Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 11
Leðurklæddir eðaltöffarar Strákanir í Grís eru nokkuð öruggir með sig og leggja sig fram við að heilla stúlkur. hópurinn væri góður og allir orðnir góðir vinir. Perla Sóley var sammála þar. Vináttutengsl hafa myndast milli þátttakenda Það eru kannski ekki síst þessi vinatengsl sem þeim Guðnýju og Höllu Karen finnst dýrmæt í leiklist- arstarfi og þær sögðu báðar að gam- an væri að fylgjast með þeirri vin- áttu sem hefði skapast gegnum æfingarnar sem nær líka til frítíma þátttakenda. Þeir eru allir á bilinu 12 til 15 ára. „Þessir krakkar eru að koma úr Vogum, Sandgerði og Garði, ásamt Reykjanesbæ og for- eldrar eru duglegir að koma þeim til og frá æfingum. Þeir eru líka dugleg- ir að færa okkur bakkelsi og það er ekki lítið.“ Áheyrnarprufur fóru fram í vor og kom mikill fjöldi hæfi- leikaríkra barna og unglinga til að reyna sig en að lokum þurfti að skera hópinn niður í 22 þátttakendur. Þær Guðný og Halla Karen segja það allt- af erfiðasta hlutverk leikstjóranna. „Við verðum að standa með þeim ákvörðunum sem við tökum í þessum efnum og vona að maður velji rétta þátttakendur til leiks. Okkur finnst okkur hafa tekist vel upp þar í þessu verki.“ Margir þátttakenda hafa ein- hverja reynslu úr skólum og af nám- skeiðum en flestir þeirra eru að stíga sín fyrstu skref í alvöruleikhúsi þar sem allt er til alls. Hér segja þær Guðný og Halla Karen skipta máli þá aðstöðu sem þær hafi aðgang að í Frumleikhúsinu gegn vægu gjaldi og þar hafi þær verið heppnar. „Svo eru þessir krakkar líka svo áhugasamir við að mála hvert annað og setja í hár þó að starfsfólk á bak við tjöldin sjái um þá þætti, þannig að allt hjálpast þetta að við að láta þetta renna vel. Auk þess er mikið af þeim fötum sem voru í tísku á Grease-tímabilinu kringum 1978 í tísku í dag, eins og leðurjakkar, gallabuxur með uppá- broti og converse-skór og það hefur reynst léttara að finna búninga, a.m.k. hversdagsklæðnaðinn.“ Eins og áður segir verður Grís frumsýnt í Frumleikhúsinu í kvöld kl. 20 en 2. og 3. sýning verða sunnu- daginn 6. október og þriðjudaginn 8. október. Hægt er að nálgast upplýs- ingar um verkið á Facebook síðu uppfærslunnar, Grís. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríks Söngur og dans Rétt eins og í kvikmyndinni Grease er mikið sungið og dansað í uppfærslu Gyltanna á Grís. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013 Anne Aghion er fransk-bandarískur leikstjóri. Hún er þekktust fyrir heim- ildarmyndir sínar um þjóðarmorðin sem framin voru í Rúanda árið 1994. Rannsóknarstofa í kvenna- og kynja- fræðum við Háskóla Íslands stendur fyrir sýningunni sem verður í dag frá klukkan 16-18 í stofu 105 við Há- skólatorg. Myndin Nágranni minn – Morðingi minn er frá árinu 2009. Anne hefur farið ótroðnar slóðir og gefst gestum einstakt tækifæri til að leggja spurningar fyrir þessa reyndu konu. Hún hefur skoðað vandlega það mikla og flókna samfélagsuppgjör sem fram fór nokkrum árum eftir þjóðarmorðin í Rúanda þegar morð- ingjarnir voru leystir úr varðhaldi og sneru aftur á sínar gömlu heimaslóð- ir til þess að taka þátt í Gacaca. Gacaca voru réttarhöld sem fóru fram á tíu þúsund hæðum um landið allt undir berum himni. Þar mættu fórnarlömbin, sem iðulega voru kon- ur, þeim einstaklingum sem nokkrum árum fyrr myrtu eiginmenn þeirra og börn, en von stjórnvalda var sú að með Gacaca yrði einhvers konar rétt- læti náð fram og samfélagið allt gæti loks horft fram á veginn. Nágranni minn – Morðingi minn Kvikmynd, spurningar og svör Veggspjald myndar Anne Aghion. Hvað ætlar þú að verðaþegar þú verður stór?Spurningin er stór oghjá mörgum er svarið enn stærra. Í mínu tilviki voru svörin býsna mörg og ollu mér heilabrotum í fjölda ára og gera jafnvel enn. Það eru til fjölmargar útgáfur af svörum í svonefndum minningarbókum sem krakkarnir í skólanum létu ganga á milli bekkj- arfélaga. Mér þótti iðulega mikill heiður að fá að rita í slíkar bækur og vandaði mig mikið. Hvað ætlar þú að verða? Það var skemmtileg- asta spurningin í bókinni auk spurningarinnar um besta matinn (sem alla jafna ærði upp í manni sultinn). Ég ætlaði að verða ljósmyndari, málari, píanóleikari, málfræðingur, klósettkafari, uppfinningamaður, stjarneðlisfræðingur, geimfari, rallíbílstjóri, garðyrkjumeistari eins og amma eða rafeindavirki eins og pabbi. Auðvitað byrjaði maður á einu og öðru þó að ekki sé hægt að gera allt. Alla vega ekki í einu. Af upptalningunni má glöggur greina að fæst þessara starfa eru til þess fallin að efla þátt mannlegra samskipta né heldur virðast þau kalla á mikla færni í mannlegum samskiptum. Enda sá ég mér snemma leik á borði og ætlaði alfarið að sneiða hjá mannfólkinu og allri umgengi við jarðarbúa. Svo djúpt var ég sokkin í andfélagslega drauma að ég hugsaði um geimfarastarfið með sannkallað stjörnublik í augunum. Píanóleikara- starfið lét ég eiga sig á fimmta stigi námsins því til- hugsunin um að kenna börnum á hljóðfæri var óbærileg. Ég varð flugfreyja sam- hliða háskólanáminu og starfaði á þeim vett- vangi um árabil. Ekki var mikil hætta á félags- legri einangrun þar. Né heldur í sjónvarpinu þar sem ekki gengur að vera feiminn. Blaðamenn hafa sjaldnast verið taldir feimnir eða félagslega ill- skeyttir. Kannski er ég ekki orðin stór ennþá en svei mér hvað lífið er nú ljómandi skemmtilegt, nákvæmlega eins og það er. Hver veit nema íslenskur blaðamaður eigi eftir að fara út í geim einn daginn. Svo ekki sé tal- að um ótal möguleika á því að finna eitthvað upp og geta í fram- haldi af því kallað sig uppfinninga- mann. Píanóið get ég alltaf glamr- að á og dundað mér við eitt og annað af því sem talið var upp hér að ofan. Best væri þó að komast í þessar gömlu minningabækur og rifja upp allar þær ágætu hug- myndir sem maður fékk um það hvað fælist í fjar- lægri framtíð og gleðj- ast yfir stórbrotnu ímyndunarafli barnsins. »Ég ætlaði að verðaljósmyndari, mál- ari, píanóleikari, mál- fræðingur, klósettkafari, uppfinningamaður, stjarneðlisfræðingur, geimfari, rallíbílstjóri, garðyrkjumeistari eins og amma eða rafeindavirki eins og pabbi. Heimur Malínar Brand Malín Brand malin@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.