Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Qupperneq 59
17.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Sleppa engu fyrir sleggju og skinn. (11)
4. Tímabil pissa í vatn. (8)
8. Hvetja brálaða menn með rétti. (10)
10. Skinn nær að vara og þjóta. (7)
12. Flúði til skiptis frá rotnun. (3)
14. Sá sem hefur færnina fær peningana. (8)
15. Nokkur stykki stráka þvælast á lista. (9)
16. Einlit þvælist vegna sóknar í ákveðna átt. (6)
17. Gyllt kinn er meiri að sögn. (5)
18. Verða ill dýr oft að bjöllu? (9)
20. Smíðatól úr góðmálmi verðskulda hrós. (10)
23. Búið til listaverk fyrir óduglegar á svæðinu. (11)
25. Tvöfalt sárið í tónbilinu. (8)
28. Alltaf meiddir með tækin. (8)
30. Brauð eða niðursaxað grænmeti. (8)
32. Hryggi húðarlausan með andúðarstunu út af óttaleysi. (6)
33. Maður kenndur við svörðinn fær sérstakt lyf. (8)
34. Tau gaf af sér ruma sem eru með líffræðilega einingu. (10)
35. Ekki lifandi hár hrökk við. (7)
36. Píla hæfir dasaðar og lúnar. (10)
LÓÐRÉTT
1. Sé heilagan Einar og lít kristal án miðju. (9)
2. Fegra sæta með dýri. (7)
3. Hættulegur bolli í glæp. (7)
5. Páfakóróna glitrandi af sérstökum titti. (7)
6. Skyldmenni mannætna? (7)
7. Aspir í norðri gefa af sér lyf. (7)
9. Tjón á sólguði truflaði. (7)
10. Bindi klæði sleips. (7)
11. Skítur kemur til auðra að endingu frá þægilegum á sérstakan
hátt. (10)
13. Söngur um suður Akranes og spámann. (7)
19. Ís sem er ekki á hreyfingu til hræsnara. (7)
21. Ýr dregur aftur úr veiðistað á svæðinu. (10)
22. Kostnaðarsamur kemur að sorgum með skepnu. (11)
23. Fer brydduð til þeirrar sem lýst er sem ósveigjanlegri. (9)
24. Gírug með topp flækist á stað uppi á fjalli. (9)
26. Ekki lifði það sem var flutt af fræðimanni. (6)
27. Ríkarður án þess að verða miskunnsamur. (10)
29. Form tíu af sterkum. (8)
31. Róta einhvern veginn í kringum murtuna. (7)
Magnús Carlsen er sigurstranglegastikeppandinn í áskorendamótinu semhófst á föstudaginn í London. Átta
stórmeistarar tefla tvöfalda umferð og sig-
urvegarinn öðlast rétt til að skora á heims-
meistarann Anand. Magnús er nálega 100 elo-
stigum hærri en Anand, og fara þarf aftur til
ársins 1971 til að finna jafn mikinn stigamun
á heimsmeistara og áskoranda sem þá var
Bobby Fischer. Aðstaða Magnúsar nú er ekki
ósvipuð þeirri sem Fischer var í á karabísku
eyjunni Curacao árið 1962 þegar átta skák-
menn tefldu fjórfalda umferð og megnið af
andstæðingum hans voru „Rússar“. Eftir-
málar þess móts kristölluðust í frægu viðtali
Fischers við Sports Illustrated: „Rússarnir
svindla í skák“. Áskorendakeppninni var þá
breytt og tekið upp einvígisfyrirkomulag. Þó
„dreifðir“ séu í dag eru aðrir keppendur en
Magnús frá gömlu Sovétlýðveldum: Armeninn
Aronjan, Rússarnir Kramnik, Svidler og Grit-
sjúk, Hvítrússinn Gelfand sem teflir í dag fyr-
ir Ísrael, Úkraínumaðurinn Ivantsjúk og
Aserinn Radjabov.
