Morgunblaðið - 21.05.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2013
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Hádegisseðill • Mánudag til föstudags kl. 11.30-14.00
Njóttu þess að borða
góðan mat í hádeginu
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur
hæðum í miðbæ Reykjavíkur
- Súpa dagsins með heimabökuðu brauði .......................... kr. 790
- Kjúklingasúpa með grænmeti, chilly og núðlum ........... kr. 1.290
- Sjávarréttasúpa Caruso................................................ kr. 1.350
- Kjúklingasalat m. hunangsgljáðum kjúklingastrimlum .. kr. 1.390
- Tómatsalat m. mozzarella og ruccolasalati í jurtaolíu .... kr. 1.250
- Salat Templada m. hvítlauksristuðum nautastrimlum .... kr. 1.650
- Caruso chef´s salat ...................................................... kr. 1.290
- Caruso kjötlasagna...................................................... kr. 1.390
- Spaghetti carbonara .................................................... kr. 1.390
- Hvítlauksristaðar risarækjur Risotto ............................. kr. 1.450
- Ferskasta sjávarfang dagsins ....................................... kr. 1.670
- Pítsa með tveimur áleggstegundum að eigin vali .......... kr. 1.390
- Pítsasamloka með kjúkling, pepperoni og salati ........... kr. 1.390
- Ristað lambafille með villisveppum og parmesan.......... kr. 2.890
- Blandaður ítalskur krapís með ávöxtum.......................... kr. 950
- Panna Cotta með ávöxtum og jarðarberjasósu................. kr. 950
Hjá okkur
er alltaf
notalegt
bæði í
hádeginu
og á kvöldin
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Glussa-, vökva- og loftkerfi
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Útgerðarfélagið Smyril Line sem
gerir út ferjuna Norrænu fagnar
þrjátíu ára afmæli siglinga sinna frá
Færeyjum til Seyðisfjarðar í ár. Þá
eru tíu ár liðin frá því að ný Norræna
var tekin í notkun. Fjöldi manns hef-
ur siglt með ferjunni til og frá Seyð-
isfirði í gegnum árin en frá því að
nýja skipið var tekið í notkun árið
2003 lætur nærri að farþegafjöldinn
sé sambærilegur við það að allir Ís-
lendingar hafi ferðast með því.
Það var í júní 1975 sem siglingar
hófust frá Þórshöfn í Færeyjum til
Seyðisfjarðar og áfram til nokkurra
hafna í Danmörku, Noregi og Skot-
landi. Þá var það skipaútgerð fær-
eyska ríkisins sem stóð að sigling-
unum á skipinu Smyrli. Það sigldi
hingað til lands til haustsins 1982,
árið sem Smyril Line, var formlega
stofnað, en Smyril Line hóf siglingar
árið eftir. Það var skipstjóri Smyrils,
Óli Hammer, og gamlir félagar hans
í áhöfninni sem stofnuðu félagið.
Færeyingar áttu meirihluta hluta-
fjár félagsins, þar á meðal átti fær-
eyska ríkið fimmtungshlut, en Ís-
lendingar áttu einnig hluti í því.
Smyril Line hóf siglingar á sænsku
ferjunni Gustav Vasa, sem hlaut
nafnið Norræna, vorið 1983.
Jónas Hallgrímsson er stjórn-
arformaður Norrænu ferðaskrifstof-
unnar sem er umboðsaðili Smyril
Line hér á landi. Hann segir að
margt hafi breyst frá því á upphafs-
dögum félagsins í byrjun 9. áratug-
arins. Árið 2003 var ný ferja keypt í
stað hinnar gömlu. Sú nýja tekur
1.482 farþega og um 700-800 bíla á
háannatíma auk fraktar, en sú gamla
tók 1.050 farþega og 300 bíla.
„Það er ekki langt frá því að nýja
Norræna hafi flutt jafnmarga og Ís-
lendingar eru. Ég held að það mark
náist í sumar,“ segir Jónas.
Í heildina hafa 295.000 farþegar
ferðast með nýju Norrænu til og frá
landinu og 92.000 farartæki.
Allt stefnir í að metár verði í fjölda
ferðamanna sem kemur hingað til
lands í sumar. Jónas segir að bók-
anir í ferjuna hafi gengið þokkalega.
Ekki hafi verið vandamál að fá út-
lendinga með ferjunni en nú séu Ís-
lendingar hins vegar að taka við sér
aftur.
Drjúgt fyrir landsbyggðina
„Það er mikil fjölgun Íslendinga.
Núna sjáum við mikið af gömlum
andlitum koma aftur sem voru hætt
að koma. Það er mikið til sama fólkið
sem nýtur þess að sigla þó það komi
alltaf einhverjir nýir,“ segir Jónas.
Að öðru leyti segir Jónas að sigl-
ingarnar hafi gengið framúrskar-
andi vel í gegnum árin og mikil
ánægja sé með þær á meðal Aust-
firðinga og hjá þeim sem búa úti á
landi.
„Farþegarnir skilja náttúrulega
mest eftir sig úti á landi. Það hefur
verið drjúgt fyrir landsbyggðina í
gegnum þennan árafjölda. Þetta er
eina fasta innkomuleiðin til landsins
fyrir utan Keflavíkurflugvöll eins og
er eftir að beint flug var lagt niður á
Akureyri og Egilsstöðum,“ segir
hann.
Norræna Frá því að nýja ferjan var tekin í notkun árið 2003 hafa um 295.000 manns siglt með henni.
Fjöldi farþega Norrænu á
við fjölda allra Íslendinga
Áratugur frá því að ný Færeyjaferja var tekin í notkun
Nýr veitingastaður verður opnaður í
Tryggvaskála á Selfossi í næsta mán-
uði. Húsið er það elsta á Selfossi,
stendur við eystri sporð Ölfusárbrúar
og var reist árið 1890 sem aðsetur
verkamanna sem árið eftir reistu
fyrstu brúna yfir ána. Þar hefur í tím-
ans rás verið margvísleg starfsemi,
svo sem vinsæll matsölustaður. Nú
verður sá þráður tekinn upp.
„Verkefnið er komið vel af stað og
við ættum að geta opnað um miðjan
júní,“ segir Tómas Þóroddsson veit-
ingamaður. Tryggvaskáli verður ein-
faldlega nafn staðarins og talsvert
verður lagt upp úr því að endurvekja
þá menningu sem ríkti á staðnum
fyrr á árum.
„Í gamla daga kom fína fólkið í
Reykjavík hingað og fékk glænýjan
Ölfusárlax. Það breyttist í slagorð
sem heyrðist oft í auglýsingum. Því
er ég búinn að setja mig í samband
við bændur og fleiri til að útvega
glænýjan lax. Annars verður mat-
seðillinn fjölbreyttur,“ segir Tómas
Tryggvaskáli er í dag í eigu Sveit-
arfélagsins Árborgar og Skála-
félags, en að því standa hollvinir
hússins sem stóðu að endurgerð þess
fyrir nokkrum árum. Segir Tómas
þær endurbætur hafa tekist vel og
þær séu í raun forsenda þess að veit-
ingarekstur sé gerlegur í húsinu,
þar sem eru tveir salir, 50 og 100
manna. sbs@mbl.is
Selfoss Húsið við brúna var byggt fyrir 122 árum og fær enn nýtt hlutverk.
Ölfusárlax í elsta
húsi bæjarins
Sagan samofin Tryggvaskála