Akureyri - 12.12.2013, Page 1
12. desember 2013
47. tölublað 3. árgangur V I K U B L A Ð – N O R Ð U R L A N D
Mjúku jólapakkarnir eru í Lín Design
Náttföt
0-10 ára
3.990 kr Glerártorgi Akureyri Laugavegi 176 lindesign.is
Ofnhanski
margar gerðir
1.990 kr
Rúmföt
verð frá
9.990 kr
Svunta
margar gerðir
2.790 kr
Ker og brettiUpplýsingar takk fyrir!
PROMENS DALVÍK • GUNNARSBRAUT 12 • 620 DALVÍK • SÍMI: 460 5000www.promens.com/dalvik
Sæplastkerin fást nú með MIND rekjanleikakerfi
Bakslag í uppbroti kynjakerfis
„Ég hef sagt það í bréfi til félagsmálaráðs
að átökin séu birtingarmynd þess að hér
höfum við staðið fyrir breytingum sem
varða gildi og hefðir. Þetta með karlana
ögrar og ógnar vafalítið sumum. En það
er líka gaman að takast á við þá áskorun,“
segir Halldór S. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Öldrunarheimila Akur-
eyrar (ÖA).
Margar fréttir hafa verið fluttar af
þeim jákvæðu áhrifum sem talin eru
hafa orðið af þeirri stefnubreytingu
undir stjórn Halldórs að stórfjölga
körlum í umönnunargeiranum hjá ÖA.
En breytingar geta tekið á að hans sögn.
Nokkur hluti starfsfólks ÖA hefur sent
mótmælabréf til Jafnréttisstofu og fé-
lagsmálaráðs vegna óánægju. Deilt er á
vaktafyrirkomulag og launaumhverfi og
starfsmenn segja í samtölum við blaðið
að karlar fái nú einir fulla vinnu. Það
megi kalla „kynbundið ofbeldi“.
Halldór segir þetta rangt. Hann seg-
ir ákveðinn minnuhlutahóp ósáttan við
breytingar og þar á meðal aukið hlutfall
karla á vinnustaðnum. Út frá rótgrónu
samfélagslegu viðhorfi megi rekja úlfúð
hjá hluta starfsmannahópsins til þess að
aukið hlutfall karla í umönnunargeir-
anum fari illa í þá sem séu mótaðir af
gamaldags hugsun kynjakerfisins.
„Þarna er fullt af vel þenkjandi fólki
en ákveðinn kjarni er ekki hrifinn af
breytingum.“
Sjá bls. 4
AÐVENTUKVÖLD lýsa upp myrkrið þessa dagana. Andakt fermingarbarnanna í Svalbarðskirkju er auðsæ. Nú eru aðeins 12 dagar til jóla. Völundur