Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Síða 37
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Suspender virkar aftur á móti
þannig að þegar smellt er á hnapp
á opnum flipa, hættir Chrome að
eyða minni í að viðhalda því sem á
síðunni er og tæmir flipann. Til
þess að fá efnið aftur þarftu að
endurhlaða efni síðunnar. Þetta
sparar einnig talsvert pláss og
hjálpar til við að halda utan um
opna flipa sem þú vilt hugsanlega
skoða síðar.
Hula
Hula er þægleg viðbót sem opnar
fyrir landluktar sjónvarpsveitur á
netinu. Með því að nota Hula get-
ur þú til dæmis horft á efni af
BBC og ITV, sem lokað er fyrir
utan Bretlandseyja, eða netútsend-
ingar frá FOX og CBS. Þá opnar
Hula einnig fyrir Pandora, Netflix
og Hulu, svo eitthvað sé nefnt.
Notaðu sérhæfða
opnunarsíðu
Hægt er að útbúa sérhæfðar opn-
unarsíður í Chrome, sem birtist í
hvert skipti sem nýr flipi er opn-
aður. Þar er hægt að velja að hafa
þær síður sem þú notar oftast og
stytta sér leið að þeim með hlekk
og mynd af síðunni. Þá er hægt að
bæta bókamerkjastikunni í opn-
unarsíðuna, og velja ýmis smá-
forrit, svo sem leiki eða flýtileiðir
á vinsælar síður til að hafa innan
handar þegar nýr flipi opnast.
Geymdu lesturinn
þar til síðar
Ef þú notar Instapaper eða Pocket
í snjallsíma til þess að vista og
lesa seinna langar og áhugaverðar
greinar sem þú finnur á netinu, er
hægt að fá viðbót fyrir bæði þessi
smáforrit, svo hægt er að smella á
einn hnapp í vafranum til að vista
greinina sjálfkrafa.
AFP
* Innskráningin íGoogle Chromeveitir möguleika á
að samhæfa vafrann
á mörgum vélum
svo allar breytingar
sem þú gerir á vafr-
anum elta þig, til
dæmis frá vinnuvél-
inni og heim.
Stærsta umkvörtunarefni notenda Google
Chrome er hversu frekur hann er til minnis.
En til eru gagnlegar viðbætur til að vinna gegn
því vandamáli. Á myndinni sést Sundar Pichai,
yfirmaður hjá Google, tala á ráðstefnu 2012.
Tónlistarveitan Rdio.com er nú fáanleg á Íslandi.
Rdio hefur notið töluverðra vinsælda í Bandaríkj-
unum og hefur undanfarið verið að sækja í sig veðr-
ið í Evrópu. Tónlistarsafn Rdio telur rúmlega 18
milljón lög, samanborið við Spotify sem býður upp á
rúmlega 20 milljón lög, en sú þjónusta er ekki í boði
hér á landi.
Ekki fékkst nákvæm tala um fjölda laga í boði á
Tónlist.is, en sú veita er eftir sem áður með mest
úrval íslenskrar tónlistar.
Áskrift að Rdio.com kostar 860 krónur á mánuði
yfir netið en 1.720 krónur ef bætt er við áskrift úr
snjallsíma líka. Áskrift hjá Tónlist.is kostar 1.699
krónur á mánuði, snjallsímaáskrift innifalin.
VINSÆL TÓNLISTARVEITA AÐGENGILEG
Rdio komið til Íslands
Hvernig á að virkja
viðbætur í vafra?
Viðbætur (extensions) má finna í vefverslun Chrome (Chrome Web
Store). Það er jafnan auðvelt að finna hlekk sem vísar þangað þegar
þú opnar nýjan flipa í Chrome, en ef ekki, þá má einfaldlega spyrja
Google hvar hana er að finna.
Í vefverslun Chrome má finna mikinn fjölda af viðbótum og þemum
(themes) sem breyta útliti og litum vafrans. Þegar þú hefur fundið
viðbót sem þú vilt prófa geturðu virkjað hana með einum smelli á
uppsetningarhnappinn (Install).
Hægt er að stjórna og fjarlægja viðbætur undir tóla valmyndinni
(tools) í stjórnborðinu.
Smáralind | Sími 512 1330
Laugavegi 182 | Sími 512 1300
Lækkuðverð
iPhone5
iPhone4
Verð: 129.990.-
Verð áður: 139.990.-
Vörunr. IPHONE516GBB
Verð: 79.990.-
Verð áður: 84.990.-
Vörunr. IPHONE516GBB
1.000 kr.
símnotkun ámánuði í
12mánuði hjá NOVA
fylgir iPhone5,
keyptum hjá epli.is
Gildir í áskrift og frelsi.
1.000 kr.
símnotkun ámánuði í
6 mánuði hjá NOVA
fylgir iPhone4S,
keyptum hjá epli.is
Gildir í áskrift og frelsi.
16GB
8GB