Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Kostnaðarhlutdeild krabbameins-
sjúklinga í lyfjakostnaði og allri heil-
brigðisþjónustu er orðin alltof há hér
á landi. Það kemur fram í nýrri
skýrslu Krabbameinsfélagsins um
vaxandi útgjöld krabbameinssjúkl-
inga sem var unnin af dr. Ingimari
Einarssyni fé-
lagsfræðingi og
ráðgjafa um heil-
brigðismál.
Krabbameins-
félagið óskaði eft-
ir sundurliðuðum
upplýsingum frá
Landspítalanum
um fyrir hvaða
þjónustu spítal-
ans brjósta-
krabbameins-
sjúklingar greiði úr eigin vasa þegar
ekki hefur verið um eiginlega inn-
lögn að ræða. Kom í ljós að komu-
gjöld og rannsóknir sjúklings sem
fer í skurðaðgerð, uppbyggingu
brjósts og lyfjameðferð er kominn
upp í 215.000 krónur.
Gyða Kristófersdóttir greindist
með brjóstakrabbamein fyrir sléttu
ári. Hún hefur haldið vel utan um all-
an kostnað í kringum krabbameins-
meðferðina. „Minn hlutur, sem ég er
búin að borga á einu ári, hljóðar upp
á 660.000 kr. Þá er afleiddur kostn-
aður meðtalinn eins og greiðslur í
stöðumæli í hvert einasta skipti sem
ég kem á spítalann og stöðumæla-
sektir ef maður er lengur en gert er
ráð fyrir,“ segir Gyða.
„Inni í þessari upphæð eru t.d. lyf
en lyfjakostnaðurinn jókst mikið í
vor þegar lögum um sjúkratrygging-
ar var breytt. Þá eru ákveðin krem,
umbúðir, sá hluti sem ég þurfti að
borga í hárkollu og augabrúnatattúi,
brjóst og sérstakir brjóstahaldarar
og lyfjabrunnur sem kostaði mig
fjörutíu þúsund krónur.“
Spyr ekki um stétt né stöðu
Gyða á eftir eina lyfjameðferð og
uppbyggingu brjósts og gerir ráð
fyrir að um 230.000 kr. að minnsta
kosti eigi eftir að bætast við. Hún
áætlar að í lokin verði hún búin að
reiða fram um milljón úr eigin vasa
vegna krabbameinsmeðferðar.
„Það er gífurlegur kostnaður á
bak við þetta og það er ekki fræði-
legur möguleiki að fjármálin geti
gengið upp hjá fólki. Krabbamein
spyr hvorki um stétt né stöðu. Ég
þarf að forgangsraða og sleppi því
frekar að borga af einhverju öðru til
að geta borgað af meðferðinni. Ég
held lífi og annað bíður á meðan en
þegar þetta endar get ég vonandi
farið að taka til í fjármálunum,“ seg-
ir Gyða, sem er einstæð móðir.
Önnur kona með krabbamein sem
blaðamaður ræddi við segir að frá
því í lok mars hafi komu- og rann-
sóknargjöld á Landspítalanum kost-
að hana 140.000 kr. Þá er lyfjakostn-
aður og annar kostnaður ekki talinn
með. Hún segir að það hafi komið sér
á óvart hvað hún þurfi að borga mik-
ið sjálf, þetta sé mjög erfitt fjárhags-
lega en hún á að vera í meðferð út
desember. Karlmaður með sortuæxli
segir að kostnaður við meðferð í sex
mánuði hafi farið upp í 180.000 kr.
Á að samræma niðurgreiðslur
„Það er misskilningur að halda að
það að vera veikur á Íslandi kosti
ekki neitt,“ segir Ragnheiður Har-
aldsdóttir, forstjóri Krabbameins-
félags Íslands. Niðurstöður skýrsl-
unnar komu henni ekki á óvart. „En
það kom mér á óvart þegar skýrslan
kom út var hvað niðurstaðan kom
mörgum á óvart. Í skýrslunni eru
dregnar saman upplýsingar sem eru
til í opinberum gögnum en þegar
þær voru settar saman í eina skýrslu
urðu margir undrandi.“
Ragnheiður segir að það sé mjög
mismunandi hvað sjúklingar þurfa
að greiða eftir því hvar þeir lenda í
kerfinu, en heilbrigðisráðherra hef-
ur skipað nefnd sem á að samræma
niðurgreiðslur til sjúklinga.
