Morgunblaðið - 10.10.2013, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.10.2013, Qupperneq 34
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Heimur handritanna nefnist alþjóðleg ráð- stefna um handritafræði sem hefst í Nor- ræna húsinu í dag kl. 13 og lýkur á laug- ardag. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum stendur fyrir ráðstefn- unni. Tilefni hennar er að 13. nóvember nk. verða liðin 350 ár frá fæðingu Árna Magn- ússonar, en samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni verður boðið upp á fleiri viðburði á afmælisárinu. Á næstu þremur dögum verður, að sögn skipuleggjenda, boðið upp á sextán fyr- irlestra um sértæk efni auk þess sem boðið verður upp á erindi sem höfða til almenn- ings. Á ráðstefnunni verður sjónum m.a. beint að einstökum þáttum sem handritin eru gerð úr, efni þeirra, letri, textum, mynd- um, litum og nótum. Einnig verður fjallað um handritasafnara, Árna Magnússon og aðra. Meðal fyrirlesara verða þekktir handrita- fræðingar úr hópi þeirra sem rannsakað hafa handritin í safni Árna Magnússonar og fræðimenn sem hlotið hafa alþjóðlega við- urkenningu fyrir rannsóknir sínar á hand- ritum í öðrum söfnum. Þeirra á meðal má nefna Jeffrey Hamburger frá Harvard- háskóla og Susan Rankin frá Háskólanum í Cambridge, en heiðursgestur ráðstefnunnar verður rithöfundurinn Arnaldur Indriðason. Árni hundelti skinnblöðin „Í fyrirlestri mínum ætla ég að taka fyrir ákveðið smáatriði sem er mið- lægt í handritasöfnun Árna Magn- ússonar og sérstakt miðað við sam- tímamenn hans,“ segir Már Jónsson, prófessor í sagnfræði, sem er einn fjögurra Íslendinga sem flytja er- indi á ráðstefnunni. Már hefur skrifað tvær bækur um Árna Magnússon, sú fyrri kom út á íslensku 1998 og sú seinni á ensku „Árni var sér meðvit- aður um gildi allra skinnsnepla sem hann gat komist yfir. Hann safnaði ekki bara heil- legum handritum sem litu vel út, heldur hverju einasta blaði sem hann fann og fylgdi þessari stefnu allt til dauðadags,“ segir Már og heldur áfram til útskýringar: „Á 17. öld voru gömul handrit eyðilögð unnvörpum og sum þeirra voru rif- in í sundur og blöð úr þeim notuð til að skýla prentuðum bókum. Árni hundelti þessi blöð og náði þar af leiðandi mörgum af mjög merkilegum textum. Árni vildi greinilega heldur fá eitthvað úr gömlum handritum en ekki neitt. Þessi afstaða hans er mjög merki- leg og mikilvæg.“ Markaði sér ungur safnastefnu Aðspurður hvenær Árni hafi gert sér grein fyrir gildi stakra blaðsíðna segir Már allt benda til þess að hann hafi aðeins verið rúmlega tvítugur að aldri. „Vitað er að Árni fékk í hendurnar eitt blað úr Heimskringlu-handriti eftir föður sinn, sennilega árið 1685 þegar dánarbúið var gert upp. Það er tilgáta mín að Árni hafi þá þegar áttað sig á því að blöð úr gömlum handritum væru notuð utan um prentaðar bækur. Í bréfi sem hann ritar rúmlega þrí- tugur lýsir hann að hann hafi hirt utan af mörgum bókum svona blöð,“ segir Már. Bendir hann á að meira en helmingur allra skinnhandrita í safni Árna sé bútar. Glötunin er ofboðsleg „Verðgildi þeirra er ómetanlegt. Um 75% allra íslenskra skinnhandrita eru í safni Árna og tæplega 90% af þessum pörtum. Heildarstofn íslenskra handrita nær ekki þúsund handritum og ef ekki væri fyrir þessi stöku blöð þá myndu ekki vera nema um 300 til 400 handrit í safninu og þá í flestum til- fellum heilar bækur. Brotin lágu undir skemmdum og hefðu bara horfið. Glötunin er ofboðsleg, en þökk sé Árna höfum við full- trúa fyrir miklu fleiri handrit, en við mynd- um annars hafa haft,“ segir Már og bætir við: „Ég hef hvergi séð annan eins ákafa og stefnufestu með þessi handritsbrot og hjá Árna. Hann hefur hvað þetta varðar allmikla sérstöðu á alþjóðavísu.