Morgunblaðið - 10.10.2013, Síða 36

Morgunblaðið - 10.10.2013, Síða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Skugginn af sjálfum mér nefnist nýútkomin myndasaga fyrir fullorðna eftir Bjarna Hin- riksson, einn liðsmanna myndasagnahópsins (gisp!) sem gefur bókina út. Í bókinni segir af Kolbeini nokkrum Hálfdánssyni sem er, líkt og Bjarni, myndasagnahöfundur. Kolbeinn fer í frí til Kanaríeyja með syni sínum og á ferðum sínum um eyjuna Gran Canaria velta feðgarnir fyrir sér mörgum lífsins gátum og misflóknum, m.a. möguleikanum á lífi án hugsana og hitastigi vatnsrennibrauta. Inn í þá sögu fléttist frásögn Kolbeins af ferli sín- um, sögunum sem hann hefur gefið út og í ljós kemur að hann á í listrænni krísu, getur vart lengur tengt saman orð og myndir. Svo virðist sem aðalpersóna sagna Kolbeins, Skuggi, hafi tekið yfir líf hans. Höfundurinn fyrirmyndin Bjarni nam myndasagnagerð við École ré- gionale des beaux-arts í Angoulême, Frakk- landi, á árunum 1985-89 og hefur samið og teiknað myndasögur auk þess að starfa sem grafískur hönnuður og kennari í Myndlista- skólanum í Reykjavík. Spurður að því hvort Kolbeinn sé e.k. hliðarsjálf hans svarar Bjarni: „Já, að hluta til, það má segja það. Upphaflega áttu þetta að vera stuttar ferða- sögur sem áttu nánast að vera um sjálfan mig og son minn. Þannig fór ég af stað fyrir mörg- um árum. Síðan breyttist það og úr varð þessi lengri saga og persónurnar þá skáldaðar með þessum fyrirmyndum sem til staðar voru. Smám saman færðist ég frá beinni vísan í sjálfan mig yfir í persónu sem lifði sjálfstæðu lífi. Mér fannst gaman að stilla þessum höf- undi upp í aðstæðum sem ég hef mikið hugsað um, t.d. það að gefa út þessar bækur sem hann hefur gert og hafa komið út. Mér fannst gaman að setja inn þær bækur sem ég hef á einhverjum tímapunkti velt fyrir mér að gefa út.“ Bjarni segir að í stöku tilvikum komi hug- myndirnar að sögunum sem Kolbeinn segir frá í bókinni frá styttri sögum sem til séu í einhverju formi. „Að því leytinu til er bein tenging í ýmislegt sem ég hef verið að fást við og af því þetta er unnið mikið út frá ljósmynd- um er alltaf einhver vísun í eitthvað sem var til. Mér finnst sú glíma skemmtileg, að velta fyrir mér hvað verður eftir af einhverju sem hugsanlega er til og er í upphafi fyrirmynd.“ – Þú fléttar saman með dálítið sérstökum hætti löngum texta þar sem Kolbeinn rekur ævi sína og segir frá verkum sínum og mynd- rænni frásögn af feðgunum og hugrenningum þeirra. „Já, þessum tveimur sögum vindur fram og þær fléttast saman. Samtal feðganna og þeirra ferðalag varð til fyrst, ég átti þessar ljósmyndir og var í upphafi að reyna að búa til myndfrásögn án þess að vera mikið að hugsa um hvað persónurnar væru að segja eða hugsa. Þannig að saga Kolbeins um þessar bækur og glímuna við persónuna sem virðist ætla að taka yfir líf hans heldur sögunni sam- an. Sá þráður finnst mér ekki geta virkað nema með samtölum feðganna. Með því að fara svona á milli finnst mér skapast eitthvað nýtt sem ég hefði eiginlega ekki getað sagt ef ég hefði bara tekið annan þráðinn og unnið með hann.“ Spurður út í teiknistíl sinn segist Bjarni ekki vera raunsæisteiknari í grunninn. „Þeg- ar ég byrja að nota ljósmyndir er það til þess að ljá sögunum einhvers konar tengingu við það sem flestir myndu segja að væri raun- verulegt. Ég reyni að sjá hvernig ég geti fjar- lægst ljósmyndina, hvað ég geti gert til að hún ráði ekki alveg yfir myndinni. Mér finnst það skemmtileg glíma, það verður til allt öðruvísi saga en ef ég væri búinn að sjá fyrir mér fyrirfram hvað ég ætlaði að teikna,“ segir Bjarni. Sonurinn hlið á föðurnum – Nú kemur sonur þinn mikið við sögu í bókinni, er hann ekki hæstánægður með að vera persóna í myndasögu? „Hann gaf mér alla vega leyfi til að nota þetta,“ segir Bjarni og hlær en sonur hans er 19 ára. „Það er langt síðan myndirnar voru teknar, þær hafa fengið að marinerast dálítið vel,“ segir Bjarni en ljósmyndirnar sem unnið er út frá í bókinni voru flestar teknar árið 2004. Bjarni bendir á að strákurinn í bókinni sé ákveðin hlið á föðurnum og að hægt sé að velta því fyrir sér við hvern faðirinn sé að tala þegar hann tali við strákinn. Spurningunni um hvor sé hvað og hvað sé sjálfið sé varpað fram. „Auðvitað er þetta saga um mann sem getur ekki lengur raðað saman myndum og orðum sem getur verið myndlíking fyrir það að oft er erfitt að eiga við lífið. Út af þessum vandræðum sem hann á við með að setja sam- an orð og myndir þá býður það upp á að form- ið sé dálítið þannig. Þess vegna fannst mér ég geta leyft mér að vera með þessar textasíður og síðan meira eins og hreina myndlist inn á milli. Þetta er ekki gert bara út í loftið til að gera eitthvað flott eða öðruvísi heldur hentar það þessari sögu.“ – Ertu að vinna að annarri bók? „Já, ég er að vinna að sögu sem var í síðasta (gisp!)-blaði sem kom út í vor, sögu af hljóm- sveit miðaldra manna sem er að reyna að skemmta sér.“ Hvor er hvað og hvað er sjálfið?  Myndasagan Skugginn af sjálfum mér segir af myndasagnahöfundi sem á erfitt með að tengja saman orð og myndir  Framsetning bókarinnar endurspeglar þá krísu, að sögn höfundar Morgunblaðið/Ómar Skuggi Bjarni gluggar í nýútkomna bók sína, Skugginn af sjálfum mér. Ferðalag Úr bók Bjarna, Skugginn af sjálfum mér. Bjarni nýtir m.a. ljósmyndir sem hann tók af syni sínum, Breka, í ferð þeirra til Kanaríeyja árið 2004. bjarnihinriksson.com Morgunblaðið gefur út sérblað Vertu viðbúin vetrinum föstudaginn 18. október Vertu viðbúinn vetrinum –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 14. október. Vetrarklæðnaður f Snyrtivörur f Ferðalög erlendis Vetrarferðir innanlands f Skemmtilegar bækur Námskeið og tómstundir f Hreyfing og heilsurækt Bíllinn f Leikhús, tónleikar. f Skíðasvæðin hérlendis Mataruppskriftir f Ásamt fullt af öðru spennandi efni! SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.