Morgunblaðið - 23.05.2013, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2013
8 VIÐSKIPTI
Steingrímur Birgisson segir enn of snemmt
að spá með vissu um hvernig sumarið verð-
ur fyrir bílaleigurnar. Steingrímur er for-
stjóri Höldurs-Bílaleigu Akureyrar og býst
hann við á bilinu 8-10% vexti í ár.
„Bókanir það sem af er vorinu og sumr-
inu eru fleiri en á sama tíma í fyrra en með
hverju árinu eru bókanir gerðar með
skemmri fyrirvara og verður varla hægt að
segja fyrir víst hvernig sumarið á eftir að
verða fyrr en komið er fram í júní. Mark-
aðurinn er ekki eins og hann var fyrir 10
eða 15 árum að maður vissi strax í mars
hvernig sumarið átti eftir að líta út.“
Það virðist sem fjölgun ferðamanna end-
urspeglist ekki að fullu leyti í auknum við-
skiptum við bílaleigur. Á síðasta ári jukust
umsvif Bílaleigu Akureyrar um rúm 10%
en á sama tíma fjölgaði ferðamönnum um
ríflega 21%. „Þetta skýrist m.a. af því að
mikil aukning hefur orðið á komum ferða-
manna yfir veturinn en þeir taka minna af
bílaleigubílum, og einnig varð þónokkur
fjölgun ferðamanna á skemmtiferðaskipum
og eru það ekki gestir sem eru líklegir til
að leigja bíl.“
Áhugaverðar breytingar hafa orðið á því
hvernig fólk leigir bíla og hversu lengi.
Bendir Steingrímur t.d. á að fleiri séu að
færa sig úr allra minnstu bílunum yfir í
stærri og betur útbúna bíla sem henta til
ferðalaga út fyrir borgina. Þá sé orðið
mjög sjaldgæft að bílar séu teknir á leigu í
margar vikur. „Þetta endurspeglar að fólk
um allan heim gerir minna af því að taka
löng sumarfrí og velur frekar að taka frí-
tímann út í fleiri en styttri ferðum yfir ár-
ið.“
Bílaleigugeirinn varð fyrir miklum skelli
í byrjun árs þegar gerðar voru breytingar
á gjöldum á nýja bíla. „Gjöldin hækkuðu
fyrirvaralaust og gátum við ekkert brugð-
ist við. Reksturinn verður að taka á sig
höggið því við erum fyrir löngu búin að
takst á hendur ákveðnar skuldbindingar
við önnur ferðaþjónustufyrirtæki.
Vonandi mun ný ríkisstjórn draga þessar
breytingar til baka eins og hægt er. Eins
og nú horfir verður lítið sem ekkert af-
gangs að sumri loknu og strax hægt að
greina neikvæð keðjuverkandi áhrif um
alla bílgreinina.“ ai@mbl.is
Svipmynd Steingrímur Birgisson
Geta ekki annað en
tekið á sig skellinn
Kostnaður „Reksturinn verður að taka á sig höggið því við erum fyrir löngu búin að takst á
hendur ákveðnar skuldbindingar,“ segir Steingrímur um hækkuð gjöld á bílaleigubíla.
Morgunblaðið/RAX
Ljósmyndari AFP tók þessa mynd
úr hæsta skýjakljúfi heims, Burj
Khalifa í Dubaí, í fyrradag, sem
sýnir útsýnið af toppi bygging-
arinnar yfir aðra og smærri skýja-
klúfa og til sjávarsíðunnar.
Í kjölfar hemsbankakreppu hefur
furstadæmið í Dubaí átt við gíf-
urlegan skuldavanda að glíma á
undanförnum árum, sem var afleið-
ing risavaxinna framkvæmda.
Skuldir furstadæmisins hlóðust
upp fyrir kreppuna, þegar hinar
miklu byggingarframkvæmdir
Dubaí stóðu sem hæst og gríðarleg
lán furstadæmisins eru nú mörg á
gjalddaga.
Þrátt fyrir þetta segir í frétt AFP
að efnahagur landsins sýni nú
ákveðin batamerki og horfur séu
ekki lengur jafnslæmar og áður.
Vinnustaður Burj Khalifa
AFP
Að varpa fram nýjum spurningum,
skoða nýjar leiðir og líta á óleyst
vandamál frá nýju sjónarhorni
krefst skapandi hugmyndaafls og
markar raunverulegar framfarir í
vísindum (Albert Einstein).
Í dag munu hugmyndasmiðir, á
aldrinum 10–12 ára, varpa fram nýj-
um spurningum og sínum hug-
myndum í Nýsköpunarkeppni
grunnskólanemenda. Markmið
keppninnar er að hvetja til sköp-
unargleði meðal grunnskólabarna og
skapa vettvang þar sem þau hljóta
þjálfun í að koma hugmyndum í
framkvæmd.
Vettvangur sem þessi, þar sem
sköpunarkraftur barnanna fær sín
notið og frumkvöðlahugsun er efld,
er góð fjárfesting til framtíðar. Það
vita þeir sem eitt sinn hafa fengið
snjalla hugmynd, því hugmyndin ein
og sér er oft lítils virði verði hún
ekki að veruleika. Þess vegna er
mikilvægt að hefja þjálfun í að fram-
kvæma hugmyndir snemma hjá
ungu kynslóðinni.
Leiðin frá hugmynd til nýsköp-
unar krefst þekkingar og færni á
fjölbreyttum sviðum. Á næstu dög-
um munu nemendur njóta leiðsagn-
ar og þjálfunar sérfræðinga með
breitt þekkingar-
og áhugasvið úr
atvinnulífinu og
fræðasamfélag-
inu. Segja má að
aðkoma þessara
fjölmörgu aðila
að keppninni end-
urspegli ágæt-
lega það um-
hverfi sem þarf til
að nýjar hugmyndir verði að veru-
leika. Því oftar en ekki markast ár-
angur í nýsköpun af samstarfi þeirra
aðila sem koma að verkefninu og
hversu vel þeim tekst að miðla þekk-
ingu sinni og auðlindum. Um helgina
munu ungu hugmyndasmiðirnir ein-
mitt spreyta sig á þessu sviði og
njóta góðs af þekkingu og styrk-
leikum jafnaldra sinna sem og leið-
beinenda.
Ef til vill verður einn stærsti lær-
dómur ungu frumkvöðlanna þetta
árið sá að nýsköpun spretti úr sam-
starfi.
Pistill frá Stjórnvísi
Nýsköpun sprettur
úr samstarfi
Nótt Thorberg
www.stjornvisi.is
Höfundur er markaðsstjóri
Marel á Íslandi