Morgunblaðið - 23.05.2013, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2013
9Afþreyingarbransinn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
E
flaust eru margir sem
öfunda Sigmar Gunn-
arsson af starfinu.
Sigmar á og rekur Go
Kart Höllina í Súð-
arvogi og getur því fengið að spana
um kappakstursbrautina eins og
hjartað lystir. „Það er óneitanlega
gaman að vinna hérna en skemmti-
legast af öllu er hvað viðskiptavin-
irnir njóta sín í kappakstursbraut-
inni og enginn fer héðan án þess að
vera með bros á vör,“ segir hann.
Go Kart Höllin verður þriggja
ára á þessu ári. Starfsemin hóf
göngu sína í Turninum í Smáralind
en flutti fljótlega í núverandi hús-
næði þar sem áður var timb-
urafgreiðsla Húsasmiðjunnar. Sig-
mar segir aðsóknina góða en það
þrengi m.a. að rekstrinum að leiga
á atvinnuhúsnæði er með hæsta
móti og leigusalar harðir í horn að
taka. „Það virðist gilda út um allan
bæ og sama hvernig húsnæði er um
að ræða að verðið er í hæstu hæð-
um. Eigendur virðast upp til hópa
mjög ósveigjanlegir í samningum
og láta húsnæði frekar standa autt
en að veita einhverja tilslökun hvað
snýr að verðinu.“
Í gegnum tíðina hafa margir
spreytt sig á að reka Go Kart fyr-
irtæki en fáir orðið langlífir í þess-
um bransa. Sigmar segir fjöl-
breyttar ástæður fyrir því hvers
vegna önnur fyriræki á þessu sviði
hafi ekki enst lengi en í dag eru tvö
Go Kart fyrirtæki starfandi á höf-
uðborgarsvæðinu og virðist mark-
aðurinn bera þann fjölda ágætlega.
„Og ef eitthvað er þá eru enn ýmis
tækifæri sem hægt er að nýta til að
gera enn betur. Til dæmis væri
gaman að bæta við kappakst-
ursbrautina eins konar sport-bar
þar sem gestir gætu gert sér glað-
an dag eftir aksturinn. Mætti þann-
ig halda fólkinu lengur hér hjá okk-
ur og selja hverjum og einum meira
af vöru og þjónustu.“
Gaman saman
Sigmar segir reksturinn að stórum
hluta drifinn áfram af vinnustaða-
hópum og vinahópum. Fyrirtæki
sendi starfsmenn oft í Go Kart til
að gera sér dagamun og hrista
saman hópinn en eins sé vinsælt
t.d. á afmælisdögum eða í steggja-
veislum að líta inn í Go Kart. Sig-
mar segir Go Kart falla í flokk með
nokkrum öðrum afþreyingarmögu-
leikum sem í boði eru þar sem hver
valkosturinn hafi sína kosti og
galla. Setja má í einn hóp Go Kart,
litbolta, ferð í tívolí og svo keilu.
„Go Kart tvinnar það saman að
vera spennandi afþreying sem um
leið er aðgengileg fyrir fólk á öllum
aldri og af báðum kynjum. Ef t.d.
starfsmanna- eða vinahópurinn er
mjög fjölbreyttur er hætta á að
ekki séu allir jafnhrifnir af að fara í
litbolta, eða geti fundið eitthvað við
sitt hæfi með heimsókn í leik-
tækjagarð. Keila er sennilega hag-
kvæmasti kosturinn enda hægt að
vera lengi í brautinni ef margir eru
að spila saman, en þá kemur á móti
að leikmenn þurfa að skiptast á að
kasta kúlunni og þátttakan og
virknin ekki sú sama og í hinum af-
þreyingarmöguleikunum.“
Sumarið er sterkasti sölutím-
inn en það hægir m.a. á vetr-
araðsókninni að þó Go Kart höllin
sé undir þaki þá er húsið ekki upp-
hitað og því sami hiti utandyra og
innandyra. Á sumrin gefast líka
tækifæri til að fá góðar aukatekjur
með því að koma upp ökubraut á
vinsælum bæjarhátíðum. „En þá er
samt verið að veðja á veðrið. Ef það
tekur að rigna þá er það bara tóm-
ur kostnaður að vera með Go Kart
á bæjarhátíð en ef veðrið er gott
snýst dæmið alveg við og brautin í
notkun frá morgni fram á kvöld.“
Dýrt húsnæði er helsti vandinn
Neytendur á höfuðborgarsvæðinu hafa úr ýmsum kostum að velja þegar kemur að afþreyingu Enn eru ýmis tækifæri ónýtt í geiranum
Morgunblaðið/Rósa Braga
Hraði Sigmar segir margt í boði og valkostirnir hafi hver sína kosti og sína
galla. Go Kart nýtur vinsælda hjá vinahópum og í hópeflisferðum.
Þó Go Kart bílarnir hans Sig-
mars geri varla annað en aka í
hringi eftir sömu brautinni þá
fær reksturinn engan afslátt af
þeim gjöldum sem ríkið tekur af
bifreiðum almennt til að halda
úti vegakerfinu. „Go Kart bílarn-
ir sjálfir lenda í 30% tollflokki
þó þeir muni aldrei aka eftir
vegakerfinu og bensínið sem fer
á bílana okkar er á alveg sama
verði og venjulegir neytendur
þurfa að borga við dæluna.“
Sleppa
ekki við
vega-
gjöldin
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Með Borgun tekur þú
við öllum kortum
– hvar og hvenær sem er
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Loksins virka
debetkort á netinu
Það eru álíka mörg debet- og kreditkort í umferð á Íslandi.
Tekur þín vefverslun við öllum kortum?
Fáðu frekari upplýsingar á www.borgun.is eða í síma 560 1600