Akureyri


Akureyri - 12.12.2013, Page 14

Akureyri - 12.12.2013, Page 14
14 12. desember 2013 Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is Helga Kvam allskonar.is mATArGATIÐ FLeIrI UPPsKrIFTIr Á WWW.ALLsKONAr.Is Rauðkál með ediki og fennelfræjum » 2 msk repjuolía » 1 msk fennelfræ » 3 skallottulaukar, sneiddir » 1 epli, flysjað og í litlum bitum » 1 lítið rauðkálshöfuð, í sneiðum eða bitum » 1 kanilstöng » 1 dl balsamedik » 1 msk rifsberjahlaup » 1 msk smjör » salt og pipar » handfylli steinselja, fínsöxuð Undirbúningur: 15 mínútur Eldunartími: 60 mínútur Settu olíu í pönnu og steiktu fenn- elfræin í 1 mínútu í heitri olíunni þar til þau fara að ilma. Bættu þá við skallottulauknum og steiktu þar til gullinn. Þá næst seturðu eplin og rauðkálið út í og veltir við saman. Helltu nú edikinu út í ásamt rifs- berjahlaupinu og kanilstönginni og hrærðu vel. Láttu malla undir loki við lágan hita í 45 mínútur. Hrærðu annað slagið. Þegar kemur að því að bera fram þá hrærirðu smjöri saman við, smakkar til með salti og pipar og stráir steinseljunni yfir. a 14 börn á fjalirnar Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Akureyrar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Egill Heiðar Anton Páls- son leikstýrir verkinu en það er nú sett upp í fjórða sinn hjá LA. Sýningin er hátíðarsýning félagsins á 40 ára atvinnuafmæli þess. Meðl annarra taka fjórtán börn þátt í sýningunni. Verkið fjallar um uppgjör kerlingar við líf sitt og Jón mann sinn. Ferðalag hennar til hins gullna hliðs með sálartetur bónda síns í skjóðu er löngu orðið þekkt í íslenskum leikbókmenntum og leitast uppfærslan við að vera trú þessari reisu og varpa ljósi á hvaðan við komum. Hljómsveitin Eva með þær Sigríði Eir Zoph- oníasardóttur og Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur innan- borðs semja nýja tónlist við verkið og taka þátt í upp- færslunni með lifandi tónlistarflutningi. Með hlutverk kerlingarinnar fer María Pálsdóttir sem eftir nokkuð hlé stígur aftur á fjalirnar hjá LA. Auk hennar leika Aðalbjörg Árnadóttir, Hannes Óli Ágústsson, Hilmir Jensson og fjórtan nemendur úr Leiklistarskóla Leikfé- lags Akureyrar í sýningunni. Egill Ingibergsson hannar leikmynd og lýsingu, Helga Oddsdóttir hannar búninga, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir er aðstoðarleikstjóri og Gígja Hólmgeirsdóttir aðstoðarkona er í starfsnámi hjá LA. Frumsýning er 17. janúar. ÚR FORMÁLA GULLNA HLIÐSINS: Hér verður grýttur götuslóði rakinn, og gömul kynslóð upp frá dauðum vakin, svo þeir, sem ungir eru, megi skilja, hið innra stríð, sem liðnir tímar dylja. Því þar á trú vor, ef að líkum lætur, í leyndu djúpi sínar meginrætur. Aldirnar líða. Kynslóðirnar hverfa. En hvað er það, sem börnin erfa? Davíð Stefánsson FRÍÐUR HÓPUR BARNA tekur þátt í Gullna hliðinu sem frumsýnt verður í Samkomuhúsinu innan skamms. Gígja Hólmgeirsdóttir.

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.