Morgunblaðið - 21.05.2013, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2013
AF EUROVISION
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Það vantaði ekkert upp áglimmer og glamúr á loka-kvöldi Eurovision í ár í
Malmö í Svíþjóð á laugardagskvöld
– raunar rigndi glimmer yfir okkur
áhorfendur tvívegis meðan á
keppninni stóð. Svo mikið raunar að
á gólfinu á hótelherberginu morg-
uninn eftir mátti finna töluvert
magn af því og á flugvellinum á
Kastrup lá sami glimmer á víð og
dreif í fyrradag eftir hina ýmsu
gesti keppninnar.
Það eru Danir sem bjóða heim
að ári þegar Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva, Eurovisi-
on, verður haldin. Danska lagið í ár,
Only Teardrops, með söngkonunni
Emmelie de Forest sigraði í keppn-
inni með 281 stig, í öðru sæti varð
framlag Aserbaídsjan með 234 stig
og í þriðja framlag Úkraínu með
214 stig. Noregur hafnaði svo í
fjórða með 191 stig og Rússar í því
fimmta með 174 stig.
Öll lönd geta sameinast umtónlistina og ég vona að lagið
mitt geti sameinað Evrópu,“ sagði
Emmelie de Forest á blaðamanna-
fundi eftir keppnina. Það eru ekki
lágleit markmið.
Þema keppninnar í ár var
raunar „We Are One“ eða „Við er-
Glimmer og glamúr í
Danmörku á næsta ári
Sigurvegari Hin danska Emmelie de Forest fór með sigur af hólmi í Eurovision í ár með lagið Only Teardrops.
um eitt“ á íslensku. Það var einmitt
sú upplifun sem pistlahöfundur fékk
af veru sinni í Malmö. Þar voru allir
komnir til að skemmta sér saman,
þvert á landamæri og pólitísk átök.
Þar réði gleðin ríkjum þessa viku
sem keppnin stóð og þar hittust vin-
ir og kunningjar sem jafnvel hittast
ekki við önnur tækifæri.
Framlag Íslands, Ég á líf meðEyþóri Inga Gunnlaugssyni,
hafnaði í 17. sæti í keppninni í ár
með 47 stig. Þjóðverjar kunnu best
að meta íslenska framlagið og gáfu
því 8 stig. Eistar, Ungverjar og Sví-
ar gáfu því svo allir 6 stig. Finnar og
Svisslendingar gáfu 5 stig, Norð-
menn og Slóvenar 4 stig, Bretar
gáfu 2 stig og Danir 1 stig. Ein-
hverjum varð á orði að við hefðum
oft riðið feitari hesti frá stigagjöf
hinna landanna á Norðurlöndum.
Líklega er það rétt en hitt er líka
staðreynd að okkur hefur ekki
gengið svona vel í Eurovision síðan
Jóhanna Guðrún söng „Is It True“ í
Rússlandi 2009.
Í forkeppninni á fimmtudag
varð Ísland í 6. sæti af tíu með 72
stig. Þá gáfu Finnar og Þjóðverjar
okkur 12 stig, Ungverjar, Lettar,
Norðmenn og Svisslendingar 10
stig, Spánverjar 7 stig og Armenar
1 stig.
Af þeim sex löndum sem sjálf-krafa komust í úrslitin á laug-
ardag lentu fjögur í átta síðustu
sætunum, Bretland með 23 stig,
Þýskaland með 18 stig, Frakkland
með 14 stig og Spánn með 8 stig.
Það er greinarhöfundi umhugs-
unarefni hvort þessi lönd fái jafn
mikla kynningu og þau lönd sem
keppi í undanúrslitum, sem eru í
umfjölluninni frá upphafi, margar
vikur fyrir keppnina. Þau lög sem
keppa í undanúrslitunum fá svo öll
gríðarlega mikla fjölmiðlaumfjöllun
í Eurovision-vikunni á meðan hin
lögin sem fara sjálfkrafa í gegn fá
minna pláss og eru mest í um-
ræðunni allra síðustu dagana. Sú
spurning vaknar hvort þetta hafi
mögulega áhrif á úrslitin og hver
raunverulegur ávinningur sé þá af
því að komast sjálfkrafa í úrslit ef
það kemur niður á þeim þjóðum.
