Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 11
jarls, tengdaföður hans, sem gerði loks uppreisn gegn honum og tók sér konungsnafn,“ segir Þorleifur. Hin hlið sögunnar Hákonar saga fjallar sem fyrr segir um fyrsta konung Íslands. Há- kon er þekktur úr Íslendinga sögu Sturlu, þar sem sjónarhorn Íslend- inga er afgerandi en í þessari sögu eru málin skoðuð frá hlið Hákonar að mestu og sú hlið er lítt þekkt á meðal Íslendinga. „Hákon hafði lengi mjög neikvæða ímynd á Íslandi sem verð- ur eiginlega til á nítjándu öld,“ segir Sverrir. Ástæðu þessarar neikvæðu ímyndar má rekja til þess að Jón Sigurðsson sakaði Hákon um að hafa stuðlað að ófriði á Íslandi með því að hafa ýtt undir að íslenskir höfðingjar berðust innbyrðis til þess að sölsa undir sig landið síðar. „Það er auð- vitað rétt að Hákon langaði til þess að leggja undir sig Ísland en að hann hafi hvatt til blóðsúthellinga og bar- daga á Íslandi er þvert á það sem segir í Hákonar sögu. Þar er einmitt gert mikið úr því að Hákon hafi vilj- að takmarka manndráp og hann hafi boðið sig fram sem sáttasemjara og friðarhöfðingja,“ segir Sverrir. Sturla segir töluvert frá atburðum á Íslandi sem skotið er inn í frásögnina og er áhugavert að bera saman hvað Íslendingasaga segir um sömu at- burði. Sjónarhornið er oft annað í Hákonar sögu. „Sturla gerir til dæmis mjög mikið úr því í Hákonar sögu hvað Gissur Þorvaldsson, sem er jarl og æðsti maður Íslands undir konungi, sé í raun falskur og svikull við konunginn. Þetta kemur ekki fram í Íslendinga sögu og það má auðvitað velta fyrir sér af hverju það er. Er það vegna þess að Íslend- ingasaga er skrifuð seinna, eftir að Gissur er dáinn og þá hefur Sturla fengið meiri fjarlægð á þessa at- burði? Hann er ennþá reiður við Gissur þegar hann er að skrifa Há- konar sögu því Gissur hafði lofað honum embættum og stóð ekki við það. Það er beinlínis sagt í Hákonar sögu. Hún er skemmtileg til rann- sókna á Sturlu sjálfum, “ segir Sverrir. Það verður áhugavert að fylgjast með hvort þessi útgáfa verði til að efla rannsóknir á höfundinum, Sturlu Þórðarsyni, og ekki úr vegi að minnast hans á 800 ára afmæli hans árið 2014. Ljósmynd/Petr Šmerkl Höll Hákonarhöllin í Björgvin sem byggð var á tímum Hákonar gamla. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Hagkaup Gildir 10. - 13. okt verð nú áður mælie. verð Ísl. naut ungnautahakk 4%......... 1.759 2.199 1.759 kr. kg Holta úrb. kjúklinga bringur......... 2.099 2.799 2.099 kr. kg Ísfugl kalkúnasneið lemongras.... 1.539 2.199 1.539 kr. kg Íslandslamb lundir..................... 4.724 6.299 4.724 kr. kg Fjallabrauð................................ 299 449 299 kr. stk. Nóatún Gildir 11. - 13. okt verð nú áður mælie. verð Lamba Súpukjöt 1 flokkur .......... 799 898 799 kr. kg Lambahryggur m/ villisveppum... 2.158 2.698 2.158 kr. kg Lambalundir úr kjötbroði ............ 4.388 6.598 4.388 kr. kg SS grískt lambalæri ................... 1.998 2.569 1.998 kr. kg ÍM kjúklingabringur .................... 2.198 2.469 2.198 kr. kg Þín Verslun Gildir 10. - 13. okt verð nú áður mælie. verð Nautafillé úr kjötborði ................ 3.998 4.998 3.998 kr. kg Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.998 3.998 2.998 kr. kg Nautasnitzel úr kjötborði............. 2.398 2.998 2.398 kr. kg Nautagúllas úr kjötborði ............. 2.169 2.949 2.169 kr. kg Ísfugl kjúkl.læri/leggir magnbakk 999 1.249 999 kr. kg Krónan Gildir 10. - 13. okt verð nú áður mælie. verð Folaldagúllas eða Snitsel ........... 1.399 1.998 1.399 kr. kg Folaldapiparsteik ....................... 1.979 3.298 1.979 kr. kg Folalda-innralæri ....................... 2.299 3.298 2.299 kr. kg Folaldafile ................................. 2.598 3.898 2.598 kr. kg Folaldalundir ............................. 3.289 4.698 3.289 kr. kg Folaldahakk .............................. 299 598 299 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 10. - 12. okt verð nú áður mælie. verð Svínalundir úr kjötborði .............. 1.498 2.398 1.498 kr. kg Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 1.198 1.598 1.198 kr. kg Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.798 2.298 1.798 kr. kg Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.798 3.398 2.798 kr. kg Hamborgarar 2x115g m/brauði .. 420 504 420 kr. pk. Ali Bayonne-skinka .................... 1.198 1.495 1.198 kr. kg Kjarval Gildir 10.-13. okt verð nú áður mælie. verð Goða 4 grillborgarar m/brauði .... 749 898 749 kr. pk. Goða súpukjöt í poka................. 798 998 798 kr. kg SS kindabjúgu 400 pk ............... 298 358 298 kr. pk. Búrfells brauðskinka 250 g pk .... 398 449 398 kr. pk. Dala Auður 170 g pk.................. 399 509 399 kr. stk. Fersk jarðarber Driscoll 250 g ..... 399 699 399 kr. pk. Helgartilboð Lágmarks biðtími www.bilaattan.is ALLT á einum stað! Dekkjaverkstæði Varahlutir Bílaverkstæði Smurstöð „Sturla segir svo skemmtilega tröllkonu- sögu að fólk hópast í kringum hann“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.