Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 17

Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013 Styrkjum starfsemi Krabbameins- félagsins Út á lífið í bleikum bíl! Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins- félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér. Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Ekkert verður af þeim áformum að reisa heilsuþorp á Flúðum. Fyrir- tækið Heilsuþorp ehf., sem stóð að uppbyggingunni, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Fyrirhugað var að reisa um 200 íbúðir auk þjónustu- aðstöðu og lauga á bökkum Litlu- Laxár. Þar átti að verða hvíldar- og endurhæfingaraðstaða með þátttöku fagfólks í ýmsum greinum heilbrigð- isþjónustu. Hrunamannahreppur hafði lagt fram landið og samkomulag við fyr- irtækið Heilsuþorp ehf. var undirrit- að árið 2008. Að einu og hálfu ári liðnu áttu framkvæmdir að hefjast. Jarðvegsframkvæmdir hófust hins vegar aldrei. Heildarkostnaðurinn var þá áætlaður 4,4 milljarðar króna. Allur undirbúningur og fjármögnun var í höndum Heilsuþorps ehf. Helstu ástæður fyrir gjaldþrotinu eru tvær; skortur á fjármagni og það að fyrirhugaðir fjárfestar frá Kína settu fram óviðunandi kröfur, m.a. kaup á landinu, að sögn Árna Gunn- arssonar, eins af eigendum Heilsu- þorpsins ehf. Viðræður og samskipti við Kínverjana tóku á annað ár. Þeir gerðu tilboð upp á tæpa 3,8 milljarða króna. „Í stuttu máli má segja að með Kínverjunum hafi böggull fylgt skammrifi,“ segir Árni Gunnarsson. Tvö kínversk fyrirtæki ætluðu að koma að rekstri og uppbyggingunni. „Þegar tilboðið var frágengið töldum við þetta í höfn. En þegar farið var að krefja þá um aðild að verkefninu settu þeir fram kröfur sem við gát- um ekki sætt okkur við. Þær voru á þá leið að flytja inn verkamenn og verkstjórn, stór hluti af efni til fram- kvæmdanna yrði keyptur frá Kína. Þá óskuðu þeir eftir að kaupa hluta landsins. Það var fráleitt og kom ekki til greina af okkar hálfu,“ segir Árni og bendir á að það sé þekkt að Kínverjar hafi sínar leik- reglur, og eftir á að hyggja hefðu þeir kannski átt að stíga léttar til jarðar. Hann telur sorglegt að verkefnið skuli falla út af borðinu því það sé sniðið að heilsutengdri ferða- mennsku og í henni liggja miklir möguleikar á Íslandi. Þá hafi Flúðir allt til brunns að bera í þessum efn- um; fallegt landslag og heitt og kalt vatn. Þá hafi verkefnið uppfyllt öll skilyrði um vistvæna og sjálfbæra uppbyggingu. Árni segir að eigendur Heilsu- þorps ehf. séu ekki alfarið búnir að gefa hugmyndina um heilsuþorp upp á bátinn. Ekkert heilsuþorp reist á Flúðum  Fyrirtækið Heilsuþorp ehf., sem ætlaði að standa að uppbyggingunni, gjaldþrota  Kínverskir fjár- festar föluðust eftir að kaupa landið  200 íbúðir auk þjónustubygginga og sundlaugar áttu að rísa Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flúðir Ákjósanlegur staður fyrir heilsutengda ferðaþjónustu, segir Árni Gunnarsson, einn eigenda Heilsuþorps ehf. Heilsuþorpið » Fyrirhugað var að reisa um 200 íbúðir auk þjónustu- aðstöðu og lauga á bökkum Litlu-Laxár. » Hvíldar- og endurhæfing- araðstaða hefði verið sniðin að heilsutengdri ferðaþjón- ustu. » Kínverskir fjárfestar voru tilbúnir að reiða fram tæpa 3,8 milljarða króna til upp- byggingar Heilsuþorpsins. En þeir vildu að ekkert af þeirri upphæð yrði í formi hlutafjár. » Þá vildu kínversku fjárfest- arnir kaupa landið þar sem starfsemin væri byggð. Slíkt kom aldrei til greina og m.a. af þeim sökum var verkefnið blásið af. Hallur Már Hallsson hallurmar@mbl.is Einhver gæti hafa haldið að borgar- yfirvöld væru að tapa sér í flippinu þegar þeir keyrðu hjá umferðar- slaufunni á mótum Bústaðavegar og Hringbrautar í gær. Svo er þó ekki þar sem að í fyrrinótt var hluti slauf- unnar málaður bleikur í tilefni af ár- vekni- og fjáröflunarátaki Krabba- meinsfélags Íslands. Mbl.is fór í útsýnisflug með Norð- urflugi í gær til að sjá slaufuna frá réttu sjónarhorni. Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á félagið, kt. 700169-2789, bankareikningur 0301- 26-000706. Einnig má fylgjast með daglegum uppboðum á vefnum blei- kaslaufan.is. Morgunblaðið/Mbl-sjónvarp Bleika slaufan séð úr háloftunum  Dagleg uppboð á bleikaslaufan.is Skannaðu kóðann til að sjá loftmynd- ir af slaufunni. Íslenska vegabréfið opnar dyrnar að 165 ríkjum og skilar það því í 8. sæti heimslistans yfir þau vegabréf sem opna víðast dyr. Það er ráðgjafarfyrirtækið Hen- ley & Partners sem heldur úti list- anum en þrjú ríki, Finnland, Sví- þjóð og Bretland, skipa sér í efsta sætið. Veita vegabréf ríkjanna að- gang að samanlagt 173 ríkjum. Næst koma Danmörk, Þýskaland, Lúxemborg og Bandaríkin með að- gang að 172 ríkjum. Þriðju í röðinni eru Belgía, Ítalía og Holland með 171 ríki. Fjórðu í röðinni eru Kanada, Frakkland, Írland, Japan, Noregur, Portúgal og Spánn með 170 ríki. Í fimmta sæti eru Austurríki, Nýja-Sjáland og Sviss með 168 ríki og í því sjötta Ástralía, Grikkland og Singapúr með 167 ríki. Suður- Kórea er í sjöunda sæti með 166 ríki. Afganistan er neðst í sæti 93 með 28 ríki en hámarksárangur væri 218 ríki. Íslenska vegabréfið í 8. sæti heimslistans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.