David Bronstein vann réttinn til að skora á
Botvinnik heimsmeistara eftir fyrsta áskor-
endamótið í Búdapest árið 1950. Aðrir sig-
urvegarar þessara móta fram til ársins 6́2
voru Smyslov, Tal og Petrosjan. Magnús
Carlsen er fyrsti Norðurlandabúinn sem á
raunhæfa möguleika á heimsmeistaratitlinum.
Bent Larsen hefði sennilega mótmælt þessari
fullyrðingu. Af 100 síðustu kappskákum sem
Magnús hefur teflt hefur hann tapað einni.
Hann virðist ekki reiða sig mikið á tölvuund-
irbúning og kemur andstæðingum yfirleitt
hressilega á óvart í byrjun tafls. Aðalstyrkur
hans liggur í frábærri endataflstækni og mikl-
um sigurvilja. Frægð hans í Noregi og víðar
jókst gífurlega þegar Magnús kom Íslands ár-
ið 2004, gæddi sér á hnetum og drakk appels-
ínusafa á Reykjavíkurmótinu og síðan á
„Reykjavik rapid“ í Sjálfstæðishúsinu við
Austurvöll. Myndefni frá viðureignum hans
við Kasparov og Karpov er iðulega notað í
umfjöllun um afrek hans í þáttagerð t.a.m.
„60 Minutes“. Hæfileikar hans voru þá á allra
vitorði en á Aeroflot-mótinu nokkrum vikum
fyrr lagði hann einn fremsta stórmeistara
Rússa í aðeins 19 leikjum. Leikandi léttur stíll
hans í þessari minnti á eitt frægasta undra-
barn skáksögunnar, Paul Morphy:
Magnús Carlsen – Sergei Dolmatov
Hollensk vörn
1. Rf3 f5 2. d3!
Skynsamlega leikið gegn Dolmatov sem
þekkti allar hefðbundnar leiðir út og inn.
2. … d6 3. e4 e5 4. Rc3 Rc6 5. exf5 Bf5 6.
d4 Rxd4
Opnar taflið fullmikið en Dolmatov gast
ekki að 6. … e4 7. Rg5 o.s,frv.
7. Rxd4 exd4 8. Dxd4 Rf6 9. Bc4 c6 10.
Bg5 b5 11. Bb3 Be7 12. O-O-O Dd7 13. Hhe1
Þetta er allt saman afar einfalt – alveg eins
og hjá Morphy!
13. … Kd8
Löng hrókun, 13. …. O-O-O blasti við en
eftir 14. g4! Bxg4 15. Hxe7 Dxe7 16. Dxg4+!
er hvíta staðan gjörunnin.
- SJÁ STÖÐUMYND -
14. Hxe7! Dxe7
Eða 14. … Kxe7 15. He1+ ásamt 16. Bxf6
o.s.frv.
15. Df4! Bd7 16. Re4! d5
Dolmatov gat líka reynt 16. … Hf8 17.
Rxd6 h6 en hvítur vinnur með 18. Db4! a5 19.
Dc5 Ha6 20. Rb7+ Ke8 21. Dxe7! Kxe7 22.
He1+.
17. Rxf6 h6 18. Bh4 g5 19. Dd4!
- og Dolmatov gafst upp. Hann gat reynt
19. … Hf8 en taldi stöðu sína vonlausa eftir
20. Rxd5 cxd5 21. Dxd5 ( eða 21. Bxd5 ) Hc8
22. Bg3 o.s.frv.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
SKÁK
Allra augu beinast að Magnúsi Carlsen
Verðlaun eru veitt fyr-
ir krossgátu vikunnar.
Senda skal þátt-
tökuseðil í umslagi
merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til
að skila úrlausn kross-
gátu 17. mars rennur
út á hádegi 22. mars.
Vinningshafi krossgát-
unnar 10. mars er
Hrafnhildur Ásgeirs-
dóttir, Glaðheimum
26, Reykjavík. Hún hlýtur í verðlaun bókina Ósjálf-
rátt eftir Auði Jónsdóttur. Forlagið gefur bókina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang