Morgunblaðið - 10.10.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 10.10.2013, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 0. O K T Ó B E R 2 0 1 3 BJARNI MEÐ MYNDASÖGU FYRIR FULLORÐNA VERKEFNIÐ AÐ AUKA ÚTFLUTNING FÓLKIÐ STYÐUR KÓNGINN VIÐSKIPTABLAÐ BAKKAGERÐI 18HVOR ER HVAÐ 36 ÁRA STOFNAÐ 1913 –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG  235. tölublað  101. árgangur  Það hefur vart farið framhjá nokkrum knattspyrnuáhugamanni að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu á raun- hæfa möguleika á því að halda öðru sæti sínu í E-riðli undankeppni HM og leika tvo umspilsleiki í nóvember um sæti í úrslitakeppninni í Brasilíu næsta sumar. Uppselt er á leikinn við Kýpur á Laugardalsvelli annað kvöld og KSÍ hefur þegar selt um 800 miða á leikinn við Noreg í Ósló á þriðjudag. Nær uppselt er í dagsferð á leikinn, sem ÍT-ferðir, VITA-ferðir, Úrval-Útsýn og Icelandair eru með í sölu. Auk þess hafa margir Íslendingar búsettir er- lendis og þá einkum á Norðurlöndunum keypt miða á leikinn í gegnum sölukerfi norska knattspyrnusambandsins, en hvernig sem leikir fara á morgun er ljóst að leikurinn við Noreg getur ráðið úrslitum um framhaldið. Íslenska landsliðið æfði á Laugardalsvelli í gær og var glatt á hjalla. » Íþróttir Mikil spenna í fótboltanum Morgunblaðið/Kristinn Uppselt á landsleikinn á morgun og margir Íslendingar á leikinn við Noreg ytra Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ljóst þykir að tvær læknisfræðileg- ar myndgreiningastofur utan sjúkrahúsa klári þann kvóta sem þær hafa hjá Sjúkratryggingum Ís- lands áður en árið er liðið. Áætlað er að heildarkostnaður umsaminnar þjónustu þessara fyr- irtækja geti orðið 1.100 milljónir króna á árinu, þar af er hlutur Sjúkratrygginga um 770 milljónir. Áætlað er að samtals 45 þúsund sjúkratryggðir einstaklingar fái þjónustu hjá þessum félögum í sam- tjáð Sjúkratryggingum þær áhyggj- ur okkar,“ sagði Birna Jónsdóttir, röntgenlæknir hjá Röntgen Domus, þegar hún var spurð um stöðu mála hjá þeim. „Ef fram fer sem horfir ættum við að geta haldið áfram að mynda fólk þótt kvótinn klárist því við höfum bæði tæki og mannskap til þess. Sjúkratryggingar segja að þær ætli ekki að borga. Við höfum ekki lagt niður fyrir okkur hvernig við ætlum að leysa það,“ sagði Birna. Hjá Röntgen Orkuhúsinu er einn- ig útlit fyrir að kvótinn klárist áður en árið er liðið. Arnþór Guðjónsson, röntgenlæknir hjá Röntgen Orku- húsinu, sagði að Sjúkratryggingar hefðu verið látnar vita af því. En hvernig verður brugðist við ef kvót- inn klárast áður en árinu lýkur? „Við höldum okkar striki, við lok- um ekki heldur gerum það sem þarf til að halda uppi þessari þjónustu,“ sagði Arnþór. Bæði myndgreiningarfyrirtækin hafa fengið fólk frá Landspítala í myndgreiningu af ýmsum ástæðum. Þær greiningar reiknast með í kvóta fyrirtækjanna. MOpið þótt kvótinn klárist »6 Kvótinn nægir ekki út árið  Ljóst þykir að kvóti Sjúkratrygginga fyrir læknisfræðilega myndgreiningu utan spítala mun ekki duga út árið  Áætlað er að þjónustan kosti 1,1 milljarð á árinu tals 55 þúsund komum, samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum. Hjá Röntgen Domus fengust þær upplýsingar að þegar 75% voru liðin af árinu hafi verið búið að nota 79% kvótans. Því þykir ljóst að kvótinn klárist áður en árið er liðið. „Við höfum áhyggjur af því að kvótinn dugi ekki út árið og höfum „Við höfum áhyggjur af því að kvótinn dugi ekki út árið...“ Birna Jónsdóttir  Um 14% Ís- lendinga tilheyra tölvukynslóð ungs fólks sem hefur allt frá fæðingu alist upp við og vanist notkun tölva, netsamskipta og annarrar staf- rænnar upplýsingatækni nútímans. Er hlutfall þeirra af íbúafjölda hvergi hærra í heiminum skv. nýrri skýrslu. Þetta unga fólk er ,,innfætt í tölvuheiminn“ samkvæmt skil- greiningum í skýrslunni en sam- anburðurinn nær til 180 þjóða. Hlutfall tölvukynslóðarinnar af heildarfjölda ungs fólks í Evrópu á aldrinum 15-24 ára er 79% en hér á landi er það sagt vera 95,9%. »2 14% Íslendinga inn- fædd í tölvuheiminn Baldur Arnarson baldura@mbl.is Versnandi viðskiptakjör og minnk- andi afgangur af viðskiptum við út- lönd kemur sér illa fyrir gjaldeyris- öflun þjóðarinnar á óvissutímum. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hag- fræðingur hjá Seðlabankanum, telur þróunina mikil ótíðindi, enda þurfi að afla mikils gjaldeyris á næstu árum vegna afborgana af erlendum lánum. Komi ekki til aukinn útflutningur vegna nýrrar framleiðslu geti þróun- in þrýst niður gengi krónunnar. Að óbreyttu stefni enda í halla af við- skiptum við útlönd. Styrmir Guðmundsson, sjóðsstjóri hjá Júpíter, segir fullt tilefni til að ætla að lítill afgangur af vöruskipt- um við útlönd veiki gengið. „Það er því miður fátt í heimsbú- skapnum sem gefur tilefni til bjart- sýni í þeim efnum og í ljósi þessa og gríðarlegra afborgana þjóðarbúsins á næstu árum, þar sem okkur vantar yfir 300 milljarða til að ná endum saman þá er það krónan sem á end- anum gefur eftir nema annað komi til.“ »4 Skapar þrýsting á krónuna  Of lítill afgangur af viðskiptum við útlönd Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grafarholt Veiking krónu myndi koma niður á kaupmætti heimila.  Ný tilraunameðferð við augn- sjúkdómnum Retinitis Pigmentosa (RP) verður brátt sett af stað hér á landi. RP er ólæknandi hrörnunar- sjúkdómur í sjónhimnu og algeng- asta orsök sjónskerðingar og blindu hjá ungu fólki. Á Íslandi eru um hundrað einstaklingar með þennan sjúkdóm. Vonir standa til að meðferðin dragi úr hrörnunar- ferlinu eða jafnvel stöðvi það. »6 Tilraunameðferð við RP augnsjúkdómi  Í Noregi og Svíþjóð eru gerðar mun stífari kröfur til mynsturdýptar vetrarhjólbarða á fólksbílum og fólksflutningabílum en hér á landi. Hér þarf mynstur á hjólbörðum að vera a.m.k. 1,6 mm og er það í sam- ræmi við lágmarkskröfur í Evrópu- tilskipun. Í Noregi og Svíþjóð er gerð krafa um að 3 mm mynst- urdýpt. Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu eru ákvæði um mynsturdýpt hjólbarða til endur- skoðunar. »22 Hér má aka um á slitnari dekkjum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.