Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Blaðsíða 34
Þorsteinn vill
selja alla sína
bíla og óskar
eftir tilboðum.
Hér er smá
sýnishorn.
Númerið er glæsilegt. RE 1934 í takt við árgerðina. Gerist
vart svalara.
Ford Fourdoor
er eftirsóttur
og dýr. Kostar
40 til 50 þús-
und dollara
eða fimm til
sex milljónir
króna.
ÞORSTEINN BALDVINSSON BÍLAÁHUGAMAÐUR
Fornbílar
í fullu fjöri
ÞORSTEINN BALDVINSSON, EINN AF STOFNENDUM
FORNBÍLAKLÚBBSINS Á ÍSLANDI, HEFUR ÁTT HÁTT Í 100
BÍLA YFIR ÆVINA. NÚ ÓSKAR HANN EFTIR TILBOÐUM
EÐA HUGMYNDUM FYRIR DROSSÍURNAR SEM HANN Á.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Stýrið er hægra megin. Bíllinn kom til Akureyrar
1934 og þá var vinstri umferð.
Átta sílendra vél sem skilar 100 hestöflum, Svínvirkar.
É
g vil koma þessum bílum í góðar hendur. Vita að það
verði hugsað vel um þá og því óska ég eftir tilboðum í
þá eða góðum hugmyndum,“ segir Þorsteinn Baldvinsson
sem hefur átt fjölmarga fornbíla yfir ævina. Alls hefur
hann átt rúmlega 100 bíla. „Ég fékk snemma þessa bakteríu að
safna bílum. Elsti bíllinn var Ford, árgerð 1927, með high og
low drifi. Ég er kannski eini eftirlifandi íslendingurinn sem kann
að keyra þannig bíl.“
Þorsteinn keyrir um á afmælisútgáfu Subaru Legacy Outback
sem hann segir að sé besti bíll sem hann hafi átt. „Þetta er al-
gert undratæki að öllu leyti,“ segir hann og hlær.
Í dag á Þorsteinn sex gullfallega bíla sem allir hafa verið
gerðir upp. „Ég hef haft góða menn með mér í þessu sem hafa
gert bílana upp. En mitt hlutverk var að standa í því að útvega
varahluti og borga útgerðina.
Ég reyni að hreyfa þá yfir sumarið en þeir verða að vera inni
yfir veturinn. Myndu ekki þola saltið, öskuna, snjóinn og allan
viðbjóðinn sem er að finna á götum Reykjavíkur yfir vetratím-
ann.“
Hann segir að fátt sé betra en að setjast upp í fallegan forn-
bíl í góðu veðri og taka rúnt. „Það er bara dásamlegt.
Ég rak fyrirtæki í gamla daga. Þá var gott að dreifa huganum
við að brasa í bílunum eftir vinnudag. En þetta hefur kostað
blóð, svita og tár en þetta er alveg þess virði. Ekki spurning.“
Þorsteinn segir að allt þetta bras hafi verið gefandi. „Ég er
núna næstum áttræður og hætti að vinna fyrir löngu. Hef hins
vegar haldið mér uppteknum í kringum þessa bíla. Það eru
nefnilega sumir sem setjast bara í sófann og bíða eftir dauð-
anum. En ég hef verið að brasa í þessu og það hefur gefið mér
mikið. Mjög mikið.“
*Græjur og tækniVinsældir Google Chrome byggjast ekki síst á því hve auðvelt er að breyta honum »36