Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 44
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 277. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Lík fannst í Reykjavíkurhöfn
2. Safna til að greiða Agli
3. Brugðust ósýnilega drengnum
4. Bleik umferðarslaufa séð úr lofti
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fréttaþulurinn Edda Andrésdóttir
vitjar minninga og æskuslóða í Vest-
mannaeyjum í nýrri bók sem nefnist
Til Eyja, en þar var hún í sveit hjá
ömmu sinni á sumrin. Einnig minnist
hún þess þegar hún, ungur blaða-
maður, fylgdist með Eyjagosinu.
Morgunblaðið/Frikki
Fréttaþulurinn vitjar
æskuslóða í Eyjum
Hópur lista-
manna ætlar að
gleðja unnendur
söngleikja-
tónlistar með
dagskrá sem
verður sett upp í
Norðurljósasal
Hörpu 18. október
og 16. nóvember.
Margrét Eir, Bjarni Snæbjörnsson og
fleiri flytja lög úr söngleikjum á borð
við Vesalingana, Fiðlarann á þakinu,
Hárið og Rocky Horror.
„Ef lífið væri söng-
leikur“ í Hörpu
Þau Kári Tulinius og Valgerður
Þóroddsdóttir eru ritstjórar nýrrar
bókar, „Ljóð í leiðinni“, en í henni
eru 27 forvitnileg ljóð um
Reykjavíkurborg eftir
jafnmörg skáld, gefin
út í tilefni Lestrar-
hátíðar í Reykjavík.
Nú hefur rafbóka-
vefurinn eBækur.is
ákveðið að gefa
öllum notendum
rafútgáfu bókar-
innar.
Ólíkar hliðar borgar-
innar í ljóðum
VEÐUR
Björn Daníel Sverrisson úr
FH og Harpa Þorsteins-
dóttir úr Íslandsmeistara-
liði Stjörnunnar voru valin
bestu leikmenn Pepsi-
deildar karla og kvenna í
hófi sem haldið var í gær á
vegum KSÍ. Þar voru marg-
ir heiðraðir að loknu löngu
og ströngu Íslandsmóti í
knattspyrnu karla og
kvenna. Rúnar Kristinsson
og Þorlákur Árnason voru
þjálfarar ársins. »1
Margir heiðraðir
í lok leiktíðar
„Mér stóð til boða að vera áfram en
mér finnst bara kominn tími til að
kveðja Stjörnuna eftir átta ára starf,“
sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Ís-
landsmeistara Stjörnunnar í knatt-
spyrnu kvenna. Hann ákvað í gær að
hætta þjálfun hjá fé-
laginu eftir átta ára
samfleytt starf,
fyrst með yngri
flokka og síðar
meistaraflokk
kvenna. Óvíst er
hvert hugur
Þorláks stefn-
ir á þessum
tímamót-
um. »1
Kominn tími til að
kveðja Stjörnuna
Sigurbergur Sveinsson fór á kost-
um með Haukum og skoraði 12
mörk þegar þeir unnu erkifjendur
sína í FH, 25:20, á heimavelli í Ol-
ís-deildinni í handknattleik í gær-
kvöldi. Björgvin Hólmgeirsson átti
einnig stórleik með ÍR í sigri á HK,
30:23, og Framarar voru sterkari
en Valsmenn á lokakaflanum og
unnu með einu marki. »2
Haukar unnu Hafn-
arfjarðarslaginn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Björgvin Benediktsson og tveir
bandarískir skólafélagar hans í ný-
sköpunardeild háskólans í Arizona
hafa stofnað fyrirtækið Crowd Aud-
io og hófu í fyrradag söfnun stofn-
fjár í gegnum IndieGogo, öflugt
hópfjármögnunarfyrirtæki á netinu
(www.crowdaudio.com/indiegogo).
Stofnféð verður notað til þess að
byggja upp vefmarkaðssíðu fyrir
tónlistarmenn og hljóðmenn hvar
sem er í heiminum, en söfnuninni
lýkur 2. nóvember.
Hugmyndin með Crowd Audio
gengur út á það að aðstoða tónlist-
armenn sem hafa tekið upp lög en
treysta sér ekki til að hljóðblanda
þau og hafa heldur ekki efni á því að
borga fyrir dýra upptökutíma. Fyr-
irmyndin er til í grafískum iðnaði.
