Morgunblaðið - 10.10.2013, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013
Ég verð að heiman á afmælisdaginn, fer suður til Reykjavíkurtil að verja deginum í faðmi fjölskyldunnar,“ segir ÁrniStefánsson, íþróttakennari á Sauðárkróki og fv. landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, sem er 60 ára í dag. Árni er kvæntur
Herdísi Clausen hjúkrunarforstjóra og eiga þau fjögur börn og átta
barnabörn.
Árni hefur lyft grettistaki í almenningsíþróttum á Sauðárkróki á
undanförnum árum en hann hefur haldið utan um skokkhóp á staðn-
um í nærri 20 ár, auk þess að þjálfa knattspyrnu og kenna íþróttir í
Árskóla og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Hann kom til Sauðárkróks á sínum tíma úr atvinnumennsku í Jön-
köping í Svíþjóð, til að þjálfa og leika með Tindastóli. Áður var hann
í markinu hjá ÍBA, KA og Fram. „Maður verður svo að sjá landsleik-
inn á föstudaginn, það er gaman að fylgjast með þessum strákum í
dag. Þetta er aðeins öðruvísi umhverfi en þegar ég var í landslið-
inu,“ segir Árni, sem lék 15 A-landsleiki á árunum 1975-1978 og þar
áður sex leiki með U-19 liðinu. Að knattspyrnuferli loknum fór Árni
að stunda hlaup og hefur haldið sér í góðu formi síðan. „Ég er
reyndar hættur að hlaupa núna, en geng og hjóla. Líklega hef ég
hlaupið yfir mig,“ segir Árni og hlær. Hið svonefnda Árnahlaup var
haldið honum til heiðurs á Sauðárkróki í sumar, í tilefni sextugs-
afmælisins, og við það tækifæri var hann heiðraður af ÍSÍ fyrir
framlag sitt í þágu almenningsíþrótta. „Það var virkilega gaman,
fallegur og skemmtilegur dagur,“ segir Árni en óákveðið er hvort
Árnahlaupið verður árlegur viðburður héðan í frá. bjb@mbl.is
Árni Stefánsson íþróttafrömuður 60 ára
Ljósmynd/Kristín Sigurrós
Heiðraður Árni Stefánsson þakkar heiðurinn sem ÍSÍ sýndi honum í
sumar fyrir framlag til almenningsíþrótta í Skagafirði undanfarin ár.
Fagnar í faðmi fjöl-
skyldunnar í dag
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hólmfríður Árna-
dóttir, prófessor
emeritus, og Bjarni
Jónsson, fyrrver-
andi Verzlunar-
skólakennari, eiga
sextíu ára brúð-
kaupsafmæli í dag,
10. október. Þau
verða að heiman.
Demantsbrúðkaup
Hella Elías Teo fæddist 25. júní kl.
8.55. Hann vó 4.730 g og var 55 cm
langur. Foreldrar hans eru Therese
Sundberg og Kristinn Scheving.
Nýir borgarar
Reykjavík Sóley Nikíta fæddist 30.
júní kl. 6.19. Hún vó 3.940 g og var 53
cm löng. Foreldrar hennar eru Sig-
urborg Benediktsdóttir og Stefán
Kjartansson.
H
ögni fæddist á Ísa-
firði 10.10. 1933.
Hann fór á fjórða ári
til hjónanna Hall-
dóru Guðmunds-
dóttur og Jóns Jónssonar, að Sæ-
bóli á Ingjaldssandi við
Önundarfjörð og dvaldi hjá þeim
meira og minna til 17 ára aldurs.
Högni gekk í barnaskóla á Ísa-
firði um skeið en var þó lengst af í
skóla hjá föðurbróður sínum, Guð-
mundi Bernharðssyni á Ingjalds-
sandi.
Högni vann við skipasmíðastöð
föður síns frá 17 ára aldri og fram
til fimmtugs. Þar sinnti hann ýms-
um störfum, tók meirapróf um tví-
tugt og ók síðan vörubílum og
stjórnaði vinnuvélum.
Högni var gangavörður við
Grunnskólann á Ísafirði 1983-2003.
Hann var afar vinsæll meðal
barnanna, einkum þeirra yngstu
sem oftast kölluðu hann skólaafa,
en sum héldu reyndar að hann
væri skólastjórinn eða ætti skól-
ann. Er hann hætti störfum, sök-
um aldurs, samdi Þóra Karlsdóttir
kennari kvæði sem börnin sungu
fyrir skólaafann sinn. Það hefst á
þessu erindi:
„Hann Högni er að hætta nú í dag
og honum vil ég flytja lítinn brag
og þakka fyrir öll hin góðu ár
er áttum saman þegar ég var smár.“
Aðaláhugamál Högna eru smíðar
og gönguferðir. Fyrir honum er
Ingjaldssandur fallegasti staður á
landinu og sumarið ekki hafið fyrr
en hann hefur komið þangað á vor-
in.
Frá því Högni hætti störfum
hefur hann dundað sér við smíðar
og sinnt barnabörnum og langafa-
börnum sem leita mikið til afa og
ömmu.
Fjölskylda
Högni kvæntist 30.12. 1961 Frið-
rikku Runný Bjarnadóttur, f.
14.10. 1942, er vann við umönnun.
Foreldrar hennar voru Bjarni
Elías Gunnarsson, f. 13.4. 1916, d.
2.1. 1981, sjómaður á Ísafirði, og
Stefanía Daníelsdóttir, f. 9.4. 1915,
d. 4.6. 1979, húsfreyja.
Börn Högna og Runnýjar eru
Stefán Bjarni, f. 25.9. 1959, raf-
iðnfræðingur í Reykjavík en kona
hans er Guðríður Berglind Frið-
þjófsdóttir skrifstofumaður og eru
Högni Marsellíusson, bílstjóri og skólaliði – 80 ára
Skólaafinn kvaddur Þegar Högni hætti störfum við grunnskólann var hann kvaddur með söng 200 barna.
Afi, langafi og skólaafi
Langafadætur Högni með Krist-
jönu Malen og Þórdísi Birnu.
Ljósmynd/Bæjarins besta
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur | S: 554 6800 | Njarðarnesi 9, 603 Akureyri | S: 466 3600 | www.vidd.is
F L Í S A V E R Z L U N
flísaparket...