Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Mörg þúsund tæki eru til á Land- spítalanum, stór sem smá. Elstu tækin eru orðin a.m.k. fimmtán til tuttugu ára gömul og mörg þeirra þarf að fara að endurnýja. Tölvu- sneiðmyndatækin tvö sem biluðu á sama tíma í fyrradag teljast þó ekki til þeirra. Þau eru tiltölulega nýleg, frá 2009 og 2010 og ekki á lista yfir þau tæki sem þarf að end- urnýja strax. „Þetta er í annað sinn á skömm- um tíma sem þau bila á sama tíma og um ólíkar bilanir að ræða. Þetta er bara óheppni, öll flókin tæki geta bilað en auðvitað eru eldri tæki líklegri til að bila,“ segir Jón Hilmar Friðriksson fram- kvæmdastjóri kvenna- og barna- sviðs og heilbrigðis- og upplýsinga- tæknideildar Landspítalans. Varahlutir eftir krókaleiðum Eins og fram hefur komið er tækjakostur Landspítalans að eld- ast og stöðugt berast fréttir af tækjum sem bila. Í fyrrasumar biluðu geislatæki spítalans og eitt af þremur hjartaþræðingartækjum. Eins og áður segir biluðu bæði tölvusneiðmyndatæki spítalans í vikunni og truflun kom upp í tveimur innri tölvukerfum spít- alans. „Við notum auðvitað ekki tæki sem eru ónýt eða eru hættuleg. Það eru samt mörg tæki sem eru gömul og kannski að bila oft, sum þeirra eru þannig að ef það kæmi upp alvarleg bilun í þeim þá gæt- um við ekki einu sinni fengið vara- hluti nema eftir krókaleiðum. Þetta er spurning um áhættu. Og þó að gömlu tækin bili ekki þá förum við á mis við tækniframfarir með því að endurnýja þau ekki,“ segir Jón. Nýtt geislatæki í uppsetningu Í fyrra fékk spítalinn 600 millj- ónir í viðbótarfjármagn til tækja- kaupa. Fyrir það fjármagn var meðal annars keyptur nýr línuhrað- all, sem er geislameðferðartæki. Hann kostaði rúmar 400 milljónir og kom gjafafé þar eitthvað á móti. „Við eigum tvo línuhraðla, annan tæplega tíu ára og hinn átján ára, og þetta nýja tæki leysir það eldra af hólmi. Það er planið að það verði komið í notkun í desember. Það fylgja oft einhverjar húsnæð- isbreytingar svona stórum tækjum. Það verður bara eitt tæki í notkun í smátíma en það er búið að gera ráðstafanir vegna þess.“ 600 milljónirnar hafa nýst í fleira. Von er á nýju hjartaþræð- ingartæki, en útboð á því er að klárast og ekki alveg vitað hvort það næst í hús á þessu ári. Þá er útboð í gangi á svæfingarvélum, verið er að endurnýja mónitora smátt og smátt og svo segir Jón nokkuð af rannsóknartækjum í endurnýjun. Þarf 1,4 milljarða á næsta ári En hvað er á dagskránni í tækja- kaupum á þessu ári? „Við getum ekki boðið út fyrr en við vitum hvaða fjármagn við fáum en það er verið að vinna forvinnuna að útboðum. Eitt tæki sem við verðum að fá óháð peningum er veirurannsóknartæki sem kostar 50 til 60 milljónir. Þá þurfum við nýtt æðaþræðingartæki í Fossvoginn sem kostar um 200 milljónir og nýtt segulómunartæki sem yrði til viðbótar vegna álags, það kostar líka um 200 milljónir. Það þarf að ráðast í endurnýjun á spegl- unarbúnaði fyrir 150 milljónir og að halda áfram að endurnýja svæf- ingarvélar. Þá þarf líka nýja hjart- sláttarmónitora og margt fleira,“ segir Jón. Jón segir að gerður hafi verið listi yfir nauðsynleg tækjakaup árið 2014 og til þeirra þurfi um 1,4 milljarða kr. Þá þurfi um milljarð hvort árið 2015 og 2016. „Millj- arður á ári til að endurnýja tækja- kostinn er að okkar mati lágmark. Það er mjög algengt að norrænu sjúkrahúsin miði við að 3% til 5% af veltu fari til tækjakaupa. Með svoleiðis viðmið ætti Landspítalinn að hafa 1,5 til 2 milljarða á ári til tækjakaupa.