Morgunblaðið - 21.05.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2013
Hágæðaryksugur
með sjálfvirkum
hristibúnaði fyrir
sigti.
Fáanlegar fyrir:
Ármúla 17. Sími 533-1234. www.isol.is
IÐNAÐARRYKSUGUR
Skrifræði Evrópusambandsins eralræmt og skriffinnar þess
hafa nú minnt á sig með setningu
reglna um framreiðslu ólívuolíu á
veitingahúsum.
Evrópuvaktin segir frá þessu ogvitnar til fréttar The Guardi-
an sem segi að nú sé hæðst að
skriffinnunum fyrir að beina at-
hygli frá baráttunni gegn skulda-
vanda evrunnar með því að setja
veitingamönnum strangar reglur
um hvernig þeir skuli bera ólívuolíu
á borð.
Frá næstuáramót-
um verður
bannað að
bera ólívu-
olíu fram í
opnum skál-
um, könnum
eða flöskum
sem unnt er
að fylla að nýju. Eftir áramót skulu
ílát ólívuolíunnar hafa tappa sem
ekki er unnt að taka af flöskunni og
tómum flöskum ber að henda.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-bandsins heldur því fram að
um mikið hagsmunamál neytenda
sé að ræða, en aðrir rifja upp gömlu
gúrkureglurnar.
Evrópuvaktin vitnar til skrifaSüddeutsche Zeitung sem
sagði ákvörðunina þá „undarleg-
ustu frá setningu sögulegu reglu-
gerðarinnar um bognar agúrkur.“
Vísaði blaðið þar til reglna sem
ESB setti um stærð og útlit 36 teg-
unda af ávöxtum og grænmeti sem
seld eru innan ESB. Þar var meðal
annars mælt fyrir um útlit agúrka
og banana, en reglurnar voru af-
numdar árið 2009.
Það er eitthvað bogið við svonareglusetningaráráttu.
Eitthvað bogið við
þessa áráttu ESB
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 6 súld
Akureyri 12 léttskýjað
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 13 alskýjað
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 15 léttskýjað
Helsinki 20 léttskýjað
Lúxemborg 10 skýjað
Brussel 12 skýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 22 léttskýjað
London 16 skýjað
París 10 skúrir
Amsterdam 12 alskýjað
Hamborg 12 súld
Berlín 17 skýjað
Vín 19 léttskýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 15 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 20 léttskýjað
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 12 skúrir
Montreal 18 skýjað
New York 22 léttskýjað
Chicago 26 alskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:53 22:57
ÍSAFJÖRÐUR 3:27 23:33
SIGLUFJÖRÐUR 3:09 23:17
DJÚPIVOGUR 3:15 22:34
Ættfræðivefurinn Íslendingabók
hefur nú bætt við flipa undir yfir-
skriftinni „um ættina mína“ þar sem
fólk getur nálgast
frekari tölfræði-
upplýsingar um
ætt sína. Þar er
samantekt unnin
frá öllum lang-
öfum og lang-
ömmum viðkom-
andi og niðjum
þeirra.
Hægt er að fá
upplýsingar um
tíu algengustu
karl- og kvenmannsnöfn ættarinnar.
Algengustu millinöfnin, algengustu
fæðingarstaðina og algengustu bú-
setustaði.
Þá eru tíu elstu karlmenn og
kvenmenn hópsins listaðir upp auk
þess sem tíu nýjustu ættingjarnir
eru á lista. Ættfræðivefurinn gefur
einnig upplýsingar um meðallífaldur
hópsins, stærsta systkinahópinn,
fjölda af hvoru kyni og heildarstærð
ættarinnar.
Íslendingabók er eini ættfræði-
grunnurinn í heiminum sem nær til
heillar þjóðar. Þar eru upplýsingar
um ættir 830 þúsund einstaklinga og
um 95% allra Íslendinga frá árinu
1703 eru þar á skrá. ipg@mbl.is
Ný tölfræði
komin í Ís-
lendingabók
Nýjung Skjáskot
af Íslendingabók.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég setti í gang vinnu við það í ráðuneyt-
inu að það yrði skoðað hvort og þá hvern-
ig stofnanir sem eru á fjárlögum frá rík-
inu samkvæmt þjónustusamningum eigi
rétt á sambærilegum launahækkunum og
heilbrigðisstofnanir, sem hafa fengið
hækkun á launalið þessa árs til að jafna
kynbundinn launamun. Sú vinna er í
gangi og það er engin niðurstaða komin,“
segir Guðbjartur Hannesson velferðarráð-
herra.
Tilefnið er sú gagnrýni að svonefnt
jafnlaunaátak hafi ekki náð til allra heil-
brigðisstofnana. „Markmið átaksins var
að eyða kynbundnum launamun eða rétt-
ara sagt að stíga skref í þá átt. Það var
ákveðið að gera það í gegnum stofn-
anasamninga við heilbrigðisstéttir og að
það skyldi byrjað á heilbrigðisstofnunum
ríkisins,“ segir hann.
Rætt var við Birgi Gunnarsson, for-
stjóra Reykjalundar, í Morgunblaðinu fyr-
ir helgi og gagnrýndi hann þar að átakið
næði eingöngu til stofnana í eigu og
rekstri ríkisins, en ekki til stofnana sem
eru á fjárlögum frá ríkinu skv. þjónustu-
samningum.
Guðbjartur segir athugasemd frá
Reykjalundi í skoðun. Nú sé unnið að
endurskoðun stofnanasamninga á heil-
brigðisstofnunum ríkisins. Það sé í hönd-
um hverrar stofnunar hvernig þetta verði
útfært innan fjárveitinga.
Sé í höndum hverrar stofnunar
Guðbjartur
Hannesson
Velferðarráðherra segir horft til jafnlaunaátaks við endurskoðun samninga