Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Síða 53
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Píanóleikarinn Peter Máté
lýkur tónleikaröðinni Klassík í
Bergi, menningarhúsinu á
Dalvík, með einleikstónleik-
um á laugardag klukkan 16. Leikur
hann meðal annars verk eftir höfuð-
snillingana Beethoven, Chopin og
Bach.
2
Málþing um höfundarrétt-
armál myndlistarmanna,
takmörkun og möguleika,
verður haldið í Listasafni Ís-
lands á laugardag kl. 11 til 13. Frum-
mælendur eru Harpa Fönn Sigurjóns-
dóttir, Margrét Elísabet Ólafsdóttir
og Halldór B. Runólfsson. Dagný
Heiðdal stýrir umræðum.
4
Áhugamenn um kvikmynda-
gerð og sögu ættu að flykkj-
ast í Kvikmyndasafn Íslands á
laugardag kl. 16, þegar sýnd
verður syrpa kvikmynda úr þjóðlífinu
frá árunum 1939-1968. Myndirnar
eru eftir frumherja á borð við Ósk-
ar Gíslason, Vigfús Sigurgeirsson og
Loft Guðmundsson.
5
Forvitnileg erindi verða flutt
á málþinginu „Hér er gert
við prímusa“ í Reykjavíkur-
akademíunni á laugardag kl.
11-15, í sal akademíunnar í JL-húsinu.
Hversdagsiðjan er til umræðu og
meðal fyrirlesara eru Tinna Grétars-
dóttir, Gauti Sigþórsson og Stein-
unn Kristjánsdóttir sem skoðar
brot „af útsýni hversdagsins“.
3
Hið árlega Hugvísindaþing
Háskóla Íslands hófst á
föstudag og verður seinni
hluti þess á laugardag, milli kl.
10 og 16.30, í Aðalbyggingu Háskóla
Íslands. Boðið er upp á forvitnilega
fyrirlestra og málstofur þar sem það
helsta í fræðunum er kynnt.
MÆLT MEÐ
1
Fimmtu og síðustu tónleikar starfsársKammermúsíkklúbbsins verða í Norð-urljósasal Hörpu á sunnudagskvöldið
og hefjast klukkan 16.30. Kvintettinn sem
leikur á tónleikunum skipa fiðluleikararnir
Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dubik,
Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari, Bryn-
dís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Einar
Jóhannesson klarinettuleikari. Þau fimm
leika í tveimur verkum, frumflutningi á nýj-
um Klarinettukvintett Mistar Þorkelsdóttur
og Klarinettukvintett í B-dúr eftir von We-
ber. Í millitíðinni leika strengjaleikararnir
hinn kunna Strengjakvartett í F-dúr opus 59
nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven.
Í hugleiðingum Mistar um nýja verkið,
gefur hún því yfirskriftina „Si vis pacem - ef
þið óskið eftir friði“. Hún bætir síðan við:
„Hin fræga setning, „si vis pacem para
bellum“, vísar í þá hugsun að til að öðlast
frið þarf maður styrk.
Þessi hugsun hefur verið mjög áleitin sl.
ár, þar sem ég fylgdist með stríði föður míns
við illvígan sjúkdóm og upplifði eigin van-
mátt í því sambandi. Hann hefur nú öðlast
frið.
Verkið sjálft er engan veginn tilvísun í
þetta stríð, heldur einhvers konar tilraun
mín til að skrifa mig út úr sorginni, tómleik-
anum og jafnvel reiðinni, inn í vorið, inn í
birtuna …“
„Mist lauk nú við verkið af ótrúlegri hetju-
lund, ég dáist að henni,“ segir Einar Jóhann-
esson en Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld,
faðir Mistar, lést 30. janúar síðastliðinn.
„Það var dásamlegt að fá þetta verk frá
henni, en það er mjög persónulegt og við
flytjendurnir höfum tekið það að hjarta okk-
ar. Þetta er afar falleg músík og mér finnst
einhver dulin nærvera Þorkels vera í þessu
verki,“ segir hann.
