Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Qupperneq 27
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
smáratorgi 522 7860 • korputorgi 522 7870 • glerártorgi 522 7880
ljós
Á-dur 8.990
6.990
og fá-du annan á
Kauptu einn 500/0
Diffuserarnir komnir aftur
Loksins
Sýningin Íslensk húsgögn og hönnun er hluti af Hönn-
unarmars en þar koma íslenskir framleiðendur á
framfæri nýrri íslenskri framleiðslu „þar sem ígrunduð
hönnun og frábært handbragð haldast í hendur“, eins
og segir í tilkynningu. Samstarf íslenskra framleiðenda
og hönnuða stendur á gömlum merg og er enn að geta af
sér ný og betri húsgögn og innréttingar.
Áhugi á húsgagnahönnun hefur farið vaxandi meðal almenn-
ings síðustu ár og þarna gefst gott tækifæri til að líta sér nær.
Þátttakendur í sýningunni í Hörpu eru Á. Guðmundsson, Axis,
G.Á. Húsgögn, Sólóhúsgögn, Sýrusson, R.B. Rúm og Zenus.
Íslensk húsgögn
og hönnun
Stóllinn Ljómi
er ný hönnun
frá Sýrusson.
Fjögur fögur frímerki
Alíslensk grafísk hönnun sem segir eitt-
hvað um samtímann á nýju frímerkjunum.
Pósturinn gefur út ný frímerki í tilefni þessarar miklu hönnunarhátíð-
ar. Ennfremur setja Pósturinn og Félag íslenskra teiknara upp sýningu
á íslenskum hönnunarfrímerkjum í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Á sýningunni eru frímerki úr seríunni Íslensk samtímahönnun IV –
Grafísk hönnun ásamt öðrum frímerkjum unnum af grafískum hönn-
uðum FÍT.
Hönnuðir nýju frímerkjanna eru Siggi Odds, Ragnar Freyr, Rán Flyg-
enring og Siggi Eggertsson.
Þjóðminjasafnið tekur þátt í Hönnunarmars
með sýningunni Silfur … 13 á torgi safnsins.
Á sýningunni leitast fjórir starfandi gull- og
silfursmiðir við að gefa innsýn í fjölbreytileika
starfsins nú á tímum en í verkum sínum tefla
gullsmiðirnir fjórir saman hugmyndum um
samtímagullsmíði og sögulega arfleifð. Gull-
smiðirnir eru Erling Jóhannesson, Helga Ósk
Einarsdóttir, Orri Finnbogason og Þorbergur
Halldórsson.
Áhugavert er að sjá verk samtíma gull- og
silfursmiða í samhengi við silfurgripi fortíðar
sem sýndir eru á sýningunni Silfri Íslands sem
er hátíðarsýning Þjóðminjasafnsins í tilefni
150 ára afmælis safnsins. Til viðbótar er sýn-
ingin Silfursmiður í hjáverkum á annarri hæð
safnsins en þar er hægt að sjá dæmigert alda-
mótaverkstæði silfursmiðs.
Erling Jóhannesson
hannaði þessa gripi
en hann er einn
fjögurra sýnenda.
Samtíma-
gullsmíði og
söguleg arfleifð
Ljósið Tindur verður til sýnis í verslunarglugga Spaksmanns-
spjara í Bankastræti en það er hönnun Dóru Hansen. Lýs-
ingin frá lampanum gefur frá sér milt skuggaspil en lampinn
er lokaður að neðan með ljósu plexígleri. Lampinn er smíð-
aður úr rekaviði og íslensku lerki og er framleiddur á Íslandi
af Lighthouse og kemur í þremur stærðum.
Ljósið Tindur er
íslensk framleiðsla.
Milt skuggaspil