Akureyri


Akureyri - 12.12.2013, Blaðsíða 13

Akureyri - 12.12.2013, Blaðsíða 13
1312. desember 2013 Ævintýraeyjan Hrísey Ég ólst upp í Hrísey á sjöunda og átt- unda áratugnum. Það var að sönnu ævintýralegt – eins og ég býst við að umhverfi flestra barna á flestum tím- um sé. Uppeldisárin mörkuðust tölu- vert af sérstöðu eyjasamfélagsins; nokkurri einangrun og fremur ein- hæfum starfsháttum heimamanna. Líf barnanna var þó aldrei einhæft, þar ríkti sjálfræði og frelsi. SKEMMTILEGAST AÐ STÖKKVA OFAN AF HÚSUM Leikvöllurinn var stór og margt við að vera: Landaparís niðri á Sandi, draugagangur undir Plani, feluleikur í risastórri og yfirgefinni Síldarverksmiðjunni. Það var skott- ast í eggjatöku upp á ey, krækiber seld í bréfpokum á tröppum Gamla hússins, kanínu- og dúfna- kofar byggðir og sullast um á gonnum í höfninni. Sund- laugin var opin á sumrin og þá var farið í skyldusund að morgni, leiksund síðdegis og sundæfingu eftir kvöld- mat. Á veturna var yfirleitt snjóþungt og börnin byggðu margra herbergja snjóhús og lýstu upp hvern kima með logandi kertum. Skemmti- legast var að stökkva ofan af húsum í snjóskaflana. Öll hlökk- uðum við líka til þess að slá köttinn úr tunnunni á Öskudaginn („köttur- inn“ var nú reyndar hrafn eða jafnvel múkki). Allir komu saman vestan við frystihús í heimagerðum búning- um og hengdu öskupoka aftan á þá sem ekki uggðu að sér. Loks gengu skólabörnin öll saman í hvert einasta hús í eynni og sungu „Nú er frost á fróni“ og fleiri napra vetrarsöngva. Í ferð með var baukur sem áheyrendur lögðu smápeninga í til söfnunar fyr- ir skólaferðalag vorsins. Í lok söng- göngunnar fengu börnin lítinn poka af gotti hjá Ottó í búðinni. Þar lágu dísætar grænar Freyju-karamellur, perubrjóstsykur, súkkulaðivindlar, möndlur og krembrauð. Kannski Lindubuff eða Rjómatoffí. Namm. LAS MEIN KAMPF Í LJÓSLEYSINU Svo var það Barnaskólinn. Þar fengu börnin að kynnast nýjum, skrítnum kennurum á hverju skólaári. Þeir héld- ust aldrei lengi við í starfinu – þetta voru oft ungmenni með ævintýraþrá, í mesta lagi nýskriðin úr menntaskóla, nú eða undarlegir kvistir sem fengu hvergi annars staðar vinnu. Sennilega hefur ekki þótt fýsilegt að eyða vetr- um á svona stað, í fámenni og jafnvel rafmagnsleysi svo dögum skipti. Sæ- strengurinn átti til að fara í sundur í vetrarveðrum. Fyrir börnin var það nú bara spennandi tími. Í ljósleysinu var ýmislegt brasað. Ég átti forláta lukt (vasaljós) sem gagnaðist mér ágæt- lega við bóklestur í myrkrinu. Þannig las ég Mein Kampf eftir sjálfan Ad- olf Hitler. Nei, nei, ég var ekkert lítill nasisti enda fannst mér bókin atarna alveg þrautleiðinleg. Málið var að Lestrarfélag Hríseyjar var til húsa í litla skólanum okkar og þar var hægt að skoða bækur á hverjum degi. Satt best að segja var ég bara búin að lesa allar barnabækurnar í safninu (Enid Blyton-bækurnar ótal sinnum) og þá tóku fullorðinsbókahillurnar við. PRESTURINN MEÐ BLÚNDUNÆRBUXURNAR En aftur að kennurum (kennarar hafa svo gaman af skólasögum). Ekki voru allir lærifeðurnir undarlegir aðkomumenn. Og þó, kannski þegar vel er að gáð. Sá allra skemmtileg- asti var einmitt presturinn, séra Kári Valsson. Hann kom upprunalega frá Tékkóslóvakíu og átti ótrú- lega sögu að baki þegar hann hóf prestsstörf í Hrísey, t.d. úr fangabúðum í seinni heimsstyrjöldinni. Kári vildi endilega að bráðung einka- dóttirin lærði dönsku löngu áður en að því kom í skólan- um en hún var nú ekki ýkja hrifin af þeirri hugmynd. Hann sannfærði því jafn- aldrana um að takast á við verkefnið með henni. Kári hafði framúrstefnulegar aðferðir við dönskukennsluna. Löngu síðar fór ég í máladeild í menntaskóla og lagði stund á ein fimm tungumál en ekkert í þeim skóla líktist aðferðum Kára. Hann hefur kannski komist í skrif snillingsins Dewey þó sá merki kennimaður yrði ekki vinsæll meðal Íslendinga fyrr en áratugum síðar. Málið var að hann kenndi í verki og gegnum leik. Við börnin fengum að leika með orðin, þreifa og bragða á tungumálinu; bókstaflega! Eft- irminnilegastir eru tímarnir þegar við lærðum orðaforðann um mat því þá fengum við að smakka ýmislegt framandi – Kári borðaði fífla og hvít- lauk sem þá þótti stórfurðulegt – við supum á límonaði úr gostappa sem gekk á milli og sögðum flissandi til skiptis „limonade“. Við lærðum hvað „spøgelse“ þýddi þegar hann sveif um og baulaði