“ Mjög bjartsýn á aukið fjármagn Ekkert viðbótarfjárframlag er til tækjakaupa á Landspítalanum í fjárlagafrumvarpinu 2014. „Það eru settar um 200 milljónir í tækjakaup í frumvarpinu og þær eru í raun aðeins til fyrri skuld- bindinga. Ef við fáum ekki meira fjármagn til tækjakaupa þýðir það engin ný tæki á næsta ári. Ráð- herrar og Alþingi eru að skoða þörfina fyrir frekara fjármagn og miðað við yfirlýsingar þeirra erum við mjög bjartsýn.“ Þurfa 1,4 milljarða í tækjakaup 2014  Þarf að kaupa veirurannsóknartæki, æðaþræðingartæki, segulómunartæki, speglunarbúnað, svæfingarvélar og hjartsláttarmónitor á Landspítalann á næsta ári  Bjartsýn á aukafjármagn Morgunblaðið/Eggert Tækjakostur Landspítalinn þarf milljarð næstu árin til tækjakaupa. Spít- alinn á um átta þúsund tæki og eru þau elstu 15 til 20 ára gömul. Landspítalinn Jón Hilmar við yngra geislatækið. Það er um tíu ára gamalt og verður það eldra í desember þegar nýtt geislatæki verður tekið í notkun. Truflun hefur verið í hluta af innra tölvukerfi Landspítalans síðustu daga. Jón Hilmar segir að um sé að ræða röntgenkerfi og svara- og beiðnakerfi fyrir blóðrannsóknir. Skipt hafi verið um röntgen- kerfið, sem var orðið mjög gam- alt, og tæknilegir örðugleikar hafi komið upp þegar það nýja var sett inn. Þá sé líka verið að skipta svara- og beiðnakerfinu fyrir blóðrannsóknir út smátt og smátt og eigi þeirri vinnu að vera lokið í síðasta lagi í árslok. „Það er pirrandi fyrir starfsfólk þegar allir þessir hlutir gerast á sama tíma. Bilanirnar á tölvu- kerfinu hafa ekki sett sjúklinga í hættu því það er hægt að fara hjáleið þó það hægi á og trufli,“ segir Jón. Þarf að fara hjáleiðir TÖLVUKERFIÐ Sýningin Matur-inn 2013 hefst í Íþróttahöllinni á Akureyri næst- komandi föstudag kl. 13. Sýningin stendur í tvo daga og eru sýnendur um 30 talsins. Um er að ræða sölusýningu, sem er nú haldin í sjötta sinn en hún er haldin á tveggja ára fresti. Hún verður opin kl. 13-20 á föstudag og kl. 13-18 á laugardag. Aðgangur er ókeypis. Að sýningunni stendur félagið Matur úr Eyjafirði. Í tilkynningu segir, að þungamiðjan í sýningunni sé norðlensk matarmenning og matreiðsla eins og hún gerist best. Uppboð á gjafakörfum verður á sýningunni á laugardag og hefst það klukkan 16:15. Ágóði af upp- boðinu rennur til Krabbameins- félags Akureyrar og nágrennis. Á sýningu Um 15 þúsund manns sóttu sýninguna fyrir tveimur árum. Matarsýning á Akureyri um helgina Samþykkt var á fundi sveit- arstjórnar Hval- fjarðarsveitar í vikunni að af- þakka boð bæj- arstjórnar Akra- ness um við- ræður um sam- einingu sveitarfélaganna Akra- ness, Borgarbyggðar, Skorradals- hrepps og Hvalfjarðarsveitar. Tillaga um að afþakka boð um sameiningarviðræður var sam- þykkt með 4 atkvæðum en þrír sátu hjá. Í bókun segir að sveit- arstjórn telji slíkar viðræður ekki tímabærar þar sem skammt sé síð- an sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit varð til við sameiningu fjögurra sveitarfélaga. Afþakkar boð um sameiningarviðræður Hvalfjörður. Samtökin Litlir englar standa í næstu viku fyrir málþingi um missi á meðgöngu. Málþingið verður í Norræna húsinu þann 17. október. Það hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 16:30. Fram kemur í tilkynningu, að samtökin séu ætluð þeim sem hafi misst barn í móðurkviði eða stuttu eftir fæðingu og þeim sem þurfi að binda enda á meðgöngu vegna al- varlegs litningagalla. Málþing um missi á meðgöngu STUTT Skútuvogi 1h | 104 Reykjavík | Sími: 585 8900 | jarngler.is Rennihurða- brautir Mögluleiki á mjúklokun Sjálfvirkir hurðaopnarar fyrir húsfélög og fyrirtæki, ásamt uppsetningu og viðhaldi Hurðapumpur Möguleiki á léttopnun Fyrir hurðir og glugga Rafdrifnir glugga- opnarar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.