Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Side 15
dómum, en reyndar er það þann-
ig hér í Noregi, að þegar fólk
fréttir að hann eigi íslenska konu
er eins og það sé talið honum til
álitsauka. Norðmenn hafa miklar
mætur á okkur Íslendingum. Þar
að auki kemur hann frá allt öðr-
um heimi og hefur önnur gildi og
annað verðmætamat en við þessi
vestrænu og norrænu. Hann talar
ekki önnur tungumál en spænsku
og ég var algjörlega mállaus á
því tungumáli og í því felast
ákveðnir erfiðleikar fyrir konu
eins og mig sem á venjulega ekki
í vandræðum með að tjá sig. Ég
hef kannski ekki alveg getað ver-
ið ég sjálf í þessu sambandi því
til þess þyrfti ég að hafa algjört
vald á spænsku. Það bjargar
þessu að maðurinn minn er mikill
rólegheitamaður. Spænskukunn-
áttan mín batnar þó alltaf sem
betur fer.“
Ekki hægt að segja neitt
Þú nefndir fyrri hjónabönd þín
hér fyrr í viðtalinu. Fyrrverandi
eiginmaður þinn, Sigmar B.
Hauksson, lést nýlega eftir
skammvinn veikindi. Hittirðu
hann í veikindum hans?
„Á slíkum stundum er erfitt að
vera langt í burtu og ég var ekki
mönnum sinnandi. Sonur okkar
var með pabba sínum í þessum
veikindum og hugur minn var svo
mikið hjá þeim feðgum að það
yfirtók allt. Þegar ljóst var að
þetta var bara spurning um
nokkra daga dreif ég mig heim
til Íslands því sonurinn ákvað að
gifta sig á spítalanum svo pabbi
hans gæti verið viðstaddur at-
höfnina. Það er skrýtið að kveðja
fyrrverandi eiginmann sem ég
var gift lengi. Allt í sambandi við
þessi veikindi hans gerðist svo
snöggt að ég átti erfitt með að
trúa því að þetta væri raunveru-
lega að gerast. Ég sá Sigmar áð-
ur en hann dó en við töluðum
ekki sérstaklega um það að
hverju stefndi. Hvað gat ég sagt?
Hann vissi að hann væri að fara.
Allir vissu það. Það var ekki
hægt að segja neitt. Hann var
viku á spítala og dó þar.“
Síðustu ár í lífi þínu hafa ein-
kennst af miklum breytingum: ný
lönd, nýtt starf, nýr maður.
„Í þrjú ár hefur líf mitt verið
20 kílóa ferðataska. Það er þægi-
legt að búa í ferðatösku. Þá get-
ur maður alltaf tekið sig upp og
farið. Það er svo ótrúlegt hvað
maður kemst af með lítið. Ég
ræð hvert ferðinni er heitið. Ég
sakna einskis og veit að ég get
sjálf ráðið lífi mínu. Mér hefur
alltaf fundist ég geta allt. Það
hefur fremur háð mér að finna
út úr því hvað ég eigi að gera.
Ég er sátt og vildi ekki vera
stödd annars staðar í lífinu en ég
er núna. Erfiðast er að vera í
burtu frá barnabörnum og fjöl-
skyldu. Ég vildi samt ekki vera á
sama stað fyrir og eftir hrun! Ég
hefði ekki viljað missa af þessu
ævintýri að búa í fjarlægu landi,
kynnast annarri menningu og
fólki, læra nýtt tungumál – og
nýr maður var svo bónus.“
Helga Thorberg. Ég sakna
einskis og veit að ég get sjálf
ráðið lífi mínu. Mér hefur alltaf
fundist ég geta allt.
Morgunblaðið/Ásdís
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir gluggana á einum stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp
Bæjarlind 16 Kópavogur Sími 553 7100 www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16
SUPREM deluxe
SVEFNSÓFI
PÁSKATILBOÐ
BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI
EXTRA ÞYKK OG GÓÐ SPRINGDÝNA
SVEFNBREIDD 140x200 CM
RÚMFATAGEYMSLA Í SÖKKLI
TILBOÐSVERÐ
KR. 149.900
RECAST
SVEFNSÓFI
BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI
ÞYKK OG GÓÐ SPRINGDÝNA
SVEFNBREIDD 140x200 CM
RÚMFATAGEYMSLA Í SÖKKLI
TILBOÐSVERÐ
KR. 129.900VERÐ KR. 149.800VERÐ KR. 169.800