Morgunblaðið - 10.10.2013, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 10.10.2013, Qupperneq 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Hvernig myndi manni líðaef maður fengi að verafluga á vegg á æfingu hjáleikstjóranum Peter Bro- ok? Þeirri upplifun reynir kvik- myndagerðarmaðurinn Simon Brook að miðla með býsna góðum árangri í heimildarmynd um föður sinn sem nefnist The Tightrope. Áhorfendur fá að fylgjast með hópi leikara, dansara og tónlistarmanna að störfum undir leiðsögn Peters Brook sem einnig tal- ar beint til myndavélarinnar í inn- skotum inn á milli. Meginuppistaðan í myndinni felst í glímu leikhópsins við eina af grunnæfingum Peters Brook, en hún byggist á því að þátttakendur gangi á ímyndaðri línu með svo sann- færandi hætti að áhorfendur trúi því að um raunverulegan línudans upp á líf og dauða sé að ræða. Æfinguna notar Peter Brook til þess að stilla saman leikhópinn með það að mark- miði að hann starfi saman sem einn hugur. Leikstjórinn Simon Brook var við- staddur sýningu myndarinnar á nýaf- staðinni RIFF-kvikmyndahátíð og svaraði spurningum áhorfenda. Þar kom m.a. fram að hann þurfti að beita föður sinn talsverðum fortölum til að samþykkja gerð myndarinnar, en að faðir hans væri himinlifandi með út- komuna þar sem hún gæfi raunsanna mynd af leikhúsvinnu og -aðferðum hans. Peter Brook hefur fram til þessa neitað utanaðkomandi fólki um að fylgjast með æfingum sínum, enda myndi slíkt hafa truflandi áhrif á vinnuna sjálfa. Upptökur spönnuðu tveggja vikna tímabil þar sem tekið var upp í fimm til sex klukkustundir á dag, en smíðaðir voru kassar utan um kvikmyndavélarnar sem umluktu æf- ingarýmið til þess að koma í veg fyrir að þátttakendur freistuðust til þess að leika fyrir vélarnar. Þátttakendur klæddust sömu fötunum allan upp- tökutímann sem skapar ákveðið tíma- leysi. Simon Brook sagðist hafa hand- valið þátttakendur og gætt þess að í hópnum væri bæði listamenn sem unnið hefðu með Peter Brook, s.s. japanski leikarinn Yoshi Oida og ind- verski Kuchipudi-dansarinn Shantala Shivalingappa, sem og listamenn sem aldrei hefðu unnið með honum áður. Jafnframt upplýsti hann að leikhóp- urinn hefði verið settur saman ein- vörðungu fyrir gerð myndarinnar og því væri hópurinn ekki að vinna að uppsetningu tiltekinnar sýningar. Sennilega hefði það verið kostur að þessar áhugaverðu upplýsingar um tilurð myndarinnar kæmu fram í henni sjálfri, því þær útskýra að nokkru þá vankanta sem á henni eru. Vissulega gefur myndin ómetanlega innsýn í vinnuaðferðir þessa merk- asta núlifandi leikhúslistamanns, sem fagnar 89 ára afmæli sínu snemma á næsta ári. Hins vegar verður að telj- ast ólíklegt að hún höfði til annarra en innvígðra, til þess er myndin of sérhæfð og á köflum einhæf. En fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á sviðs- listum og sérstaklega leikhúsi Peters Brook er myndin stórkostleg