Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013 Margt hefur verið sagt og skrifað um ráð- stefnuna Iceland In- vestment Forum, sem haldin var í London á dögunum. Ráðstefnan vakti mikla athygli og er sú fyrsta sinnar teg- undar sem haldin er á vegum Mergermarket, sem er dótturfélag Financial Times og sérhæfir sig m.a. í ráðstefnum fyrir fjármálaheiminn. Ráðstefnan þótti sérlega vel heppnuð og erindin þóttu áhugaverð. Þar var íslensku efna- hagslífi lýst af raunsæi en bjartsýni. Þá var efnahagshorfum og fjárfest- ingartækifærum hérlendis komið til skila til umheimsins með áberandi hætti. Í fréttaflutningi hér heima, sem fylgt hefur í kjölfar ráðstefn- unnar, hefur því t.a.m. verið haldið fram að Íslendingar hafi fyrst og fremst verið að kynna Ísland fyrir Íslendingum í London og að Íslend- ingar hafi verið meirihluti ráð- stefnugesta. Þá hefur verið sett fram sú undarlega kenning af Heiðari Má Guðjónssyni, hagfræð- ingi og fjárfesti, sem ekki var við- staddur ráðstefnuna, að um „leikrit af hálfu erlendra kröfuhafa“ hafi verið að ræða til að fá stjórnvöld til að tala af sér. Í tilefni þessarar um- ræðu er ástæða til að greina frá til- drögum Iceland Investment Forum og nokkrum staðreyndum varðandi ráðstefnuna. Fyrirtækið Sjónarmið ehf. er ís- lenskt fjölskyldufyrirtæki sem ann- ast viðburðastjórnun og átti alfarið hugmyndina að þessari ráðstefnu. Hugmyndin kom upp fyrir tæplega tveimur árum en hún kviknaði út frá löngun til að taka þátt í uppbygg- ingu íslensks samfélags og leggja eitthvað af mörkum til að koma land- inu upp úr erfiðu efnahagsástandi. Við töldum okkur geta kynnt land og þjóð erlendis með áhugaverðum og raunsæjum hætti í samstarfi við Mergermarket og innlenda sérfræð- inga. Við kynntum hugmyndina fyrir forsætisráðuneytinu og hverjar væntingar okk- ar væru til ráðstefn- unnar. Forsætisráð- herra veitti í framhaldinu samþykki fyrir opnunarerindi á ráðstefnunni. Ráðu- neytinu leist vel á að kynna stefnu nýrrar ríkisstjórnar út á við með þessum hætti auk þess sem tækifæri gæf- ist til að hitta fjölda er- lendra blaðamanna í tengslum við ráðstefnuna. Erindi forsætisráðherra má finna hér: http://eng.forsaetisraduneyti.is/ minister/sdg-speeches/nr/7699. Skilaboðin sem ráðstefnan inni- hélt voru í stuttu máli þessi: Stjórn- völd munu koma á stöðugleika í rekstrarumhverfi íslenskra fyr- irtækja, efnahagslífið er að rétta úr kútnum og hér á landi er fjöldi tæki- færa fyrir erlenda fjárfesta þrátt fyrir gjaldeyrishöft. Þátttakendur á ráðstefnunni voru íslensk fyrirtæki (samstarfsaðilar) og gestir þeirra, gestafyrirlesarar, innlendir og erlendir og aðrir ráð- stefnugestir, bæði íslenskir og er- lendir. Skráðir gestir voru alls 187 en 170 gestir mættu á ráðstefnuna þar af 72 frá Íslandi. Upphaflegt markmið var að ná 150 skráningum sem er sú tala sem Mergemarket miðar við þegar nýir viðburðir eru haldnir í fyrsta sinn á þeirra vegum. Samstarfsaðilar um ráðstefnuna voru Arion banki, Íslandsstofa, Lo- gos og Carbon Recycling á Íslandi. Á mælendaskrá voru auk fram- angreindra: Forsætisráðherra, fulltrúar frá Seðlabanka Íslands, Samtökum iðnaðarins, Klak Innovit, Nasdaq