Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013
Jón Gnarr Kristinsson borgar-stjóri segir í viðtali við Kjarn-
ann að hann sé alls ekki að hunsa
þær 70 þúsund undirskriftir og
yfirgnæfandi stuðning sem skoð-
anakannanir sýni við flugvöllinn í
Vatnsmýrinni.
Jón segir: „Viðberum mikla
virðingu fyrir lýð-
ræðislegum rétti
fólks til að tjá sig og
koma sínum skoð-
unum á framfæri.“
Skömmu síðar ísama viðtali segir sami Jón að
hann hafi setið „endalausa fundi
um þennan flugvöll“ og sé „al-
gjörlega fullviss um það að þessi
flugvöllur þarf að fara. Það er bara
spurning hvert, með hvaða hætti og
hvenær. En hann fer. Annað kemur
ekki til greina“.
Því er ekki að neita að fyrir borg-arbúa er athyglisvert að sjá
hvaða merkingu borgarstjóri legg-
ur í þau orð sín að hann beri „mikla
virðingu fyrir lýðræðislegum rétti
fólks til að tjá sig og koma sínum
skoðunum á framfæri“.
Augljóst er að í þessari mikluvirðingu felst ekki að hann
telji sig þurfa að taka tillit til sjón-
armiða mikils meirihluta Reykvík-
inga og endurskoða afstöðuna til
þess að loka flugvellinum í Vatns-
mýrinni.
Þó að hann segist bera miklavirðingu fyrir rétti fólks til að
tjá sig gerir hann ekkert með skoð-
anir meirihlutans enda hafi aðrir
ekki kynnt sér málið jafnvel og
hann.
Hann einn veit og flugvöllurinnskal fara.
Jón Gnarr
Kristinsson
„Annað kemur
ekki til greina“
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 3.10., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 3 súld
Akureyri 6 alskýjað
Nuuk 6 léttskýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 7 skýjað
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 12 heiðskírt
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 21 heiðskírt
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 skúrir
London 17 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 16 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 11 heiðskírt
Vín 9 heiðskírt
Moskva 2 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 25 skýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg 10 alskýjað
Montreal 16 skýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 21 skúrir
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:47 18:47
ÍSAFJÖRÐUR 7:55 18:49
SIGLUFJÖRÐUR 7:38 18:32
DJÚPIVOGUR 7:17 18:16
Haustheftið
komið út
Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og
menningu — hefur nú komið út í níu ár
í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári
— vetur, sumar, vor og haust.
Tímaritið fæst í lausasölu í helstu
bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum,
en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr.
Áskriftarsími: 698-9140.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Seltjarnarnesbær hefur samþykkt
að taka tilboði Stólpa ehf. í leigu-
lóðarréttindi og byggingarétt fyrir
fjölbýlishús á Hrólfsskálamel 1-7.
Tilboðið hljóðaði upp á 280 millj-
ónir króna. Stólpar standa enn í
framkvæmdum á Hrólfsskálamel
10-18 og gert er ráð fyrir að húsið
verði uppsteypt í desember að sögn
Guðna Rafns Eiríkssonar, eins eig-
enda Stólpa. Íbúðir þar verði settar
á sölu á næstunni. Uppbyggingin á
reitnum númer 1-7 er síðasti hlut-
inn af skipulagi svæðisins að sögn
Guðna Rafns.
Félagið vinnur enn að því að
fjármagna byggingu fjölbýlishúss-
ins sem það hyggst reisa á Hrólfs-
skálamel 1-7 og er kauptilboðið á
lóðinni háð því skilyrði að það tak-
ist.
Teikningar að fjölbýlishúsinu,
sem bærinn samþykkti árið 2007,
gera ráð fyrir 4.000 fermetra bygg-
ingu og bílakjallara með eitt og
hálft bílastæði á hverja íbúð. Alls
er gert ráð fyrir að 28-32 íbúðir
verði í húsinu.
Guðni Rafn segir hins vegar að
ekki sé búið að fullhanna húsið og
teikningarnar frá 2007 verði að lík-
indum ekki notaðar óbreyttar.
Kauptilboðið háð fjármögnun verkefnisins
Lóðin á Hrólfsskálamel 1-7 á
Seltjarnarnesi seld til Stólpa ehf.
Morgunblaðið/RAX
Bygging Unnið á Hrólfsskálamel.