heimild. Ómetanleg heimild „Fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á sviðslistum og sérstaklega leikhúsi Peters Brook er myndin stórkostleg heimild,“ segir m.a. í gagnrýni um heimildarmyndina The Tightrope. Eins og fluga á vegg RIFF – Háskólabíó Línudans / The Tightrope bbbmn Leikstjóri: Simon Brook. Handrit: Peter Brook og Simon Brook. Aðalleikarar: Peter Brook, Yoshi Oida, Shantala Shi- valingappa, Marcello Magni, Jos Hou- ben, Abdou Ouologuem, Lydia Wilson, Micha Lescot, Cesar Sarachu, Khalifa Natour, Hayley Carmichael, Emily Wil- son, Toshi Tsuchitor, Franck Krawczyk og Marie-Helene Estienne. Bretland/ Ítalía/Frakkland, 2012. 86 mín. Heimild- armynd. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR KVIKMYNDIR Hollenski myndlistarmaðurinn André Pielage opnar sýningu í Ganginum, heimagalleríi Helga Þor- gils Friðjónssonar myndlistarmanns að Rekagranda 8, í dag kl. 17 til 19. „Verkin mín fjalla að vissu leyti um ljóðrænuna í tóminu,“ sagði Pie- lage þar sem hann var að koma fyrir innsetningu úr ódýru plastefni við innganginn á heimilið en hann er kunnur fyrir slík verk, sem hann vinnur ýmist úti í náttúrunni eða í liststofnunum. Hann tekur undir að þessi innsetning kunni að vísa í fag- urblá fjöll. Hann sýnir einnig skúlp- túra úr áli og stálvír, og teikningar. Morgunblaðið/Einar Falur Innsetning André Pielage við hluta inn- setningar á heimilinu við Rekagranda. Pielage sýnir í Ganginum Sýning á myndverkum eftir Rannveigu Helga- dóttur verður opnuð í bókasafni Háskólans á Akureyri í dag, 10. október, og stendur sýningin í tæpan mánuð. Sýninguna kallar Rannveig „Heilagar mandölur“ en í málverkum, sem unnin eru með blandaðri tækni á striga, vinnur hún með hringformið. Orðið mandala kemur úr sanskrít og merkir „heilagur hringur“ eða hringur eilífðarinnar. Rannveig býr og starfar í Listagilinu á Akureyri. Rannveig sýnir mandölur Hringur Ein af mandölum Rannveigar Helgadóttur. Mary Poppins (Stóra sviðið) Fim 10/10 kl. 19:00 19.k Mið 23/10 kl. 19:00 21.k Fös 1/11 kl. 19:00 aukas Lau 12/10 kl. 19:00 aukas Fim 24/10 kl. 19:00 22.k Lau 2/11 kl. 13:00 aukas Sun 13/10 kl. 13:00 aukas Fös 25/10 kl. 19:00 23.k Sun 3/11 kl. 13:00 aukas Mið 16/10 kl. 19:00 20.k Lau 26/10 kl. 13:00 aukas Fim 7/11 kl. 19:00 aukas Lau 19/10 kl. 13:00 aukas Sun 27/10 kl. 13:00 aukas Fös 8/11 kl. 19:00 aukas Sun 20/10 kl. 13:00 aukas Fim 31/10 kl. 19:00 aukas Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala. Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið) Fim 10/10 kl. 20:00 4.k Lau 26/10 kl. 20:00 16.k Mið 20/11 kl. 20:00 28.k Fös 11/10 kl. 20:00 5.k Sun 27/10 kl. 20:00 17.k Fim 21/11 kl. 20:00 29.k Lau 12/10 kl. 20:00 6.k Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Fös 22/11 kl. 20:00 30.k Sun 13/10 kl. 20:00 7.k Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Mið 27/11 kl. 20:00 aukas Þri 15/10 kl. 20:00 