OMX á Íslandi, Vífilfelli, Verne Global, PKF og Emerald Networks. Það er nauðsynlegt að varpa ljósi á hvers vegna ráðstefna sem þessi er mikilvæg fyrir okkur sem hér búum. Þegar rætt er um að auka þurfi er- lenda fjárfestingu á Íslandi til að stuðla að bættum hagvexti og vel- sæld þá er ljóst að við þurfum að höfða til fjárfesta með öflugri kynn- ingu á þeim tækifærum sem hér leynast. Það þýðir ekki að bíða eftir að útlendingar banki upp á með fulla vasa fjár. Iceland Investment For- um vakti upp jákvætt umtal um Ís- land í mörgum löndum, þannig að við sem að þessu stóðum getum ver- ið stolt af. Persónulega er ég stoltur af að hafa staðið að því að hafa vakið jákvæða athygli á Íslandi og á hluta af þeim tækifærum sem hér er að finna. Hér eru gjaldeyrishöft og hér eru erfiðir tímar en það þarf ekki að þýða að við eigum að sitja með hend- ur í skauti og bíða eftir að tímabilið líði hjá. Við þurfum að kynna tæki- færin okkar og horfast í augu við ástandið, kannski kemur nánari naflaskoðun upp úr krafsinu, kannski koma fleiri fjárfestar til landsins í kjölfarið, kannski losnum við fyrr úr gjaldeyrishöftunum. Þessi ráðstefna er mikilvægur liður í að ná sambandi við umheiminn og stuðla að kynningu á landi og þjóð. Ef við höldum verkefninu gangandi og vinnum í því að kynna þau tæki- færi sem hér eru þá er ég ekki í vafa um að það mun verða íslensku efna- hagslífi til heilla. Það er með ólíkindum að hagfræð- ingur og fjárfestir eins og Heiðar Már Guðjónsson, sem vill láta taka sig alvarlega í þjóðfélagsumræð- unni, skuli setja fram fullkomlega órökstuddar fullyrðingar um að ráð- stefnan hafi verið haldin til að koma höggi á íslensk stjórnvöld. Þeir sem mættu á ráðstefnuna vita að þessi fullyrðing á sér enga stoð í raun- veruleikanum. Að lokum viljum við hjá Sjónar- miðum þakka öllum sem lögðu hönd á plóg til að gera þennan vel heppn- aða viðburð að veruleika. Um Iceland Investment Forum í London Eftir Jón Örn Guðmundsson »Ráðstefnan þótti sér- lega vel heppnuð og erindin þóttu áhuga- verð. Þar var íslensku efnahagslífi lýst af raunsæi en bjartsýni. Jón Örn Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur BSc, MBA og framkvæmdastjóri hjá Sjónarmiðum ehf. Mikill fjöldi lausna barst við haust- jafndægragátunni og voru margir með rétta lausn á henni. Lausnin er: Áreiti af ýmsum toga er ógnvaldur, sem forðast ber. Neistar þess í leyni loga, uns lífið allt úr skorðum fer. Taugakerfið tímasprengja traustið dvín, ef snýrð ei við og leyfir engum lengur þrengja lygi um vit þín oní kvið. Þá mun friður færast yfir og fleiri vilja hitta þig. Sá, sem þannig lífi lifir, lýsir allt í kringum sig Vinningarnir eru bækur frá For- laginu. Kristín Guðjohnsen Meistaravöllum 35 107 Reykjavík hlýtur bókina Vín - frá þrúgu í glas eftir Steingrím Sigurgeirsson. Páll Aronsson Kleppsvegi 22 105 Reykjavík hlýtur bókina Fórnargjöf Móloks eftir Åsu Larsson. Unnur Jóhannsdóttir Hólabergi 84 111 Reykjavík hlýtur bókina Ballið eftir Irène Némirovsky. Vitja má vinninganna í móttöku ritstjórnar Morgunblaðsins. Morg- unblaðið þakkar þeim sem sendu lausnir. Lausn haustjafndægragátu Since 1921 Lífræn og nærandi