„Ég fór til hennar fyrir um ári og falaðist
eftir verki þegar ég vissi að mér stæði til
boða að spila með Kammermúsíkklúbbnum
og var búinn að fá strengjakvartettinn í lið
með mér. Fyrst ákváðum við að leika kvin-
tettinn eftir Weber, sem er orðið langt síðan
ég spilaði, og sáum þá að það væri gaman að
leika annan kvintett með.“
Hann segir verk Mistar vera í einum
þætti, hefjast á íhugandi klarinettusóló, þá
myndi strengirnir jarðveg fyrir frekari vöxt
á mjög hugmyndaríkan hátt, og verkið endar
á einmana tónum klarinettsins.
Varðandi hinn kvintettinn segir hann að
allir klarinettuleikarar „þekki sinn Weber“,
rétt eins og þeir þekki sinn Mozart. „Þetta
eru aðalkarlarnir hjá okkur. Það er gaman
að fá að leika þetta verk aftur, eftir langt
hlé,“ segir Einar. efi@mbl.is
KLARINETTUKVINTETT MISTAR ÞORKELSDÓTTUR FRUMFLUTTUR
Þetta er afar falleg músík
VERK EFTIR VON WEBER, BEETHO-
VEN OG MIST ÞORKELSDÓTTUR
LEIKIN HJÁ KAMMERMÚSÍKKLÚBBN-
UM Á SUNNUDAGSKVÖLD.
Einar Jóhannesson segir að allir klarinettuleik-
arar þekki sinn Weber. Sá kunni kvintett verður
meðal annars leikinn í Norðurljósasalnum.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Sendiráð Íslands í Svíþjóð staðfesti við
framkvæmdaaðila að Brynhildur væri sá
slyngi og virti listamaður sem hún er, annað
þurfti ekki til að hún fengi verkið.
„Hér myndum við aldrei velja sænskan
listamann til að takast á við svona verkefni
án samkeppni. Allir yrðu vitlausir yfir því –
ég þar á meðal,“ segir Brynhildur glottandi.
En tillögur hennar voru samþykktar, hún
fór út í maí í fyrra og skoðaði aðstæður.
Vann síðan módel og að öðrum undirbúningi
og fór aftur út í fyrrahaust og kynnti þær
með góðum árangri. Þá tók við vinna við
frumgerðir skúlptúranna, sem hún mun
steypa hér heima og koma fyrir úti nú í vor.
En hvað ætlar hún að gera á þessu torgi og
nálægum svæðum?
„Á torginu sem er þarna við skólana set
ég þrjá tengda skúlptúra sem eru um og yf-
ir metri á hæð hver. Af einum fellur foss,
lækur af öðrum og loks er tjörn á þeim
þriðja. Ég vísa þarna í japanskar kenningar
um garðinn, þar sem verkin mynda þríhyrn-
ing og standa fyrir grunnþættina manninn,
himininn og jörðina.
Svo er ég með fjall þar skammt frá, sem
er tveir og hálfur metri á hæð. Það var á
sýningunni minni í Hafnarhúsinu 2005 með
viðbættum glertoppum. Loks verð ég með
námskeið fyrir átta ára börn í vor og þau
gera 22 verk sem ég kalla krakkasteina og
þeir verða steyptir niður á svæðinu og mun
ég gera svokallaðan móðurstein sem verður
þarna með þeim.“
„Ég hafði kynnst list Brynhildar, vissi
hvað hún er frjór og þroskaður listamaður;
ég efaðist því aldrei um að hún myndi leysa
þetta verkefni með miklum sóma. Þessi
glæsilegu verk verða vígð í lok ágúst, um
leið og allt hverfið, og það verður mikil há-
tíð. Konungshjónin koma og fjöldi annarra
fyrirmanna,“ segir Christina.
Brynhildur í aðstöðu sem hún hefur í Einingaverksmiðjunni, að undirbúa lögun glertindanna á fjall-
inu háa sem verður sett upp í Svíþjóð í vor. Verkin verða sett niður á þremur stöðum á svæðinu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Frumgerðir þriggja skúlptúra Brynhildar sem
verða á aðaltorginu og rennur vatn úr öllum.