aukas Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Fim 28/11 kl. 20:00 31.k Mið 16/10 kl. 20:00 8.k Mið 6/11 kl. 20:00 aukas Fös 29/11 kl. 20:00 32.k Fim 17/10 kl. 20:00 9.k Fim 7/11 kl. 20:00 23.k Sun 1/12 kl. 20:00 33.k Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Fös 8/11 kl. 20:00 21.k Fim 5/12 kl. 20:00 34.k Lau 19/10 kl. 20:00 11.k Lau 9/11 kl. 20:00 22.k Fös 6/12 kl. 20:00 35.k Sun 20/10 kl. 20:00 12.k Sun 10/11 kl. 20:00 24.k Sun 8/12 kl. 20:00 36.k Þri 22/10 kl. 20:00 aukas Mið 13/11 kl. 20:00 25.k Fim 12/12 kl. 20:00 37.k Mið 23/10 kl. 20:00 13.k Fim 14/11 kl. 20:00 26.k Fös 13/12 kl. 20:00 38.k Fim 24/10 kl. 20:00 14.k Fös 15/11 kl. 20:00 27.k Lau 14/12 kl. 20:00 39.k Fös 25/10 kl. 20:00 15.k Þri 19/11 kl. 20:00 aukas Epískur tónsjónleikur. ATH! Ekki unnt að hleypa inní sal eftir að sýning hefst Rautt (Litla sviðið) Fös 11/10 kl. 20:00 18.k Mið 16/10 kl. 20:00 21.k Fim 24/10 kl. 20:00 24.k Lau 12/10 kl. 20:00 19.k Sun 20/10 kl. 20:00 22.k Fös 25/10 kl. 20:00 25.k Sun 13/10 kl. 20:00 20.k Mið 23/10 kl. 20:00 23.k Sun 27/10 kl. 20:00 27.k Verðlaunaverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Allra síðustu sýningar! Mýs og menn (Stóra sviðið) Fös 18/10 kl. 20:00 1.k Lau 2/11 kl. 20:00 4.k Lau 16/11 kl. 20:00 7.k Lau 19/10 kl. 20:00 2.k Lau 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 17/11 kl. 20:00 8.k Lau 26/10 kl. 20:00 3.k Sun 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 23/11 kl. 20:00 9.k Meistaraverkið eftir John Steinbeck aftur á svið Hús Bernhörðu Alba (Gamla bíó) Fös 18/10 kl. 20:00 frums Sun 27/10 kl. 20:00 5.k Sun 10/11 kl. 20:00 8.k Sun 20/10 kl. 20:00 3.k Sun 3/11 kl. 20:00 6.k Lau 16/11 kl. 20:00 9.k Lau 26/10 kl. 20:00 4.k Lau 9/11 kl. 20:00 7.k Sun 17/11 kl. 20:00 10.k Sígilt verk Lorca í kraftmikilli nálgun okkar fremstu listakvenna Saumur (Litla sviðið) Lau 19/10 kl. 20:00 frums Sun 10/11 kl. 20:00 3.k Fös 22/11 kl. 20:00 5.k Lau 26/10 kl. 20:00 2.k Fim 21/11 kl. 20:00 4.k Nærgöngult og nístandi verk eftir eitt magnaðasta samtímaleikskáld Bretlands Haustsýning ÍD: Tímar Sentimental, again (Stóra sviðið) Fös 11/10 kl. 20:00 frums Sun 20/10 kl. 20:00 3.k Sun 3/11 kl. 20:00 5.k Sun 13/10 kl. 20:00 2.k Sun 27/10 kl. 20:00 4.k Tímar eftir Helenu Jónsdóttur; Sentimental, again eftir Jo Strömgren Mary Poppins „Stórfengleg upplifun“ – EB, Fbl HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Harmsaga – ★★★★★ „Frábær tónlist, leikmyndin, leikstjórnin, leikararnir. Þetta er bara vel heppnað!