“ Spurður um gildi ráðstefnunnar sem hefst í dag segir Már upplyftingu að fá erlendra fræðimenn til að setja íslensku handritin í stærra samhengi. „Þannig getur myndast skemmtileg samræða og tengsl við stærri fræðasvið sem eru mikið stunduð við há- skóla, handrita- og bókasöfn víða er- lendis,“ segir Már að lokum. Allar nánari upplýsingar um dag- skrána eru á arnastofnun.is, en rétt er að geta þess að ráðstefnan er öll- um opin meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis. 350 ár frá fæðingu Árna  Alþjóðlega ráðstefnan Heimur handritanna hefst í Norræna húsinu í dag  Heiðursgesturinn Arnaldur Indriðason flytur erindi í dag milli kl. 14.15-15 Már JónssonÁrni Magnússon 34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Gennady Rozhdestvenskíj stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á tón- leikum í Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 19.30. „Gennady Rozh- destvenskíj er goðsögn í lifanda lífi og einn kunnasti hljómsveitarstjóri samtímans. Milli hans og Sinfón- íuhljómsveitarinnar hefur myndast náið samband sem skapað hefur ógleymanlegar stundir í tónleika- sal. Í fylgd meistarans er eiginkona hans píanóleikarinn Viktoria Postnikova og í farteskinu þrjú öndvegisverk rússneskra tón- bókmennta,“ segir m.a. í tilkynn- ingu. Verkin þrjú eru hátíðarfor- leikurinn Rússneskir páskar sem og Píanókonsert eftir Rimsky- Korsakov og loks 10. sinfónía Dmit- ríjs Sjostakovitsj. Vinafélag Sinfón- íuhljómsveitarinnar stendur fyrir tónleikakynningu í dag kl. 18 þar sem Sigurður Ingvi Snorrason kynnir verk kvöldsins. „Goðsögn í lifanda lífi“  Gennady Rozh- destvenskíj stjórnar Ljósmynd/Wladimir Polak Meistari Gennady Rozhdestvenskíj. Eiríkur Hauksson verður gestur hjá Jóni Ólafssyni í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum í kvöld kl. 20.30. „Eiríkur á að baki fjölbreyttan tónlistarferil. Hann hefur sungið þungarokk, kraftballöður, íslensk dægurlög að ógleymdum Eurovision- lögunum. Má þá nefna „Gaggó Vest“, „Gleðibankann“, „Gull“, „Ástarbréf merkt X“ og „Sekur“. Eiríkur hefur búið í Noregi um langa hríð og hyggst Jón m.a. rannsaka hvort það hafi haft slæm áhrif á kímnigáfu hins rauðhærða stórsöngvara, segir í tilkynn- ingu. Með þeim leikur Friðrik Sturluson, bassaleikari. Sekur í Gaggó Vest Af fingrum fram með Eiríki Hauks Eiríkur Hauksson Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda tvenna söngtónleika á Norður- landi undir yfirskriftinni: „Við slag- hörpuna.“ Fyrri tónleikarnir eru í kvöld kl. 20 í Hofi á Akureyri og þeir seinni annað kvöld kl. 20 í Bergi á Dal- vík. Á efnisskránni eru sjaldheyrð ís- lensk sönglög eftir m.a. Jakob Hall- grímsson og Jóhann Ó. Haraldsson sem og verk eftir stórmeistara söng- lagagerðar, þá Franz Schubert og Jean Sibelius. Þar getur að heyra m.a. „Grétu við rokk- inn“ eftir Schubert og „Svartar rósir“ eftir Sibelius. Við slaghörpuna á Norðurlandi Söngtónleikar með Björgu og Jónasi Björg Þórhallsdóttir Týsgallerí nefnist nýtt gallerí sem opn- að verður í dag kl. 17. Fyrstur til að sýna í galleríinu, sem staðsett er á Týs- götu 3 í Reykjavík, er Baldur Geir Bragason. Samkvæmt upplýsingum frá sýningarstaðnum verður í Týsgall- eríi lögð áherslan á einkasýningar með viðurkenndum myndlistarmönnum og sölu á verkum þeirra. „Týsgallerí mun bjóða upp á kynningar fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér samtímalist sem fjárfestingarleið,“ segir m.a. í tilkynningu. Nýtt gallerí opnað á Týsgötu Baldur Geir með opnunarsýningu Baldur Geir Bragason Myndlistarmaðurinn Húbert Nói Jóhannesson opnar sýningu í Menningarhúsinu Skúrnum í kvöld kl. 20. Skúrinn stendur nú við gömlu grásleppuskúrana við Ægisíðu í vesturbæ Reykjavíkur. „Þegar dimmt er orðið á kvöldin kviknar á verkinu og geta gestir og gangandi skoðað það innum glugga Skúrsins. Sýn- ingin ber yfirskriftina Sjálfvitund. Húbert Nói útskrif- aðist frá Nýlistadeild Myndlista-og handíðaskóla Ís- lands 1987. Höfundarverk Húberts Nóa hefur frá upphafi snúist um tvo meginþætti, minni og staðsetn- ingu,“ segir m.a. í tilkynningu. Sýningin stendur til 27. október. Húbert Nói Jóhannesson Húbert Nói er í Skúrnum Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is Erum með allt fyrir Góður endir á góðum degi Nuddpottar Hreinsiefni Síur Viðgerðarþjónusta Varahlutir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.