„Þeir sem greiða mest eru þeir
sem eru ekki lagðir inn á spítala, þeir
sem fá þjónustu utan sjúkrahúsa og
þeir sem þurfa mikið af þeirri þjón-
ustu sem ríkið tekur ekki þátt í eins
og sálfræðiþjónustu og sjúkraþjálf-
un,“ segir Ragnheiður.
Kostnaður við krabbameins-
meðferð er mörgum þungur
baggi að sögn Ragnheiðar
og jafnvel svo að sjúklingar
ráði ekki við aðstæður fjár-
hagslega. „Þess eru dæmi
að fólk taki þá ákvörðun að
kaupa ekki þá þjónustu
sem er talin nauðsyn-
leg í veikindunum
vegna fjárhags.“
Aukin útgjöld krabbameinssjúkra
Kona með brjóstakrabbamein hefur þurft að borga 660.000 kr. á einu ári úr eigin vasa fyrir krabba-
meinsmeðferð „Það er misskilningur að halda að það að vera veikur á Íslandi kosti ekki neitt“.
Morgunblaðið/Eggert
Meðferð Það getur reynst kostnaðarsamt að greinast með krabbamein.
Á formannafundi aðildarfélaga
Krabbameinsfélags Íslands í
september var lýst yfir áhyggj-
um af alvarlegri stöðu íslenska
heilbrigðiskerfisins. Fundurinn
skoraði á stjórnvöld að draga úr
óhóflegum útgjöldum þeirra
sem greinast með alvarlega
sjúkdóma. Í skýrslunni kemur
fram að á síðustu þremur ára-
tugum hefur greiðsluþátttaka
heimila og einstaklinga í heil-
brigðiskerfinu tvöfaldast og var
um 30 milljarðar árið 2012.
„Greiðsluþátttaka sjúklinga í
heilbrigðiskostnaði á Íslandi er
meiri en í nágrannalöndum og
að óbreyttu mun efnahagur
sjúklinga ráða æ meiru um sjúk-
dómsmeðferð. Fundurinn skorar
á stjórnvöld að auka framlög til
íslenska heilbrigðiskerfisins og
létta um leið byrðar þeirra sem
þurfa að nýta þjónustu þess,“
segir í áskorun fundarins.
„Í skýrslunni eru bara opin-
berar tölur um beinar greiðslur.
Það er ekki komið inn á kostn-
aðinn sem fjölskyldan verður
að leggja út í við þessar að-
stæður, eins og ferðakostn-
að, barnagæslu, atvinnutap
og slíkt,“ segir Ragnheið-
ur.
Tvöfaldast
á 30 árum
KOSTNAÐURINN
Vihjálmur A. Kjartansson
Kjartan Kjartansson
Farbann yfir ökumanninum sem lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti
að stöðva með valdi á mánudags-
kvöld var staðfest í Hæstarétti í gær.
Maðurinn ók á annan bíl við Rauða-
vatn og stakk síðan af frá vettvangi á
bílnum sem hann rakst á. Hann er
einnig ákærður fyrir nauðgun og
fíkniefnalagabrot vegna ræktunar á
70 kannabisplöntum. Þá er hann
grunaður um kynferðisbrot.
Málið er enn í rannsókn, að sögn
Árna Þórs Sigmundssonar, aðstoð-
aryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. „Það er verið
að rannsaka aðdraganda slyssins,
yfirheyra vitni, bíða eftir sýni úr
ökumanninum og fá heildstæða
mynd af því sem gerðist,“ segir Árni
en töluverður viðbúnaður var hjá
lögreglunni vegna málsins á mánu-
dagskvöldið.
Hélt áfram á þremur dekkjum
Maðurinn er sagður hafa ekið yfir
á rauðu ljósi við gatnamót Breið-
holtsbrautar og Selárbrautar rétt
sunnan við Rauðavatn og inn í hlið-
ina á bíl sem var að koma yfir gatna-
mótin á grænu ljósi. Bíll ökumanns-
ins var óökuhæfur eftir áreksturinn
en í kjölfarið gekk maðurinn að bif-
reiðinni sem hann ók á og krafðist
þess að kona sem ók þeirri bifreið
kæmi út henni. Konan neitaði og dró
maðurinn hana þá út úr bílnum og ók
á brott á honum eftir Breiðholts-
braut í vesturátt.
