Morgunblaðið - 10.10.2013, Page 21

Morgunblaðið - 10.10.2013, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nýlegar skoðanakannanir í Banda- ríkjunum benda til þess að fjárlaga- deila demókrata og repúblikana skaði báða flokkana. Deilan varð til þess að starfsemi margra ríkisstofnana stöðv- aðist að miklu leyti og kannanirnar sýna að um tveir þriðju Bandaríkj- anna telja að stöðvunin hafi valdið miklum vandamálum eða leitt til hættuástands. Í könnun, sem fréttasjónvarpið CNN birti á mánudag, sögðust 63% aðspurðra vera reið út í repúblikana vegna framgöngu þeirra í fjárlagadeil- unni. 57% sögðust vera reið demókröt- um og 53% voru einnig reið Barack Obama forseta. Niðurstaða könnunar CNN er í samræmi við nýlegar kann- anir Pew-rannsóknamiðstöðvarinnar og Gallup. Óháðir kenna báðum um Athyglisvert er að munurinn er minni meðal óflokksbundinna kjós- enda sem ráða oft úrslitum í kosning- um í Bandaríkjunum. Um 60% þeirra eru reið út í repúblikana, 59% demó- krata og 58% forsetann, ef marka má könnunina. Munurinn er því innan skekkjumarka. Repúblikaninn Newt Gingrich, fyrrv. forseti fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings, segir niðurstöður könnun- ar CNN koma sér mjög á óvart og vera í miklu ósamræmi við umræðuna í bandarískum fjölmiðlum um deiluna. Hann bendir á að þegar starfsemi ríkisstofnana stöðvaðist síðast, í des- ember 1995 og janúar 1996, benti könnun CNN til þess að 52% hefðu stutt Bill Clinton og 38% repúblik- ana.0 Gingrich segir í grein á vef CNN að Clinton hafi notið meiri stuðnings í baráttunni við repúblikana en Obama nú vegna þess að Clinton hafi virst sanngjarn og tilbúinn til að semja við repúblikana. Því sé öfugt farið með Obama sem hafi þverneitað að semja við repúblikana í fulltrúadeildinni um kröfur þeirra. „Ef repúblikanar end- urtaka á hverjum degi að þeir séu fús- ir til að semja og Obama og Harry Reid, leiðtogi meirihlutans í öldunga- deildinni, endurtaka á hverjum degi að þeir neiti að semja þá gæti það haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir demókrata,“ skrifar Gingrich. Harry J. Enten, sem bloggar um pólitíska tölfræði á vefsetrinu marginoferror.org, segir að þótt fleiri Bandaríkjamenn kenni repúblikönum um stöðvunina nú sé erfitt að spá um langtímaafleiðingar hennar fyrir flokkana tvo. Hann bendir á að könn- un Gallup sýnir að traust Bandaríkja- manna á efnahagnum hefur snar- minnkað vegna stöðvunarinnar. Verði deilan til þess að efnahagurinn versni sé líklegt að Obama verði fyrir mest- um pólitískum skaða, enda ráða efna- hagsmálin yfirleitt mestu um fylgi bandarískra forseta vestra. AFP Fjárlagaþjark Obama gagnrýnir repúblikana á blaðamannafundi. Fjárlagadeila skaðar báða flokkana vestra  Gæti skaðað Obama forseta mest ef efnahagurinn versnar Múslímar á bæn í Mekka þar sem um tvær milljónir pílagríma hafa komið síðustu daga til að taka þátt í pílagrímahátíð sem hefst á sunnudaginn kem- ur og stendur til 18. október. Stjórnin í Sádi-Arabíu hvatti í gær pílagrím- ana til að notfæra sér ekki hátíðina í pólitískum tilgangi eftir að skýrt var frá því að leiðtogar Bræðralags múslíma í Egyptalandi hefðu hvatt píla- gríma til að láta í ljósi stuðning við íslamistasamtökin og Mohamed Morsi, fyrrverandi forseta landsins. Stjórnvöld í Sádi-Arabíu studdu þá ákvörðun hersins í Egyptalandi að steypa Mohamed Morsi af stóli forseta í júlí. AFP Varað við pólitík í Mekka Barack Obama tilnefndi í gær hagfræðinginn Janet Yellen í embætti seðlabankastjóra Banda- ríkjanna til fjögurra ára. Staðfesti þingið tilnefninguna verð- ur Yellen fyrsta konan til að gegna embættinu. Hún á að taka við af Ben Bernanke sem hefur verið seðla- bankastjóri frá árinu 2006. Yellen hefur verið varaformaður stjórnar seðlabankans í fjögur ár og talið er líklegt að tilnefningin verði staðfest. Hún er 67 ára, lauk doktorsnámi í Yale-háskóla og hefur verið prófessor við Harvard- háskóla og Kaliforníuháskóla í Berkeley. Hún er gift George Akerlof, sem hlaut nóbels- verðlaunin í hagfræði árið 2001 ásamt Michael Spence og Joseph E. Stiglitz. Yellen tilnefnd í seðlabankann VILL AÐ KONA VERÐI SEÐLABANKASTJÓRI BANDARÍKJANNA Janet Yellen Deilan enn í hnút » Obama segist nú vilja ræða kröfur repúblikana, m.a. um breytingar á sjúkratrygg- ingum, gegn því að þeir sam- þykki fyrst bráðabirgðafjárlög og hækkun á skuldaþaki ríkis- ins, a.m.k. til skamms tíma. » John Boehner, forseti full- trúadeildarinnar, segir ekki koma til greina að samþykkja slíka skammtímalausn nema demókratar samþykki fyrst að minnka ríkisútgjöldin. Viðhaldsfríar hurðir Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 29 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Skotbómulyftarar mest seldi skotbómulyftarinn 2012 Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is Lyftigeta 2.5 til 12 tonn Fáanlegir með • Vinnukörfum • Skekkingju á bómu • Bómu með lengd allt að 18 metrum • Roto útfærsla með bómu allt að 25 metrum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.