Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 18
AUSTURLAND DAGA HRINGFERÐ BAKKAGERÐI MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Kristján Geir Þorsteinsson kenn- aranemi og Óttar Már Kárason heimspekinemi fengu nóg af lífinu í höfuðborginni og ákváðu að koma til baka í heimahagana í Bakkagerði í Borgarfirði eystri. Þeir segja að þeir hafi fengið nóg af því að skrimta og borga hátt verð fyrir leiguhúsnæði en langaði þess í stað að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem fram fer í samfélaginu. Þeir eru hluti af nýrri kynslóð sem sér tækifæri á uppeld- isslóðum og segja grasið ekki grænna á mölinni. Námslánin í húsaleigu „Öll þau námslán sem maður fékk fóru í að borga húsaleigu í ein- hverri skíta-stúdíóíbúð. Ég fékk 1,1 milljón í námslán. Eftir að ég var bú- inn að vera í skólanum í níu mánuði, áttaði ég mig á því að 900 þúsund krónur höfðu farið í húsaleigu. Þá sá ég að það var óttaleg vitleysa að búa þarna til þess eins að styrkja Bygg- ingarfélag námsmanna,“ segir Krist- ján sem er á þriðja ári í kennaranámi og stundar nú fjarnám við Háskóla Íslands. „Ég var farinn að skulda námslán og fór bara heim til að vinna fyrir skuldum. Því ákvað ég að fresta náminu að sinni en ætla að taka ein- hver námskeið eftir jól,“ segir Óttar sem einnig nemur við HÍ. Þeir starfa báðir við fiskverkun hjá Fiskverkun Kalla Sveins. Eru handtökin þar alls ólík þeim mjúku fræðum sem þeir nema í háskólanum. „Við höfum unn- ið hérna öll sumur síðan við vorum 13 ára,“ segir Óttar. „Við höfum gripið í ýmis störf. Báðir höfum við unnið í múrverki og ég ólst upp á sveitabæ hér nærri. Þar hjálpaði ég foreldrum mínum við bústörfin. En það er erfitt að segja af hverju maður valdi þetta nám. Ég valdi upphaflega sagnfræði. Það var eiginlega vegna þess að mað- ur varð fyrir þrýstingi frá félögunum að sunnan sem sögðu að mann mundi bara daga uppi hérna án þess að læra nokkuð. Því valdi ég það til að velja eitthvað,“ segir Kristján. Aðspurðir segja þeir drauminn að geta búið í Bakkagerði í framtíðinni. Nýstofnað Framfarafélag hafi skapað mikla grósku og jákvæðni í samfélaginu. „Maður vinnur ekki í fiskverkun til eilífðarnóns og þetta Framfarafélag gerir mikið fyrir alla hugsun á svæð- inu. Því er maður bjartsýnn,“ segir Óttar og Kristján samsinnir því. Framfarafélagið jákvætt „Unga fólkið vill og sýnir áhuga á því að flytja hingað aftur. En það skiptist eiginlega við okkar aldur. Fólk sem er 25 ára og yngra vill koma aftur en þeir sem eldri eru hafa þegar komið sér upp lífi annars stað- ar og koma líklega ekki aftur. En frá því þau voru unglingar hefur svo margt breyst á svæðinu. Fyrir tíu ár- Morgunblaðið/Golli Þór og Danni Bæjarbúi líkti vinunum við Þór og Danna úr kvikmyndunum Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf. Unga fólkið vill flytja til baka í Bakkagerði  Vinna í fiskverkun því námslánin fóru öll í húsaleigu „Markmiðið með Framfarafélaginu er að huga að jákvæðri sam- félagsþróun og við einbeitum okkur að þremur þáttum: lífsgæðum, íbúðamálum og atvinnu,“segir Arn- grímur Viðar Ásgeirsson, formaður Framfarafélags Borgarfjarðar. Hann segir sveitarfélagið standa vel að þjónustu við íbúana, en það hafi veruleg áhrif á lífsgæði þeirra hversu lélegt netsambandið er á staðnum. Flutningsgeta netsins hefur ekki verið nýtt að sögn Arn- gríms. „Við höfum ekki verið „up to date“ í tæknimálum, en þetta horfir til betri vegar.“ Hann segir að ekki hafi verið byggt íbúðarhúsnæði í bænum und- anfarin 20-30 ár og ekkert húsnæði sé því í boði fyrir þá sem hafi hug á að flytja þangað. „Við viljum að byggðar verði litlar íbúðir sem gætu hentað ungu fólki.