„Margir tónlistarmenn hafa lært
að taka upp en kunna kannski ekki
að „mixa“ lögin saman þannig að
þau hljómi eins og á góðri plötu,“
segir Björgvin. „Þá senda þeir upp-
tökurnar til okkar og í gang fer
samkeppni á vefsíðunni. Við erum
með hljóðmenn víðs vegar um heim-
inn sem taka þátt í þeirri samkeppni
sem er í boði hverju sinni, „mixa“
lögin og senda sína útgáfu inn en
tónlistarmennirnir velja síðan þá
hljóðblöndun sem þeir vilja og fá
hana endurbætta eins og þeir vilja.“
Verðlaunahafar
Fyrir ári var nemendum skólans
skipt í fámenna hópa sem áttu að
vinna að ákveðinni frumkvöðla-
hugmynd með stofnun fyrirtækis að
markmiði. Björgvin og félagar völdu
þessa hugmynd og hafa unnið að
henni síðan, en þeir útskrifuðust
sem vinsælasti hópurinn í bekknum.
Hugmynd þeirra var ásamt ellefu
öðrum áður valin til að taka þátt í
samkeppni í Phoenix, þar sem þeir
hrepptu 2.-3 sætið. Sigurvegararnir
fengu 10.000 dollara í verðlaun en
hugmyndir í 2. og 3. sæti fengu
7.000 dollara hvor. Björgvin segir að
til viðbótar þurfi þeir 10.500 dollara
til þess að koma fyrirtækinu á lagg-
irnar og því séu þeir með þessa hóp-
fjármögnun. Framlög séu frjáls.
Meðan söfnunin stendur yfir gefa
þeir þátttakendum verðlaun. „Fyrir
15 dollara framlag fær fólk til dæm-
is skírteini og límmiða,“ segir
Björgvin og bætir við að aukaverð-
launum verði deilt út meðan á söfn-
uninni stendur. Útbúin verður plata
með öllum lögum sem þeir hafa
hljóðblandað til þessa og þeir sem
borga 25 dollara fá plötuna. Björg-
vin segir að allir sem leggi eitthvað
af mörkum fái þannig eitthvað til
baka. „Sá sem borgar 200 dollara
fær fría hljóðblöndun í samkeppni
og fjöldi tónlistarmanna, sem leggja
okkur lið með þessum hætti, gefur
okkur vísbendingu um áhugann á
þjónustunni. Byrjunin lofar mjög
góðu.“
Stökkpallur fyrir listamenn
Með vefmarkaðssíðu fyrir tónlistar-
menn og hljóðmenn um allan heim
Ungir athafnamenn Alex von Bieberstein, Björgvin Benediktsson og Chris Fraioli við vinnustaðinn í Arizona í Bandaríkjunum.
Björgvin Benediktsson var
gítarleikari í hljómsveitinni Pan
í Hafnarfirði. Hann starfaði sem
hljóðmaður áður en hann fór í
nám í hljóðfræði á Spáni. Eftir
útskrift fór hann til Tucson í
Arizona 2010 þar sem hann hef-
ur lagt stund á viðskipta-
hagfræði og nýsköpun og út-
skrifast með BA-próf innan
skamms.
Tónlistarmenn, sem vilja fá
lög hljóðblönduð hjá Crowd
Audio, borga verðlaunaféð í
samkeppninni og er upphæðin
mismunandi. Hún hefur verið
120 dollarar (um 14.500 kr.) en
verður 199 dollarar, 299 dollar-
ar og 399 dollarar.
Háskólapróf
á næstunni
GÍTARLEIKARI Í PAN
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðvestan 8-13. Dálítil rigning,
slydda eða snjókoma fyrir norðan, en þurrt syðra. Hiti 1 til 10 stig.
Á laugardag Norðvestan 10-15 m/s og él NA-til fram eftir degi,
en annars hægari NA-læg átt, skýjað með köflum syðst.
Á sunnudag Austanátt, 5-13, hvassast syðst og NV-til. Dálítil
rigning syðst, víða bjart veður V-lands, en annars skýjað og þurrt.