrans Franciscos
Francos árið 1975. Það er
meginástæðan fyrir því að
Spánverjar hafa fylkt liði að
baki konunginum og varið
hann fyrir gagnrýni. Hann hef-
ur notið stuðnings fjölmiðla,
stjórnmálamanna, stéttar-
félaga og kirkjunnar. Haft
hefur verið á orði að
meira að segja
þeir, sem litu á
hann sem dýr-
asta atvinnu-
leysingja lands-
ins, hafi haldið
aftur af
sér.
J óhann Karl Spánarkonungurhefur getað setið að miklu leytií sátt við spænsku þjóðina í há-
sæti sínu, en nú er hann í ölduróti.
Heilsunni hrakar, hneykslismál
vekja umtal og á tímum kreppu og
harðinda er þolinmæðin gagnvart
konungsfjölskyldunni minni en ella.
Talað er um að undanfarna þrjá
áratugi hafi ríkt þegjandi sam-
komulag milli Spánverja og kon-
ungs þeirra. „Annars vegar átti Jó-
hann Karl að vera tákn einingar
þjóðar, sem á í vandræðum með
eininguna,“ segir í fréttaskýringu í
Der Spiegel um stöðu spænsku
konungsfjölskyldunnar. „Hins veg-
ar átti hann að sjá til þess að
Spánverjar þyrftu ekki að skamm-
ast sín fyrir konungdæmið út á
við.“
Víðtækur stuðningur
En nú er tíðin önnur. Trún-
aðarsamband Spánverja við kon-
ung sinn brast þegar hann fór til
Botsvana á fílaveiðar þegar at-
vinnuleysi hafði aldrei verið meira
á Spáni í fyrra. Skömmu áður hafði
hann lýst yfir því að hann gæti
ekki sofið vegna atvinnuleysis unga
fólksins. Ekki bætti úr skák að
hann var þá heiðursforseti nátt-
úruverndarsamtakanna WWF.
Rannsókn á því hvort tengdasonur
hans, handboltastjarnan fyrrver-
andi Inaki Urdangarin, maður
Kristínar prinsessu, hafi dregið sér
fé hefur skekið traustið til kon-
ungsfjölskyldunnar enn frekar.
Hann er ásamt öðrum grunaður
um að hafa skotið rúmlega sex
milljónum evra undan skatti.
Í janúar birtist skoðanakönnun í
dagblaðinu El Mundo þar sem kom
fram að stuðningur við konung-
dæmið er nú 54% og hefur aldrei
verið minni. Minnstur mældist
stuðningurinn meðal ungs fólks.
Í annarri könnun, sem birtist 8.
mars, kom fram að 56,9% Spán-
verja vilja að konungurinn segi af
sér þegar hann hefur náð sér eftir
aðgerð vegna brjóskloss fyrr í
mánuðinum og sonur hans, Felipe,
taki við. Þetta var sjöunda aðgerð
konungsins á þremur árum.
Þýska „prinsessan“
Samnefnari vandræða konungsfjöl-
skyldunnar ber hið virðulega nafn
Corinna prinsessa zu Sayn-
Wittgenstein-Sayn. Hún er reyndar
ekki af aðalsættum, en ber nafnið
eftir að hafa verið gift Casimir
prins af Sayn-Wittgenstein-Sayn.
Corinna skipulagði ferðina til
Botsvana, sem vakti slíka reiði að
konungurinn baðst afsökunar á
dómgreindarleysi sínu.
Áður hafði gagnrýnin á konungs-
fjölskylduna beinst að tengdason-
unum. Elena skildi við mann sinn
og var kókaínneysla hans nefnd í
því sambandi. Nú beindust spjótin
að konungdæminu sjálfu. Nokkrar
bækur hafa verið gefnar út. Í einni
þeirra er fjallað um Soffíu drottn-
ingu, sem hefur umborið þrálátt
framhjáhald manns síns með stó-
ískri ró.
Þá hafa vaknað spurningar um
það hvort Jóhann Karl hafi átt
meiri þátt í gerningum tengdason-
arins Urdangarins en gefið hafi
verið til kynna. Fyrir rétti liggja
tölvupóstar, sem
tengja tengdason-
inn við Corinnu,
vinkonu kon-
ungs. Hún bætti
síðan gráu ofan
á svart með því
að veita ít-
arleg
viðtöl
þar
sem
hún undirstrikaði að hún væri náin
vinkona konungsins og hefði ekkert
komið nálægt svikum tengdasonar
hans. Um leið nefndi hún reyndar
að hún hefði vegna góðra sam-
banda sinna tekið að sér ýmis
trúnaðarverkefni fyrir spænsk
stjórnvöld.
Þá hætti Spánverjum að lítast á
blikuna. Stjórn landsins neitaði al-
farið, en yfirmaður spænsku leyni-
þjónustunnar verður engu að síður
yfirheyrður um málið fyrir þing-
nefnd.
Spánverjar hafa hingað til verið
umburðarlyndir gagnvart konungs-
fjölskyldunni, sem kostar 34 millj-
ónir evra í uppihaldi. Vegna þáttar
Jóhanns Karls í innleiðingu lýð-
ræðis og framgöngu hans í valda-
ránstilrauninni 1981 hefur hann
fremur verið tákn lýðræðis en kon-
ungsveldis. Sérfræðingar segja
ólíklegt Jóhann Karl muni segja af
sér í bráð, en það andar köldu um
Spánarkonung um þessar mundir.
Vantraust á
Spánarkon-
ungi vex
KONUNGUR SPÁNAR HEFUR HAFT BYR MEÐAL SPÆNSKU
ÞJÓÐARINNAR, EN NÚ HEFUR VINDURINN SNÚIST. FÍLA-
VEIÐAR Á KREPPUTÍMUM OG PENINGAHNEYKSLI VEKJA
SPURNINGAR UM KONUNGDÆMIÐ.
Hjónin Kristín prinsessa
og Inaki Urdangarin.
HYLLI KONUNGS
Felipe prins ásamt foreldrum sínum, konungshjónum Spánar, Jóhanni Karli og Soffíu. Meirihluti Spánverja vill að Fe-
lipe taki við krúnunni af föður sínum og stuðningur við konungdæmið fer minnkandi á Spáni.
AFP
* Afsögn á heima þegar allt leikur í lyndi í pólitíkinni,ekki á tímum pólitískrar spennu.Yolanda Gomez, prófessor í stjórnlagaréttiAlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is