“ Hvað atvinnumál varðar segir Arngrímur ýmis færi vera til sókn- ar.„Við höfum verið að velta fyrir okkur hvað hægt sé að gera í land- búnaði og sjávarútvegi. Hér eru t.d. mikil landgæði fyrir sauðfjárrækt sem ekki eru nýtt í dag. Þetta snýst nefnilega ekki bara um að auka og breyta, heldur líka um endurnýjun þess sem þegar er til staðar. Svo þurfum við líka að finna leiðir til að hleypa nýju fólki inn í undirstöðuat- vinnugreinarnar.“ Allir áhugasamir geta verið í Framfarafélaginu, ekki er skilyrði að vera búsettur í Borgarfirði eystri eða eiga ættir þangað að rekja, og hægt er að skrá sig á Facebook-síðu félagsins. „Við eig- um áhangendur víða um heim,“ segir Arngrímur. „Það er eitthvað við svæðið sem er það jákvætt að menn vilja tengjast því. Hver vill ekki annars vera með í að þróa já- kvætt smásamfélag?“ Þróa jákvætt smásamfélag Framfarir Arngrímur Viðar segir marga möguleika vera á Bakkagerði. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þeir kalla Karl Sveinsson Kalla kóng, sem hefur samhliða út- gerð og fiskverkun starfrækt kaffihús í Bakkagerði í Borg- arfirði eystri ásamt konu sinni Margréti Bragadóttur. Yfir sumarið er hann með um 25 á launaskrá en um 15 á veturna. Er það stór hluti vinnandi manna á staðnum. Hann fæddist og ólst upp í Borgarfirði eystri og hefur alið þar manninn lengstum ef undan eru skilin ýmis störf sem hann sótti um landið á yngri ár- um. „Maður asnast alltaf til að bæta einhverju við sig eins og Álfakaffi er gott dæmi um. Svo vorum við að opna gistiheimili á Raufarhöfn. Það eru alltaf einhver ævintýri sem mann langar að taka þátt í,“ segir Kalli, sem er 57 ára gamall. Hugarfarið er til staðar Hann segist finna fyrir auknum áhuga hjá yngra fólki á samfélagsmálum. „Það er ekkert komið á koppinn ennþá en það er jarðvegur og hugarfar til staðar sem þarf að vera,“ seg- ir Kalli. Spurður um tækifærin segist Kalli ekki sjá þau í hendi en bendir á að alltaf séu tækifæri til staðar þegar hugvitið sér virkjað. „Í mörgum tilfellum skiptir staðsetningin ekki höf- uðmáli. Auðvitað erum við háð samgöngum og öðru en mik- ilvægast er að laga þessar netsamgöngur hjá okkur, þær eru ægilegur flöskuháls,“ segir Kalli. Maður verður að gera eitthvað Hann segir að sér þyki vænt um sína heimabyggð. „Maður gerir sér grein fyrir því að ef maður ætlar að búa hérna þá verður maður að gera eitthvað. Ef maður hefur fólkið með sér getur verið mjög skemmtilegt að byggja eitthvað upp. Svo þeg- ar á reynir þá styður fólkið alltaf kónginn sinn,“ segir Kalli og hlær innilega. Hann segir að þeir sem eldri eru hafi fundið fyrir auknum vilja meðal unga fólksins til að flytjast til baka undanfarin tvö ár. „Það hefur myndast afskaplega góð stemming síðustu tvö sumur. Hér hefur verið margt ungt fólk og þá sérstaklega í kringum tónlistina. Jónas Sigurðsson hélt hér t.a.m. tónleika á hverjum degi í 20 daga í fyrrasumar,“ segir Kalli, en að sögn kunnugra mættu að meðaltali um 150 manns á hverja tónleika, sem verður að teljast býsna gott þegar horft er til þess að í Bakkagerði og nærliggjandi sveitum búa um 140 manns. Hann segir að gott veður í sumar hafi gert mikið til að auka á bjart- sýni fólks. „Fólki fannst eins og það væri komið í paradís þegar það upplifði kyrrðina og fegurðina. Kannski hættir fólki til að halda að þetta sé bara alltaf svona,“ segir Kalli og hlær við. Fólkið styður kónginn sinn þegar á reynir  Kalli kóngur er með 25 starfsmenn á launaskrá Morgunblaðið/Golli Kalli Kóngur Karl rekur fiskverkun og kaffihús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.