Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Page 42
Morgunblaðið/Golli
M
eð hækkandi sól og
lóuna mætta til lands-
ins eru ungmenni um
land allt tekin í full-
orðinna manna tölu. Fjölskyldur
koma saman í tilefni þeirra tíma-
móta og þá er við hæfi að færa
fermingarbarninu gjöf. Margir
velja peningagjöf enda vandasamt
að velja gjöf við hæfi á þessum
síðustu og verstu tímum og pen-
ingagjafir eru skotheld leið til
gagns fyrir fermingarbarnið.
Þeir sem á árum áður þustu í
bæinn og eyddu fermingarpening-
unum á núll-einni í stundar-
brjálsemi í Karnabæ eða Evu
muna sjálfsagt margir eftir því að
hafa dauðöfundað félagana sem
voru skynsamir og lögðu afurðir
sínar inn á bók.
Að vísu tíðkaðist það ekki fyrr
en á síðustu árum að bankar byðu
framlag inn á reikninga sem þessa
en allt um það – þeir skynsömu
áttu jafnvel fyrir útborgun í bíl og
afgang fyrir bensíni.
Nú er það svo að peningar vaxa
ekki á trjánum eins og kunnugt er,
en skyldu þeir vaxa í bankanum?
Vextir almennt 2,1%
Sunnudagsblað Morgunblaðsins fór
á stúfana og leitaði svara hjá
stærstu viðskiptabönkunum um
hvaða kjör fermingarbörnum bjóð-
ast, kjósi þau að ávaxta peninga
sína hjá þeim. Í öllum tilvikum er
gert ráð fyrir að fé sé bundið á
reikningi til 18 ára aldurs viðkom-
andi fermingarbarns.
Íslandsbanki býður 5.000 króna
framlag ef lagðar eru inn 30.000
krónur eða meira á Framtíðar-
reikning. Vextirnir eru 2,1% og
reikningurinn er verðtryggður.
Sama gildir ef lagðar eru 30.000
krónur eða meira inn á Ríkis-
skuldabréfasjóð hjá VÍB, Eigna-
stýringaþjónustu Íslandsbanka.
MP banki býður upp á MP
Framtíð, verðtryggðan sparnaðar-
reikning sem bundinn er til 18 ára
aldurs, vextir á slíkum reikningi
eru 2,10%. Bankinn býður ekki
upp á framlag á móti innlögn.
Arion banki býður fermingar-
börnum mótframlag ef lagt er inn
á Framtíðarreikning. Mótframlagið
nemur 5 þúsund krónum ef lagðar
eru inn 30 þúsund krónur eða
meira. Framtíðarreikningurinn er
verðtryggður reikningur sem er
bundinn til 18 ára aldurs. Ársvext-
irnir á reikningnum eru í dag
2,1%.
Bæði verðtryggðir og óverð-
tryggðir reikningar
Landsbankinn greiðir 5.000 króna
mótframlag þegar fermingarbörn
leggja 30.000 krónur eða meira inn
á Framtíðargrunn. Fermingarbörn
sem leggja lægri fjárhæð inn á
Framtíðargrunn velja sér gjöf úr
gjafavöru sem tengist Klassa, vild-
arkerfi bankans fyrir börn og ung-
linga.
Lögð er áhersla á verðtryggðan
Framtíðargrunn sem ber nú 2,10%
vexti og er bundinn til 18 ára ald-
urs. Einnig er í boði óverðtryggður
Framtíðargrunnur með sömu bind-
ingu, vextir á honum eru nú 4,25%.
PENINGAGJAFIR Á RÉTTAN STAÐ
FERMINGARBÖRN FRÁ GREITT FYRIR AÐ LEGGJA PENINGA INN Á REIKNING HJÁ STÓRU BÖNKUNUM. SÉU
LAGÐAR INN 30 ÞÚSUND KRÓNUR FÆST 5 ÞÚSUND KRÓNA MÓTFRAMLAG.
Hólmfríður Þórisdóttir holmfridur.thoris@gmail.com
Skynsamleg ávöxtun
fyrir fermingarbörn
Innborgun 35.000 kr.
Framtíðargrunnur 4,25%
Nafnávöxtun 4,25%
Ávöxtun í 4 ár
Fjárh. eftir tímabil 41.340 kr.
