Akureyri


Akureyri - 12.12.2013, Qupperneq 23

Akureyri - 12.12.2013, Qupperneq 23
Netkerfi ehf | Fjölnisgata 6c | 603 Akureyri | Sími 4600400 | netkerfi@netkerfi.is facebook.com/Netkerfiogtolvur | www.netkerfi.is Okkur vantar sérfræðing í vinnu! Netkerfi óska að ráða tæknimann Starfið felst í tækniþjónustu á verkstæði Netkerfa ásamt vettvangsþjónustu hjá viðskiptavinum. Markmiðið með starfinu er að tryggja framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina félagsins. Starfið býður upp á töluverðan sveigjanleika en á móti geta komið álagstímar þar sem viðkomandi starfsmaður þarf að geta unnið eins og þurfa þykir hverju sinni. Starfið krefst starfsmanns sem getur unnið sjálfstætt og hefur frumkvæði. Starfið krefst mikilla samskipta og samvinnu við bæði starfsmenn og viðskiptavini og því er hæfni í mannlegum samskiptum lykilatriði í starfinu. Umsóknarfrestur er til og með 23. Desember nk. Umsóknum skal skilað ásamt fylgigögnum á netfangið atvinna@netkerfi.is Um framtíðarstarf er að ræða, góð laun í boði fyrir rétta aðila. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Björn Þórhallsson í síma 893-1707. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið gunnar@netkerfi.is. Menntunar- og hæfniskröfur: Einhver eftirfarandi Microsoft gráða er kostur: MCITP, MCSE, MCTS Reynsla af uppsetningu og notkun á Cisco búnaði Reynsla af Microsoft HyperV og Vmware er kostur Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið háskólanámi eða grunnnámi í rafiðnaði eða rafeindavirkjun Hæfni í mannlegum samskiptum Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Starfssvið: Uppsetning og viðgerðir á tölvubúnaði (borðtölvum, fartölvum og netþjónum) Vettvangsþjónusta til viðskiptavina Uppsetning og viðgerðir á stýrikerfum Uppsetning á netbeinum og víðnetsbúnaði Uppsetning á hugbúnaði Greining á upplýsingatæknivandamálum

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.