morgunfrú (calendulajurtin) veitir húð barnsins þíns þá vörn og umhyggju sem hún þarfnast. Fullkomin leið til að stuðla að heilbrigðri húð, allt frá fyrsta degi - í samhljómi við mann og náttúru www.weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek, barnaverslanir og heilsuverslanir um allt land Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/WeledaBabyIceland Mamma veit best! VINNINGASKRÁ V i n n i n g u r Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Næstu útdrættir fara fram, 10. okt, 17. okt, 24. okt & 31. okt 2013 Heimasíða á Interneti: www.das.is 23. útdráttur 3. október 2013 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 4 2 0 7 4 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 7636 43314 58437 70391 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 8393 17054 25377 37167 48843 69322 8888 19439 28907 39545 53758 70280 10798 21749 30705 41474 57369 75272 12201 22794 31734 44255 61450 77645 V i n n i n g u r Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) 1894 13298 25944 37929 48796 56347 66844 75094 2284 16146 27792 38729 49027 56886 68187 77397 3789 16543 28308 39244 49548 58544 68295 77745 5092 17356 28610 39322 49556 59933 68333 78087 5237 18022 29259 40348 51719 60086 69536 78400 5749 18188 29610 40902 52437 61152 70348 78632 6015 19508 31371 41433 52697 61679 70482 79456 6951 20024 31951 45752 53177 62975 71087 79803 8434 20672 32869 45781 53792 63117 71216 79988 8508 23325 35078 45823 54068 63209 71518 9657 24888 35484 45941 55047 63770 71822 11161 25585 36196 46234 55402 64976 73272 11857 25648 37197 48191 55830 66819 74198 283 10815 22236 33258 42276 50579 59571 69352 650 10871 22438 33442 43380 50612 59999 69527 709 11298 22504 33454 43504 50828 60123 70154 968 11437 23228 33979 43906 51059 60589 70474 1596 12055 23599 34171 44026 51465 60844 70940 1775 12450 23911 34413 44055 51820 60911 71090 1841 12605 23918 34457 44475 52047 60984 71245 2099 12773 24126 34882 44612 52209 61166 71477 2434 13326 24132 34999 44910 53820 61282 72379 3065 13433 24237 35004 44959 54284 61347 72446 3143 13492 24255 35376 44988 54448 61599 72466 4159 13575 24478 35433 45174 54915 61717 72740 4259 13588 24518 35540 45264 55100 61910 73835 4786 13606 25243 35931 45304 55688 61931 73856 4809 13761 25960 36010 45406 55955 61999 74420 5350 13841 26646 36481 45570 56404 62342 74536 6547 14187 27540 37394 45849 56689 62347 75296 6562 14956 27714 37595 46536 56850 63094 75538 6639 15941 28236 38266 46701 56856 63215 75546 7356 16019 28669 38267 46774 57162 63848 75598 7406 16074 28826 38770 46846 57203 64024 75833 7505 16493 29396 39341 46953 57390 64346 75884 7953 16891 30171 39384 47076 57617 64866 76008 8289 17373 30193 39605 47093 57644 65918 76639 8304 18001 30638 39624 47224 57941 66321 77329 8899 18727 31107 39644 48464 57973 66802 78905 9102 18929 31454 39842 48570 58615 66908 9286 19099 31835 40607 48985 58625 67701 9339 19820 32377 40713 49380 59143 67746 9401 19966 32700 41934 49687 59386 69003 9719 20479 33141 41942 49987 59402 69027 10267 20601 33217 42055 50164 59503 69092

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.