Hvað sem því líður þá eiga Sví-
ar heiður og þökk fyrir frábæra
umgjörð Eurovision í ár og Danir
verða að leggja sig alla fram um að
halda uppi merkjum að ári.
» „Öll lönd geta sam-einast um tónlistina
og ég vona að lagið mitt
geti sameinað Evrópu,“
sagði Emmelie de For-
est á blaðamannafundi
eftir keppnina. Það eru
ekki lágleit markmið.
Ljósmynd/Dennis Stachel (EBU)
Nýjasta kvikmynd hins umdeilda,
danska leikstjóra Lars Von Trier,
Nymphomaniac, eða Vergjarna kon-
an, verður frumsýnd á jóladag í
Kaupmannahöfn í Danmörku. Eins
og nafnið gefur til kynna verður kyn-
líf áberandi í myndinni og leikararnir
eru ekki af verri endanum, m.a. Shia
LaBeouf, Uma Thurman, Willem
Dafoe og Charlotte Gainsbourg. Ga-
insbourg fer með hlutverk konunnar
vergjörnu.
Von Trier var gerður brottrækur
frá kvikmyndahátíðinni í Cannes fyr-
ir tveimur árum eftir að hann lét
óheppileg ummæli falla um Adolf Hit-
ler. Var það í fyrsta sinn í sögu hátíð-
arinnar sem leikstjóra var meinað að
dvelja áfram á henni og baðst Von
Trier afsökunar á ummælum sínum.
Leikstjórinn hefur þó átt góðu gengi
að fagna á hátíðinni og myndir hans
verið eftirsóttar til sýninga. Von
Trier hreppti aðalverðlaun Cannes,
Gullpálmann, árið 2000 fyrir kvik-
mynda Dancer in the Dark en í henni
fór Björk með aðalhlutverkið. Margir
bjuggust því við því að hann myndi
frumsýna Nymphomaniac á hátíðinni
í ár en svo varð þó ekki. Ástæðan er
þó ekki sú að Von Trier sé ekki í náð-
inni , myndin var einfaldlega ekki
fullkláruð. Von Trier hefur gengið
fram af mörgum með myndum sín-
um, m.a. hinni mjög svo ofbeldisfullu
Antichrist og verður forvitnilegt að
sjá hvernig kvikmynd um vergjarna
konu leggst í áhorfendur og gagnrýn-
endur. Framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins Zentropa, Ålæk Jensen, sló á
létta strengi í tilkynningu sem send
var út um frumsýninguna fyrir helgi
og spurði hvort eitthvað væri jóla-
legra en kvikmynd af þessu tagi.
Nymphomaniac verður skipt í tvo
hluta og verður því í raun um tvær
myndir að ræða. Og tæknibrellurnar
verða tilkomumiklar, að sögn hins
spaugsama Jensen.
Umdeildur Kvikmyndir leikstjórans
Lars Von Triers eru ekki allra. Hér
má sjá stillu úr væntanlegri kvik-
mynd hans, Nymphomaniac.
Vergjarna konan
frumsýnd á jóladag
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
THEGREATGATSBY2D KL.5-8-10:55
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 5:10 - 8 - 10:50
STARTREKINTODARKNESS VIP KL. 5:10 - 10:50
PLACE BEYOND THE PINES KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 33D KL. 5:10 - 8 - 10:40
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 5:30 -8 - 10:30
KRINGLUNNI
THE GREAT GATSBY2D KL.5:10-8-10:50
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 8 - 10:50
ÓFEIGUR GENGUR AFTUR KL. 5:50
THE GREAT GATSBY2D KL. 5:10 - 8 - 10:50
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 5:10 - 8 - 10:50
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
THEGREATGATSBY2D KL.8
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 8 - 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 5:20 - 10:55
THE CROODS ÍSLTAL KL. 5:50
AKUREYRI
THE GREAT GATSBY2D KL. 5:10 - 8
STAR TREK INTO DARKNESS 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 3D KL. 10:55
NEW YORK OBSERVER
THE PLAYLIST
J.J. ABRAMS ER MÆTTUR MEÐ BESTU
HASARMYND ÞESSA ÁRS!
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
STÓRFENGLEG
EXHILARATING
ALDEILIS RÚSSÍBANI, ÞESSI MYND.
SJÁÐU HANA!
FRÁBÆR
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð