Akureyri


Akureyri - 12.12.2013, Page 21

Akureyri - 12.12.2013, Page 21
2112. desember 2013 DAGUR, 15 ÁRA VERÐIÐ GILDIR Dagur er að leita að gjöfum en hann er líka í símanum þegar Akureyri vikublað truflar hann stutta stund. Þrátt fyrir ungan aldur segist hann kaupa þó nokkuð af gjöfum. Honum finnist „kózý“ að kaupa gjafir á Glerártorgi. Þar sé hvorki kuldi né hret. Spurður eftir hverju hann fari einkum þegar hann leiti fanga svarar hann stutt og laggott: „Verðinu.“ Dagur upplýsir að ein minnisstæðasta jólagjöf sem hann hafi fengið hafi haft töluverð áhrif á líf hans. Það var þegar hann fékk hljómflutningstæki í jólagjöf. Sú gjöf hafi aukið á tónlistaráhugann og enn nýti hann græjurnar vel. Við látum þann unga mann eiga lokaorð viðmælenda. Saman- dregið birtist sú mynd af kaupendum að þeir færu sér rólega, væru alls ekki helteknir af kaupæði en nytu aðventunnar. Kannski er meira stress fyrir sunnan? HLÍN BOLLADÓTTIR BÆKUR BESTU GJAFIRNAR Hlín Bolladóttir var sá viðmælandi blaðsins sem virtist leggja einna minnst upp úr því sem sumir kalla jólagjafafár. Hún sagðist ekki eyða miklum peningum í gjafir, væri hófsöm í innkaupum. Bækur væru að jafnaði ofarlega á listan- um þegar kæmi að vali. Sjálf hefði hún fengið urmul af bókum í jóla- gjöf í gegnum tíðina. Hlín segist ekki verja miklum tíma í leit að gjöfum. Hafi um svo margt annað að hugsa. INGA HULD OTTÓSDÓTTIR PERSÓNULEGAR GJAFIR BESTAR „Það fer eftir ýmsu,“ segir Inga Huld Ottósdóttir, spurð hverju hún leggi mest upp úr við að finna réttu jólagjöfina. Hún telur að jafnaði erfiðara að finna gjafir handa fullorðnum en börnum og segir mikinn tíma fara í að kaupa jólagjafir. „En það er gefandi tími“. Ingu Huld finnst þægilegt að kaupa inn á Glerártorgi og telur að nokkurn hluta gjafanna í ár muni hún kaupa þar. Hins vegar búi hún einnig sjálf til nokkurn hluta gjafanna. „Mér finnst sjálfri skemmtilegast að fá persónulegar gjafir og ekki sakar ef ég veit að sá sem gefur gjöfina hefur eytt miklum tíma í hana. Það sýnir með órækum hætti að fólki er ekki sama um þann sem fær jólagjöfina.“ MAGNÚS MÁR ÞORVALDSSON SKEMMTILEGRA AÐ GEFA EN ÞIGGJA „Já, ég er jólabarn og hef alltaf gefið mikið af jólagjöfum. Það helgast nú aðallega af því að ég er örlátur að eðlisfari og finnst miklu skemmti- legra að gefa en þiggja,“ segir Magnús Már Þorvaldsson sem sat við konu og kaffisopa á Glerártorgi að loknum vel heppnuðum innkaupum. Hann segist gefa því góðan tíma að kaupa jólagjafir. „Já, þetta er tímafrekt en mjög skemmtilegt.“ Magnús Már getur þess einnig kankvís að út frá hagkvæmnis- sjónarmiði væri náttúrlega mun skynsamlegra að geyma að kaupa allar gjafir fram yfir áramótin þegar varningur ýmiss konar verður seldur á brunaútsölum. Kostar þá aðeins brot af því sem hann gerir nú rétt fyrir jólin. „Verslunarmenn fara dálítið illa með okkur en ég tek fullan þátt í þessu með þeim.“ Spurður hvar á Akureyri Magnús Már kaupi sínar gjafir segist hann bæði kaupa þær í gamla miðbænum og á Glerártorgi. „Miðbærinn og hans töfrar eru órofa tengdir tilhlökkun jólanna frá því að ég var barn og ólst upp hér á Akureyri. Okkur ber skylda til að halda lífi í miðbæn- um. Ég er ennþá grátklökkur yfir því að Hólabúðinni hafi verið lokað.“

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.