draugalega undir hvítu laki. Einu sinni dró hann upp gömlu gleraugun sín til kenna okk- ur orðatiltækið „gå i stykker“. Án þess að orðlengja það frekar fleygði hann „brillerne“ í gólfið og stappaði kröftuglega ofan á þeim! Mest hlóg- um við þó þegar presturinn mætti með risastórar blúndunærbuxur af eiginkonunni og kenndi okkur að segja „trusser“. Það var mér nánast um megn. Orðið var eiginlega of líkt orði sem var harðbannað að láta sér um munn fara. Við lyppuðumst bara niður í hláturkasti. Kári var samt glaðastur allra og greinilega hefur kennslufræðin hans virkað því orðin man ég enn. a Upprisa Svalbarðseyrar í skjóli Vaðlaheiðarganga – Af hverju ekki? Af hverju nýtir sveitarstjórn Sval- barðsstrandarhrepps sér ekki fyr- irhuguð Vaðlaheiðargöng til að efla menningu sveitarfélagsins? Felast einhver sóknarfæri í því, kynnu einhverjir að spyrja? Að fá göng sem eru töluvert sunnan við Sval- barðseyri, eina þéttbýliskjarnann á svæðinu? Munu göngin ekki draga svo verulega úr umferð um svæðið að öll áform um uppbyggingu ferða- iðnaðar reynast andvana fædd hug- mynd? Stórt er spurt. Svalbarðseyri hefur hingað til, eða í það minnsta mörg undanfarin ár, ekki laðað ferðamenn að í miklu magni þrátt fyrir mikla umferð um þjóðveg 1 austan Svalbarðseyrar. Þar liggur kannski hundurinn grafinn. Stað- urinn er einfaldlega of nálægt Akureyri til þess að fólk sjái hag í því að staldra við. Ýmist er fólk nýlagt af stað frá Akureyri á leið austur fyrir eða það er komið svo nálægt bænum að austan að það sér í hyllingum möguleikann á að klára langt og strangt ferðalag og brunar því í bæinn. Þegar við bætist skortur á afþreyingu, þjónustu eða öðru sem fólk kallar eftir er ekki nema von að bílarnir þjóti hjá. En hvernig geta göngin hjálpað til við að koma Svalbarðsstrandarhreppi á kortið þegar þau beina umferðinni frá svæðinu? Jú, í spurningunni felst einmitt svarið. Nú er lag fyr- ir Svalbarðsstrandarhrepp. Þegar staðurinn er ekki lengur í alfaraleið, þar sem ekkert annað kemst að hjá ferðalöngunum en að komast sem hraðast til eða frá Akureyri, má draga upp nýja og ferskari mynd af staðnum sem ekki var framkvæm- anlegt áður. Og hvernig yrði hin nýja ímynd Svalbarðseyrar og ná- grennis? Meginþemað yrði rólegheit, þægindi, sveitarómantík og annars konar „kósíheit“ en þó jafnframt með iðandi mannlífi. Hinn rólegi áfangastaður Svalbarðseyri þar sem gesturinn fær frið frá hraðanum og látunum á þjóðveginum og í þétt- býlinu. Þó Svalbarðseyri standi ekki lengur við þjóðveginn er nálægðin við hann nægilega mikil til að hægt sé að fá fólk á staðinn. Grunnurinn er þannig lagður án þess að stinga niður skóflu. Framkvæmdir af þeirri stærðargráðu sem Vaðlaheiðargöng eru hlýtur að vera hægt að nýta til að vekja athygli á svæðinu. Það er svo bara í höndum heimamanna hvort og þá hvernig þeir grípa tækifær- ið. Nú þegar er ýmislegt til staðar sem sveitarfélagið getur boðið upp á. Alltaf má nýta íslenska náttúru til sjálfbærrar ferðamennsku þó ekki væri nema að bjóða upp á göngu- ferðir og náttúruupplifun. Gaman væri að geta sest niður á notalegu kaffihúsi á Svalbarðseyri eða keypt sér rjómaís í ísbúðinni sem notast við hráefni úr heimabyggð. Af hverju ekki að bjóða upp á skipulagðar gönguferðir í Vaðlaheiði með óvið- jafnanlegu útsýni yfir fjörðinn? Hver veit nema göngufók rekist á sjálfan Þorgeirsbola! Af hverju ekki að búa til einhverskonar atvinnuskapandi ferðamennsku yfir vetrartímann t.d. á svæðinu þar sem snjósleðafólk þeysist um á Víkurskarðinu? Auðvit- að þarf sveitarfélagið að vinna með nágrannasveitarfélögum og leggja til fjármagn en það má sníða sér stakk eftir vexti í þessu eins og öðru. Gæti sveitarstjórnin aðstoðað íbúa sveitarfélagsins við að fjármagna litlar eða meðalstórar framkvæmdir til eflingar ferðamennsku á svæðinu? Með því myndi skapast grundvöllur fyrir sameiginlegu átaki yfirvalda og einstaklinga til að glæða svæðið lífi. Áætlað er að göngin verði tekin í notkun seinni hluta ársins 2016. Það er því ekki seinna vænna fyrir íbúa Svalbarðsstrandarhrepps að hefja undirbúning að menningarátaki í heimabyggð í skjóli Vaðlaheiðar- ganga. Viðskipta og menningarhug- mynd á krepputímum? Af hverju ekki? a ÁRNÝ HELGA REYNISDÓTTIR skrifar RÓLEGHEIT, ÞÆGINDI OG sveitarómantík á Svalbarðseyri. HRÍSEY ÚR FJARSKA

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.