Morgunblaðið - 21.05.2013, Blaðsíða 40
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 141. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Hjón létust í slysi í Þjórsárdal
2. Sagt upp eftir 25 ára starf
3. Uppsögn Láru dregin til baka
4. Björguðu dreng út úr þvottavél
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Alexandra Argunova Kjuregej, Hall-
dór Warén og dr. Charles Ross skipa
Kjuregej-tríóið sem ætlar í tónleika-
ferð til Rússlands í júní. Þau koma
fram í St. Petersburg, Moskvu og
Jakútíu, sem eru æskuslóðir Kjure-
gej. Hægt er að legga þeim lið á fjár-
mögnunarsíðunni: indiegogo.com/
projects/kjuregej-tour-to-russia.
Kjuregej-tríóið
heldur til Rússlands
Frímerkjasýn-
ingin NORDIA 2013
verður haldin í júní í
Garðabæ. Sérfræð-
ingar Bruun Rasm-
ussen, stærsta
uppboðshúss á
Norðurlöndum,
munu bjóða ókeyp-
is mat á munum
sem fólk hefur með sér. Sérfræðingar
úr sjónvarpsþættinum „Auktions-
huset“ í DR1, mæta líka og boðið
verður upp á safnaramarkað.
Ókeypis mat sér-
fræðinga á munum
Listfengi ehf. hefur gefið út fimm
nýjar bækur um Pappírs-Pésa eftir
Herdísi Egilsdóttur. Börn sem kynnt-
ust honum fyrir löngu eru nú orðin
foreldrar og gaman fyrir þá að
kynna gamla vininn
fyrir sínum börn-
um. Nú lendir
Pési í nýjum
ævintýrum. Bæk-
urnar flokkast
með léttlestr-
arbókum og Herdís
myndskreytir.
Pappírs-Pési kominn
aftur á kreik
Á miðvikudag Norðvestan 10-18 m/s, hvassast með A-ströndinni,
en hægari með kvöldinu. Él N- og A-lands, en annars bjartviðri. Hiti
2 til 10 stig, hlýjast syðst, en víða næturfrost inn til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan og síðan norðvestan 10-15 og skúrir
eða slydduél og kólnar í veðri.
VEÐUR
KR-ingar eru með fimm
stiga forystu í Pepsi-deild
karla í fótbolta eftir sann-
færandi sigur á Eyjamönn-
um á Hásteinsvelli í gær-
kvöld, 2:0, og þeir hafa
unnið fjóra fyrstu leiki sína í
deildinni. Þórsarar kræktu í
sín fyrstu stig með því að
vinna Ólafsvíkinga í botn-
slagnum og mikið gekk á
þegar Keflavík og Fylkir
gerðu jafntefli, 2:2.
»2,4,8
KR með fimm
stiga forystu
Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálf-
ari Rhein-Neckar Löwen, er að vonum
ánægður með sigur liðsins í EHF-
bikarnum í handknattleik, sem er
stærsti titilinn í sögu
félagsins. Hann er
hinsvegar mjög
ósáttur við keppn-
isfyrirkomulagið í
úrslitunum og
segir það mjög
ámælisvert. »1
Ánægður með titilinn en
ámælisvert skipulag
Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði kvennaliðs
ÍBV í fótboltanum, segir að mikil
hamingja og stemning sé í bænum
eftir líflega byrjun á keppnis-
tímabilinu. Eyjakonur voru óheppnar
að sigra ekki Val í bráðfjörugum leik
á Hlíðarenda sem endaði 3:3. Elísa er
bjartsýn á gott gengi ÍBV þrátt fyrir
að liðið hafi misst marga máttar-
stólpa fyrir þetta tímabil. »6
Bjartsýn á gott gengi
Eyjakvenna
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Almannadalsmót Hestamanna-
félagsins Fáks var haldið í þriðja
sinn í gær, en mótið er haldið í til-
tölulega nýju hesthúsahverfi í Al-
mannadal.
Mótið er töltmót þar sem keppt
er í fimm flokkum: 16 ára og yngri,
meira og minna vanir; byrjenda-
flokkur fyrir alla aldurshópa og 17
ára og eldri, meira og minna vanir.
