Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Qupperneq 38
skemmtilegasti hönnuðurinn er auðvitað Guðmundur Jörunds-
son.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl?
Eric Cantona, Jarvis Cocker og Christian Bale eru allir miklir
töffarar.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur
að fatakaupum?
Mitt helsta mottó er að kaupa ekki lélega vöru úr lélegum
efnum. Mér finnst miklu skemmtilegra að eiga færri vandaðar
flíkur en hrúgur af einhverju drasli. Þetta á sérstaklega við
um skó. Þá fyrst er maður raunverulega að spara, þótt það
hljómi mótsagnakennt. Alltaf að kaupa randsaumaða skó úr
gæðaleðri. Síðan þegar sólinn klárast lítur maður bara til Þrá-
ins á Grettisgötunni og hann reddar málunum. Vandaðir skór
endast manni ævina. Svo mæli ég með því að menn kaupi sér
eitthvað sem reynir aðeins á feimnina – eitthvað sem er pínu
ögrandi og öðruvísi. Óþarfi að fara alla leið í trúðslátum en
það er svo leiðinlegt eitthvað að eiga fullan skáp af mismun-
andi gráum jakkafötum. Félagar mínir í lögfræðistéttinni
mættu taka þetta til sín og poppa sig aðeins upp. Virðulegt er
ekki það sama og leiðinlegt.
12. Hvert væri þitt eftirlætistískutímabil
Það er tíundi áratugur 19. aldar. Allt fallegt má á einhvern
hátt rekja til þessa tíma – enda tímabilið kallað La Belle
Époque. Þá var mikil velmegun í Evrópu og listir hafa sennilega aldrei
verið í jafnmiklum blóma. Herratískan á þessum tíma var alveg geggjuð.
Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns?
Ætli það sé ekki gamli Orvis-veiðijakkinn minn sem lifði mörg sumur þegar ég
var að vinna sem leiðsögumaður. Hef ekki fundið jafngóðan veiðijakka síðan.
Síðan verð ég að nefna græna Cacharel-
ullarblazerinn sem foreldrar mínir keyptu
handa mér þegar ég var barn. Ég mætti í
honum í allar afmælisveislur, stífgreiddur
með þverslaufu og í flauelsbuxum, og gat
ekki skilið af hverju sumir gestir voru í
jogginggalla.
En þau verstu?
Peysa úr H&M. Ég gat bara verið í henni
einu sinni og það sem verra er að í dag get
ég ekki sagt að ég hafi aldrei verslað í
H&M.
Hvar kaupir þú helst föt?
Það er mjög tilviljunarkennt. Hér heima
versla ég mest í Herrafataverzlun Kormáks
og Skjaldar. Í starfi mínu sem lögfræð-
ingur er ég alltaf í jakkafötum í vinnunni
og þau hef ég oftast keypt í Herragarð-
inum. Þetta mun augljóslega breytast nú í
mars þegar verslun JÖR by GUÐMUNDUR JÖR-
UNDSSON verður opnuð.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í?
Verslun súkkulaðimeistarans Pierres Marcolinis í
Brussel – stórkostleg verslun. Þessi snillingur ger-
ir besta súkkulaði í heimi og hver biti er ævintýri.
Ég heimsótti reyndar líka verslun hans í Tókýó og
hún var ekki miklu síðri. Í fötum er það Dior-
höllin í Ginza í Tókýó og svo er alltaf gaman að
koma í Paul Smith-búðina í Covent Garden.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú
tókst þátt í?
Já, já, þar er af nógu að taka. Ég var til dæmis
með hring í eyranu í fermingunni minni, móður
minni til mikillar ánægju. Síðan eru sennilega inn-
an við tíu ár síðan ég lét á einhvern ótrúlegan hátt plata mig í
spray-tan. Það var stórkostlegt gáleysi og niðurlægjandi. Ég var
eins og ég væri tússaður í framan. Allt sem tengist gervibrúnku
er augljóslega í öllum tilvikum tískuslys.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt?
Það er einkum þrennt. Ég er mikill efnaperri og kaupi bara föt úr
vönduðum efnum – engin gerviefni. Síðan er það sniðið sem er aug-
ljóslega lykilatriði. Að vera í illa sniðnum fötum er auðveldasta
leiðin til að líta illa út. Að lokum þarf síðan að vera smá tíska og
stemning í fötunum, hvort sem hún er töff, krúttleg eða fáguð.
Föt verða skelfilega leiðinleg ef það er ekki einhver smástemn-
ing í þeim.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Hann er frekar einfaldur. Ég er mikið í jakkafötum og er
kannski aðeins of fastur í að hafa þau hefðbundin og fylgja
„reglum“ í litasamsetningum – sem þýðir þó ekki að maður þurfi
að velja leiðinlega liti. Ég geri lítið af því að bæta einhverju óvæntu
við múnderinguna eins og strigaskóm við jakkaföt. Hver múndering
þarf að mynda góða heild.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Karl Lagerfeld er auðvitað mikill meistari og varla hægt annað en
nefna hann. Mér finnst Kris Van Assche líka vera að gera hrika-
lega flotta hluti bæði hjá Dior og undir sínu merki. En
Gunnar hefur
nóg fyrir stafni
en lítur alltaf
vel út.
Morgunblaðið/Ómar
GUNNAR ÖRN PETERSEN, FRAMKVÆMDASTJÓRI JÖR
Þarf að mynda
góða heild
GUNNAR ÖRN VEKUR MIKLA EFTIRTEKT FYRIR AÐ
VERA SMEKKLEGA TIL FARA. HANN VAR AÐ STOFNA
FATAMERKIÐ JÖR BY GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON
MEÐ VINI SÍNUM GUÐMUNDI JÖRUNDSSYNI FATA-
HÖNNUÐI. ÞESSA DAGANA ERU ÞEIR AÐ VINNA AÐ
OPNUN VERSLUNAR Á LAUGAVEGI 89.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
David Beckham
var með eyrna-
lokk. Tók hann
úr eins og
Gunnar.
Gunnar er framkvæmdastjóri JÖR
sem opnar innan skamms og karl-
tískuheimurinn bíður spenntur.
Gunnar er mikill aðdá-
andi Erics Cantona.
Finnst hann vera töff.
Gunnar segist
vera aðdáandi
Karls Lagerfelds.
*Föt og fylgihlutir Áður en við vitum af verður orðið nógu heitt í veðri fyrir blússur, vesti og toppa »40