Lögreglan veitti manninum eftir-
för og fór m.a. annað framdekkið
undan bifreiðinni skammt frá Álfa-
bakka. Ökumaðurinn hélt engu að
síður för sinni áfram á þremur
dekkjum. „Hann keyrði töluverða
vegalengd og fór m.a. í gegnum aust-
urbæ Kópavogs, Breiðholtsbraut og
endaði á Kringlumýrarbraut þar
sem hann var stöðvaður af lögregl-
unni og handtekinn,“ segir Árni.
Meiðsli ekki alvarleg
Engin alvarleg slys urðu á fólki í
eltingarleiknum en einn lögreglu-
maður slasaðist við handtökuna.
„Meiðsli lögreglumannsins eru ekki
alvarleg sem betur fer. Hann meidd-
ist í atganginum þegar búið var að
stöðva bíl ökumannsins og maðurinn
var handtekinn.“
Neyðarúrræði lögreglunnar
Ökumaðurinn ók með vítaveðrum
hætti á móti umferð og um tíma á
þremur dekkjum.
„Það skemmdust ökutæki þegar
hann var stöðvaður enda þurftum við
að beita því úrræði að þvinga hann út
af veginum,“ segir Árni en sú
ákvörðun var tekin þegar talið var að
ökumaðurinn yrði ekki stöðvaður
með öðrum hætti. „Þetta er alltaf
erfið ákvörðun að taka en hann var
að aka á móti umferð á Kringlumýr-
arbraut og mikil hætta var á stór-
slysi vegna aksturs hans. Það lá því
ljóst fyrir að við gátum ekki leyft
honum að keyra lengur á móti um-
ferð og skapa hættu fyrir aðra veg-
farendur. Þess vegna var gripið til
þess ráðs að keyra utan í hann og
stöðva hann með þeim hætti.“
Fjöldi lögreglumanna tók þátt í
aðgerðinni og mikil mildi er að ekki
urðu alvarleg slys á fólki. Ekki er
vitað hvað olli framferði ökumanns-
ins.
Ökufantur grunaður um fleiri brot
Ökumaður dró konu út úr bíl sínum eftir umferðarslys og ók af vettvangi á bíl hennar Lög-
reglan þurfti að þvinga ökumanninn út af til að stöðva hann Einn lögreglumaður slasaðist lítillega
Morgunblaðið/Kristinn
Slys Ökumaður fór yfir á rauðu ljósi við gatnamót Breiðholtsbrautar og Selárbrautar rétt sunnan við Rauðavatn og
ók inn í hlið bifreiðar konu sem hann síðan dró út úr bíl sínum og ók af vettvangi eftir Breiðholtsbraut.
Jón Bjarni
Kristjáns-
son, héraðs-
dóms-
lögmaður
hjá KRST
lögmönnum,
segir það
ekki svo ein-
falt að
ábyrgðar-
trygging
ökumanna bæti konunni sem
keyrt var á allt sitt tjón.
„Ábyrgðartryggingin bætir það
tjón sem hlaust við áreksturinn
en eftir það er þetta orðið nokk-
uð flóknara,“ segir Jón og bend-
ir á að auðvitað fari þetta allt
saman eftir tryggingum og
tryggingaskilmálum aðila. „Eftir
áreksturinn á sér stað heimild-
arlaus akstur ökumanns á bif-
reið konunnar. Þá kemur upp sú
sérstaka staða að tjón þriðja
aðila vegna akstursins er sótt í
ábyrgðartryggingu konunnar
sem á bifreiðina. Síðan á trygg-
ingarfélag hennar endurkröfu á
ökumanninn.“
Jón segir mál sem þessi
sjaldnast vera einföld og huga
þurfi að mörgum þáttum við úr-
lausn þeirra.
Flókið að
sækja bætur
BÓTAMÁL
Jón Bjarni
Kristjánsson
Gyða
Kristófersdóttir
Ragnheiður
Haraldsdóttir