Ylfa Guðrún Svafarsdóttir varð í 1.
sæti í flokki 16 ára og yngri, meira
vanra, á Söndru frá Dufþaksholti og
Kolbrá Jóhanna Magnadóttir varð í
3. sæti í sama flokki á Þyrnirós frá
Reykjavík.
„Við höfum eiginlega verið í
hestamennsku frá því við munum
eftir okkur,“ segja Kolbrá og Ylfa
einum rómi, en stúlkurnar eru báð-
ar 13 ára gamlar. „Hestarnir okkar
eru ekki á húsi í þessu hverfi, við
komum bara hingað til að keppa,“
segja þær.
Skemmtilegra en í skólanum
Kolbrá segir hesta hennar og
fjölskyldunnar vera í Víðidalnum,
en fjölskylda Ylfu heldur sína hesta
í hesthúsi við hliðina á heimili fjöl-
skyldunnar í Vatnsendahverfi.
„Við erum með hesthús og gerði
og afgirta bletti og allt saman fyrir
hestana. Það eru alveg frekar mörg
hús í kringum okkur svona útbúin.“
Stúlkurnar segja hestamennsku
taka mikinn tíma, en að þær njóti
þess að vera í hestum. „Það er
miklu skemmtilegra að vera í hest-
um en í skólanum,“ segir Kolbrá.
„Ég væri mjög til í að fara í at-
vinnumennsku í þessu,“ segir Ylfa.
„Það er margt í boði, keppnir,
tamningar, meistaradeildin og
þannig,“ segir Ylfa og Kolbrá tekur
undir.
Enginn hestaframhaldsskóli
Stúlkurnar segja því miður engan
framhaldsskóla starfræktan á Ís-
landi sem sé sérstaklega miðaður
að ungum knöpum, en Háskólinn á
Hólum sé góður „hestaskóli“.
„En það er því miður skóli á há-
skólastigi. Ef það væri einhver
hestaframhaldsskóli myndum við
báðar alveg örugglega fara í þann
skóla,“ segja Kolbrá og Ylfa í kór.
„En þannig skóli er því miður bara
ekki til.“
Stúlkurnar segjast keppa mikið
og ekki einskorða sig við höfuð-
borgarsvæðið. „Ég ætla til dæmis
að taka þátt í Íslandsmótinu á Ak-
ureyri í lok sumars,“ segir Ylfa.
Alla tíð verið í hestamennsku
Almannadals-
mót Fáks haldið
á nýja svæðinu
í þriðja sinn í gær
Morgunblaðið/Ómar
Upprennandi knapar Kolbrá Jóhanna Magnadóttir með Þyrnirós frá Reykjavík og Ylfa Guðrún Svafarsdóttir með
Söndru frá Dufþaksholti. Ylfa varð í 1. sæti í sínum flokki og Kolbrá í 3. sæti í sama flokki á Almannadalsmótinu.
„Knapamerki eru undirbúnings-
námskeið á vegum Fáks þar sem
maður lærir ýmislegt sem tengist
hestamennsku,“ segir Kolbrá.
„Námskeiðin eru fimm og við erum
núna á fjórða námskeiði,“ segir
Ylfa.
„Fyrsta námskeiðið snerist um
að læra að leggja á og alls konar
ásetur. Námskeiðin verða svo
flóknari og erfiðari, en þau eru
hvort tveggja bókleg og verkleg,“
segir Ylfa. „Maður þarf að stand-
ast próf til að ljúka þeim.“
Námskeiðin eru haldin tvisvar í
viku í reiðhöll Fáks í Víðidal. Nám-
skeiðin eru mjög mislöng, það
fyrsta 8 til 10 tímar bóklegir og 18
til 20 tíma verklegir, en á því
fimmta eru 18 til 22 tímar af bók-
legri kennslu og 40 til 42 tímar af
verklegum æfingum en tímafjöldi
á hverju námskeiði er ekki fast-
ákveðinn.
Námskeið fyrir hestamenn
KNAPAMERKI – NÁMSKEIÐ Í HESTAMENNSKU