Morgunblaðið - 10.10.2013, Page 23

Morgunblaðið - 10.10.2013, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Þjóðrækni Alltaf fer vel á því að klæða sig eftir veðri eins og þetta unga fólk sem átti leið um Pósthússtræti í gær. Ómar Réttlæti sem drepur er ekki raunverulegt réttlæti. Stjórnvöld í þeim 42 lönd- um sem standa að þessu ákalli um afnám dauðarefs- inga deila þeirri sannfær- ingu að þær séu í eðli sínu ómannúðlegar og að ekki eigi að beita þeim undir nokkrum kringumstæðum, nokkurs staðar í heiminum. Dauðarefsing gengur ekki einasta í berhögg við mann- lega reisn, heldur leiðir beiting hennar einnig til þess að brotið er á fjöl- mörgum öðrum mannrétt- indum dauðadæmdra og fjölskyldna þeirra. Dauða- refsingar draga hvorki úr glæpatíðni né auka öryggi, og eru á engan hátt til þess fallnar að bæta þann skaða sem fórnarlömb glæpa og fjölskyldur þeirra hafa orð- ið fyrir. Með þessa sann- færingu að leiðarljósi vilj- um við í tilefni af alþjóðlegum degi gegn dauðarefsingum, sem nú er haldinn í ellefta sinn, ítreka staðfestu okkar í barátt- unni fyrir afnámi þeirra, í löndum Evrópu og um heim allan. Markmiðið með þessu ákalli er ekki að veita of- anígjöf, heldur að deila reynslu okkar og sannfær- ingu. Ef við höfum lært nokkuð af afnámi dauða- refsinga í okkar eigin lönd- um er það hve leiðin getur verið löng og ströng. Dauðarefsingar voru ekki afnumdar á einni nóttu. Með aukinni vitund og stöðugri baráttu náðist ár- angur stig af stigi. Aftökum fækkaði smátt og smátt, og um leið þeim afbrotum sem dauðarefsing lá við, rétt- arkerfið varð gagnsærra, hætt var að framfylgja dauðadómum í reynd og loks voru dauðarefsingar aflagðar með öllu. Þessa leið þurfa þau lönd að feta sem enn framkvæma aftök- ur í nafni meints réttlætis. Með þessu sameiginlega ákalli viljum við einnig benda á að ríki verða að sýna staðfestu í baráttunni fyrir því að dauðarefsingar leggist af, rétt eins og ein- staklingar. Leiðin að af- námi dauðarefsinga lá ekki um lokuð samfélög eða ein- angruð lönd. Sú staðreynd að dauðarefsingar hafa nánast verið aflagðar í Evr- ópu í dag er afleiðing upp- lýstrar umræðu og virkra skoðanaskipta milli landa og samfélaga. Evrópuráðið og mann- réttindasáttmáli Evrópu hafa gegnt lykilhlutverki í þessari þróun innan Evr- ópu og jafnvel víðar. Gild- istaka samningsviðauka nr. 13 við mannréttinda- sáttmálann (bókun um af- nám dauðarefsinga undir öllum kringumstæðum) fyr- ir 10 árum er einmitt til marks um þetta. Í dag mælum við fyrir hönd 42 af þeim 44 ríkjum sem hafa fullgilt samningsviðauka nr. 13 og hvetjum öll aðildar- ríki Evrópuráðsins sem hafa ekki enn gert það til að ganga í lið með okkur. Við skorum eindregið á síð- asta Evrópuríkið sem enn beitir dauðarefsingum að taka fyrsta skrefið í átt að afnámi þeirra, með því að lýsa yfir stöðvun á fram- kvæmd dauðadóma. Þróunin í Evrópu varpar skýru ljósi á það grundvall- arhlutverk sem svæðis- bundnar og fjölhliða stofn- anir hafa að gegna í baráttunni fyrir afnámi dauðarefsinga. Afnám þeirra í mörgum ríkjum Ameríku, Afríku og Asíu ber merki um alþjóðlegt eðli baráttunnar. Þörfin fyrir sterk pólitísk skilaboð og þátttöku samfélagsins alls er ljós. Í þessum anda viljum við nýta þann skrið- þunga sem málið hefur fengið í kjölfar fimmtu heimsráðstefnunnar um af- nám dauðarefsinga, sem fram fór í Madríd í júní sl. Við höfum þessi grundvall- aratriði í huga þegar við hefjum nú mikilvægan kafla á leið okkar að afnámi dauðarefsingar á heimsvísu. Í dag er dauðarefsing heimil í um 50 löndum, en fyrir tuttugu árum voru þau næstum tvöfalt fleiri. Eins og ályktanir Samein- uðu þjóðanna sýna stækkar sífellt sá meirihluti ríkja sem styðja alþjóðlega stöðvun dauðarefsinga. Þessi jákvæða þróun gerir okkur kleift að ímynda okk- ur að næsta kynslóð fái lif- að í heimi án dauðarefsinga og hvetur okkur áfram í sameiginlegri viðleitni til að styðja önnur ríki í átt að al- gjöru afnámi þeirra. Undir þetta sameiginlega ákall um afnám dauðarefs- inga skrifa eftirtaldir ráð- herrar utanríkismála: » Sú staðreynd að dauðarefs- ingar hafa nánast verið aflagðar í Evrópu í dag er af- leiðing upplýstrar umræðu og virkra skoðanaskipta milli landa og samfélaga. Sameiginlegt ákall um afnám dauðarefsinga Ditmir Bushati (Albaníu), Gilbert Saboya Sunyé (Andorra), Mich- ael Spindelegger (Austurríki), Didier Reynders (Belgíu), Zlatko Lagumdžija (Bosníu og Hersegóvínu), William Hague (Bretlandi), Kristian Wigenin (Búlgaríu), Villy Søvndal (Danmörku), Urmas Paet (Eistlandi), Erkki Tuomioja (Finnlandi), Laurent Fabius (Frakklandi), Evangelos Venizelos (Grikklandi), Frans Tim- mermans (Hollandi), Eamon Gilmore (Írlandi), Gunnar Bragi Sveinsson (Íslandi), Emma Bonino (Ítalíu), Vesna Pusiæ (Króat- íu), Ioannis Kasoulides (Kýpur), Edgars Rinkeviès (Lettlandi), Aurelia Frick (Liechtenstein), Linas Antanas Linkevièius (Lithá- en), Jean Asselborn (Lúxemborg), Nikola Poposki (Makedóníu), George Vella (Möltu), Natalia Gherman (Moldóvu), José Badia (Mónakó), Espen Barth Eide (Noregi), Rui Machete (Portúgal), Titus Corlãean (Rúmeníu), Pasquale Valentini (San Marínó), Ivan Mrki (Serbíu), Miroslav Lajèák (Slóvakíu), Karl Erjavec (Slóven- íu), José Manuel García-Margallo (Spáni), Igor Lukšiæ (Svart- fjallalandi), Didier Burkhalter (Sviss), Carl Bildt (Svíþjóð), Jan Kohout (Tékklandi), Ahmet Davutoglu (Tyrklandi), János Mar- tonyi (Ungverjalandi), Leonid Koschara (Úkraínu) og Guido Wes- terwelle (Þýskalandi). Þrotabú stóru bankanna hafa verið undanþegin bankasköttum þrátt fyrir að þar hafi verið sýslað með 2.700 milljarða í peninga- legum eignum um árabil. Lehman Brothers-bankinn var settur í gjaldþrot örfá- um mánuðum eftir að hann féll en íslensku bankarnir eru enn að leitast við að ná nauðasamningum eftir fimm ár frá falli þeirra. Vinstri stjórnin skoðaði að aflétta und- anþágum þrotabúana en ákvað svo að sleppa því alfarið að reyna að skattleggja gömlu bankanna. Að sögn Steingríms J. Sigfússonar fv. fjármálaráðherra „var þetta skoðað og lagt til hliðar sem alger- lega óframkvæmanlegt á árunum 2009 og 2010 vegna þess að skattaandlagið var ekki til“ (Heimild vb.is). Fordæmin skortir ekki Ekki skortir að ríkið sé duglegt við að finna víða „skattaandlög“ og fátt sem ekki er skattlagt með einum eða öðrum hætti á Íslandi. Verða hér tekin þrjú dæmi. Hrein eign fólks er skattlögð á þessu ári með auðlegðarskattinum umdeilda án tillits til þess hvort eignin gefi af sér tekjur. Hér eru margskatt- lagðar eignir endurskatt- aðar án tillits til eðlis þeirra. Þrátt fyrir að hér sé gengið í átt að eignaupptöku hikaði vinstri stjórnin ekki við að skattleggja þetta „skatta- andlag“. Því hefur því verið haldið fram að þar sem þrotabúin skuldi kröfuhöfum meira en 2.700 milljarðana séu þau ekki „skattaandlag“. Því er til að svara að einn algeng- asti skattur landsins er fast- eignaskattur sem lagður er á allar fast- eignir án tillits til þess hvort á þeim hvíli skuldir eður ei. Enginn afsláttur er gef- inn af þessum skatti þó skuldir séu langt umfram verðmæti eignanna. Hann er auk þess forgangskrafa á undan veðlánum. Skatturinn sem lagður er á bankana er 0,145% sem er mun lægri en fast- eignaskattur sem getur numið 1.65% á eignir lögaðila. Þá hefur því verið haldið fram að gömlu bankarnir hafi tapað svo miklu að ekki sé hægt að skattleggja þá þess vegna. Rétt er að benda á að lagður er skattur á dán- arbú með erfðafjárskattinum án þess að nokkurt tillit sé tekið til þess hvort sá látni hafi tapað fé eður ei. Gildir eitthvað annað um þrotabú? Það er því af nógu taka þegar skoðað er hvað sé notað sem skattaandlag. Af hverju ætti þá að hlífa einmitt þeim bankastofnunum sem féllu með gríð- arlegu fjárhagstjóni fyrir allt íslenskt samfélag? Niðurgreiðslur úr ríkissjóði Færa má fyrir því rök að bankastarfs- semi sé í reynd niðurgreidd af ríkissjóði þó með óbeinum hætti sé. Vaxtabætur eru niðurgreiðslur á einni helstu vöru við- skiptabankanna og nema greiðslurnar tugum milljarða úr ríkissjóði á síðustu ár- um. Þrátt fyrir niðurskurð í fjárlaga- frumvarpi næsta árs verða 9.450 milljónir greiddar út úr skuldsettum ríkissjóði í þessar niðurgreiðslur. Þessi upphæð er mjög nálægt þeirri upphæð sem banka- skatturinn mun skila ríkissjóði til baka á næsta ári. Eftir Eyþór Arnalds »Ekki skortir að ríkið sé duglegt við að finna „skattaandlög“ víða enda flest skattlagt sem hugsast getur. Fordæmin eru bæði mörg og fjölbreytt. Höfundur er formaður bæjarráðs Árborgar. Er 2.700 milljarða skattaandlagið ekki til? Eyþór Arnalds

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.