“ Rúnar Freyr Gíslason - Bylgjan Englar alheimsins (Stóra sviðið) Fös 11/10 kl. 19:30 39.sýn Lau 26/10 kl. 19:30 43.sýn Fim 7/11 kl. 19:30 45.sýn Mið 16/10 kl. 19:30 Aukas. Þri 29/10 kl. 19:30 Aukas. Lau 9/11 kl. 19:30 46.sýn Fim 17/10 kl. 19:30 41.sýn Mið 30/10 kl. 19:30 Aukas. Fim 14/11 kl. 19:30 47.sýn Fös 25/10 kl. 19:30 42.sýn Fim 31/10 kl. 19:30 44.sýn Lau 16/11 kl. 19:30 48.sýn Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús! Maður að mínu skapi (Stóra sviðið) Lau 12/10 kl. 19:30 9.sýn Fim 24/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/11 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/10 kl. 19:30 10.sýn Lau 2/11 kl. 19:30 14.sýn Lau 19/10 kl. 19:30 11.sýn Mið 6/11 kl. 19:30 Aukas. Ekki missa af sýningunni sem allir eru að tala um. Aðeins þessar sýningar. ÓVITAR (Stóra sviðið) Sun 13/10 kl. 13:00 Frums. Sun 27/10 kl. 16:00 6.sýn Sun 17/11 kl. 13:00 11.sýn Sun 13/10 kl. 16:00 2.sýn Sun 3/11 kl. 13:00 7.sýn Sun 17/11 kl. 16:00 12.sýn Sun 20/10 kl. 13:00 3.sýn Sun 3/11 kl. 16:00 8.sýn Sun 1/12 kl. 14:00 Aukas. Sun 20/10 kl. 16:00 4.sýn Sun 10/11 kl. 13:00 9.sýn Sun 8/12 kl. 14:00 Aukas. Sun 27/10 kl. 13:00 5.sýn Sun 10/11 kl. 16:00 táknm. Pollock? (Kassinn) Mið 30/10 kl. 19:30 Frums. Sun 10/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 23/11 kl. 19:30 9.sýn Fim 31/10 kl. 19:30 2.sýn Lau 16/11 kl. 19:30 6.sýn Sun 24/11 kl. 19:30 10.sýn Sun 3/11 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 30/11 kl. 19:30 11.sýn Lau 9/11 kl. 19:30 4.sýn Mið 20/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 1/12 kl. 19:30 12.sýn Þrælfyndið leikrit byggt á sannsögulegum atburðum. Harmsaga (Kassinn) Lau 12/10 kl. 19:30 9.sýn Lau 19/10 kl. 19:30 11.sýn Sun 27/10 kl. 19:30 Sun 13/10 kl. 19:30 10.sýn Sun 20/10 kl. 19:30 Ofsafengin ástarsaga sótt beint í íslenskan samtíma Aladdín (Brúðuloftið) Lau 12/10 kl. 13:30 2.sýn Lau 26/10 kl. 13:30 6.sýn Lau 9/11 kl. 13:30 Lau 12/10 kl. 16:30 3.sýn Lau 26/10 kl. 16:30 7.sýn Lau 9/11 kl. 16:30 Lau 19/10 kl. 13:30 4.sýn Lau 2/11 kl. 13:30 Lau 16/11 kl. 13:30 Lau 19/10 kl. 16:30 5.sýn Lau 2/11 kl. 16:30 Lau 16/11 kl. 16:30 Brúðusýning fyrir áhorfendur á öllum aldri Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 12/10 kl. 13:30 97. sýn Lau 19/10 kl. 13:30 99. sýn Lau 26/10 kl. 13:30 101. sýn Lau 12/10 kl. 15:00 98. sýn Lau 19/10 kl. 15:00 100. sýn Lau 26/10 kl. 15:00 102. sýn Karíus og Baktus mæta aftur í október! Menn - skemmtikvöld (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 11/10 kl. 20:00 Fös 18/10 kl. 20:00 Lau 12/10 kl. 20:00 Lau 19/10 kl. 20:00 leikhusid.is Sinfóníuhljómsveit Íslands Örfá sæti laus Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » 528 5050 Nikolai Rimsky-Korsakov:Rússneskir páskar Nikolai Rimsky-Korsakov: Píanókonsert Dmitríj Sjostakovits: Sinfónía nr. 10 Stjórnandi:Gennady Rozhdestvensky Einleikari:Viktoria Postnikova Tónleikakynning kl. 18 í Hörpuhorni Henry Purcell/AndrewManze:Svíta Benjamin Britten:Konsert fyrir fiðlu Benjamin Britten:Hirðdansar úr Sinfónískri svítu, Gloriana JosephHaydn: Sinfónía nr. 102 Stjórnandi: : AndrewManze Einleikari:AnthonyMarwood Fiðlukonsert og hirðdansar Fim. 24.10. kl. 19.30 Rozhdestvenskíj snýr aftur Fim. 10.10. kl. 19.30

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.