Óverðtryggður reikningur:
Ávöxtun í 4 ár
Innborgun 35.000 kr.
Framtíðargrunnur 2,10%
Verðbólga 4,00%
Nafnávöxtun 6,18%
Ávöxtun í 4 ár
Fjárh. eftir tímabil 44.494 kr.
Verðtryggður reikningur:
Ef tekið er tillit til staðgreiðslu
af vöxtum og verðbótum:
Innborgun 35.000 kr.
Framtíðargrunnur 4,25%
Nafnávöxtun eftir fj.skatt 3,40%
Ávöxtun í 4 ár
Fjárh. eftir tímabil 40.008 kr.
Innborgun 35.000 kr.
Framtíðargrunnur 2,10%
Verðbólga 4,00%
Nafnávöxtun eftir fj.skatt 4,95%
Ávöxtun í 4 ár
Fjárh. eftir tímabil 42.457 kr.
*Fjármál heimilannaFermingarvertíðin er hafin með pomp og prakt, hvað á að gefa blessuðum börnunum í ár?
Sólveig Sigurðardóttir vakti mikla
athygli í sjónvarpsviðtali á dög-
unum en hún hefur losað sig við 35
kíló á tæpu ári. Hollustumatur er
ekki ódýr á Íslandi og forvitnilegt
að vita hvernig neytandi Sólveig er
og hvernig hún kaupir inn til heim-
ilisins. Sólveig er húsmóðir og ör-
yrki og býr í Reykjavík. Á heimilinu
eru tveir fullorðnir, tvö börn, sí-
svangur labradorhundur og snobb-
aður eðalköttur.
Hvað áttu alltaf til í ísskápn-
um?
Hér er alltaf nóg til af grænmeti,
skyri og ávöxtum.
Hvað fer fjölskyldan með í
mat og hreinlætisvörur á viku?
Úff, yfirlið og
svimi! Þetta eru
svona 22-27 þús-
und á viku. Þá tel
ég bara stórmark-
aði. Það er lítið
um ferðir á veit-
ingastaði.
Hvar er helst
verslað inn?
Við verslum aðallega í Bónus,
Krónunni og Þinni verslun.
Hvað freistar helst í mat-
vörubúðinni?
Lax! Ég er fíkill í góðan lax. Og
allur rekkinn hjá Sollu er freistandi.
Hvernig sparar þú í heim-
ilishaldinu?
Ég reyni að leita eftir góðu verði.
Kaupi fisk í blokk og fæ þá fisk á
góðu verði. Kaupi lambaskrokk að
hausti. Svo er málið að vera alltaf
viss um að maturinn sé notaður og
ekkert fari í ruslið.
Hvað vantar helst á heim-
ilið?
Gróðurhús og betri frystikistu.
Eyðir þú í sparnað?
Ekki lengur. Má þakka fyrir að
maður eigi fyrir nauðsynjum út
mánuðinn.
Skothelt sparnaðarráð:
Ganga í búðina! Minni innkaup
og hreyfing í leiðinni. Fékk svo fína
trillu í London og nota hana til að
fara í verslanir sem eru í göngufæri.
NEYTANDI VIKUNNAR
Mæli með að ganga í búðina
Sólveig Sigurðardóttir veit fátt betra en lax og reynir að fá hann á góðu verði.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sólveig
Sigurðardóttir
Sparnaðarráð
í heimilishaldinu
* Nóg er að nota hálfa töflu afuppþvottavélarefni. Ef duft er not-
að í uppþvottavélina dugar að nota
eina teskeið.
* Þegar sett er í þvottavélinadugar alveg að nota hálfa matskeið
af þvottaefni.
* Mýkingarefni má þynna meðvatni – þess vegna um helming.
* Notist við margreynd ediks-legin húsráð þegar þrifið er og
sparið fé.
* Edik og vatnsblanda virkar veltil að hreinsa nánast alla fleti. Setjið
blönduna á spreybrúsa og þar með
er komið ódýrt hreinsiefni og um-
hverfisvænt. Er hægt að biðja um
það betra?
* Edik og vatn er frábært á flísa-gólf og skilur ekki eftir sig rendur.
* Edik er líka afbragðsgott til aðlosna við leiðinlegu hvítu slikjuna
sem oft sest inn á glös og annað
gler. Látið standa í ílátinu í klukku-
tíma og skolið síðan.
púkinn
Aura-