Morgunblaðið - 04.11.2013, Blaðsíða 31
sjukhus í Stokkhólmi og á Väster-
viks sjukhus 1951-52, var staðgeng-
ill héraðslæknis í Piteå, bæj-
arlæknis í Husqvarna og
héraðslæknis í Norrahammar 1953,
bæjarlæknis í Uddevalla 1953-54,
héraðslæknis í Norrahammar, að-
stoðarlæknis í Centrallasarettet í
Eskilstuna, bæjarlæknis í Hus-
qvarna og héraðslæknis í Ramsberg
1954-55 og héraðslæknis í Skurup
og í Indals-Liden 1955-56.
Vilhjálmur var staðgengill bæj-
arlæknis í Husqvarna 1956, stað-
gengill aðstoðarlæknis og í sér-
fræðinámi í Jönköping Läns
Centrallasarett 1956-57 og 1958-61
og staðgengill starfandi læknis í
Älmhult 1957-58.
Kaupir enn sjálfur í matinn
Vilhjálmur var starfandi læknir í
Jönköping 1961-66, bæjarlæknir
þar 1966-80 og skólalæknir við
menntaskóla í Jönköping 1980-88.
Hann er búsettur í Jönköping og er
við góða heilsu miðað við aldur: „Ég
hef það bara ágætt, fer allra minna
ferða og kaupi enn sjálfur í matinn.
Ég á erfitt með að ganga lengi í einu
en geng samt alltaf hálftíma til
klukkutíma á hverjum degi.“
– Sinnirðu áhugamálum?
„Nei, nei. Maður hafði aldrei tíma
fyrir nein áhugamál. Læknisstarfið
var svo erfitt hér á árum áður. Þetta
voru langar vaktir og jafnvel miklar
vökur oft á tíðum. Maður hugsaði
því bara um að sinna sínu starfi.“
Fjölskylda
Vihjálmur kvæntist 8.7. 1939 fyrri
konu sinni, Sigríði Fjólu Ísleifs-
dóttur, f. 14.12. 1913, d. 23.9. 1993,
húsfreyju. Foreldrar hennar voru
Ísleifur Sigurðsson, f. 4.9. 1884, d.
18.2. 1960, sjómaður í Vest-
mannaeyjum, og k.h., Valfríður
Jónsdóttir, f. 18.8. 1887, d. 19.7.
1964, húsfreyja.
Vilhjálmur og Fjóla skildu.
Börn Vilhjálms og Fjólu voru
Valur Jóhann Vilhjálmsson, f. 22.11.
1939, d. 30.11. 1999, yfirlæknir í
Jönköping, var kvæntur Ann Louise
Eriksson félagaráðgjafa; Victor Vil-
hjálmsson, f. 12.11. 1945, d. 30.5.
1969, fil.kand. frá Gautaborgarhá-
skóla; Tryggvi Thor Vilhjálmsson, f.
1.12. 1946, d. 7.12. 1975, med.kand.
frá Háskólanum í Linköping; Erna
Birgit Vilhjálmsson, f. 10.3. 1949, d.
í apríl 2013, tækniteiknari í Svíþjóð.
Vilhjálmur kvæntist 30.12. 1967,
seinni konu sinni, Margit Gunborg
Elísabeth Jóhannsson, f. Johansson,
f. 16.10. 1922, d. í júní 2012, hús-
freyju.
Systkini Vilhjálms: Liv Jóhanns-
dóttir, f. 29.9. 1912, d. 30.10. 1996,
húsfreyja; Hákon Franklín Jó-
hannsson, f. 23.9. 1915, d. 12.6. 2007,
kaupmaður í Reykjavík; Kristján
Tryggvi Jóhannsson, f. 11.10. 1917,
d. 29.5. 1947, vélaverkfræðingur;
Svavar Jóhannsson, f. 13.10. 1919, d.
8.8. 2010, skipulagsstjóri Bún-
aðarbankans; Herdís María Jó-
hannsdóttir, f. 26.10. 1925, lengi
starfsmaður Byggingarstofnunar
landbúnaðarins, og Guðrún Margrét
Jóhannsdóttir, f. 22.3. 1930, lengi
fulltrúi í félagsmálaráðuneytinu.
Foreldrar Vilhjálms voru Jóhann
Franklín Kristjánsson, f. 7.5. 1885,
d. 16.7. 1952, byggingameistari og
arkitekt í Reykjavík, og Mathilde
Victoria Kristjánsson, f. Gröndahl,
15.12. 1892, d. 27.9. 1962, húsfreyja.
Úr frændgarði Vilhjálms Jóhannssonar
Vilhjálmur
Jóhannsson
Marie Gröndahl
húsfr. í Osló
Olav Foss
ljósmyndari í Osló
Mathilde Victoria Kristjánsson
húsfr. í Rvík
Anna Rósa Þorsteinsdóttir
húsfr.
Vigfús Gunnlaugsson
útvegsb. á Hellu á Árskógsströnd
Guðrún Jóhanna Vigfúsdóttir
húsfr. á Litlu-Hámundarstöðum
Kristján Jónsson
b. á Litlu-Hámundarstöðum í Eyjafirði
Jóhann Franklín Kristjánsson
byggingarmeistari og arkitekt í Rvík
Þuríður Helga Stefánsdóttir
húsfr. á Litlu-Hámundarstöðum
Jón Hallgrímsson
b. á Litlu-Hámundarstöðum
Hallgrímur Hallgrímsson
b. á Stóru-Hámundarstöðum
Þorlákur Hallgrímsson
í Fagranesi
Jón Baldvin
Hallgrímsson
b. á Jarðbrú
Filippía
Jónsdóttir
húsfr. á
Akranesi
Guðjón B.
Ólafsson
forstjóri SÍS
Sigríður
Þorláksdóttir
húsfr. á
Ísafirði
Baldvin
Björnsson
gullsmiður í
Rvík
Björn Th.
Björnsson
listfræðingur
Afmælisbarnið Vilhjálmur
Jóhannsson læknir.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
Gunnar Huseby íþróttamaðurfæddist við Kárastíginn íReykjavík 4.11. 1923 en ólst
upp hjá fósturforeldrum sínum í
Vesturbænum, Kristjáni Huseby
járnsmið og k.h., Matthildi Niku-
lásdóttur húsfreyju.
Gunnar gekk ungur í KR, æfði
þar knattspyrnu frá þrettán ára
aldri og keppti í 3. flokki, 2. flokki
og 1. flokki, en sneri sér síðan al-
farið að frjálsum íþróttum og loks
að kastgreinum.
Gunnar hóf að keppa með KR í
frjálsum íþróttum 1939 og setti
fljótlega fjölda Íslandsmeta í
drengjaflokkum í kastgreinum og
hlaupum. Hann setti auk þess
fjölda Íslandsmeta í kastgreinum í
fullorðinsflokki og átti Íslands-
metið í kúluvarpi í 26 ár samfellt.
Gunnar setti sitt fyrsta Íslands-
met í fullorðinsflokki í kúluvarpi
1941, þá átján ára, er hann kastaði
14,31 m. Þetta met bætti hann síð-
an átta sinnum til 1950 er hann
kastaði 16,74 m. Það kast var Ís-
landsmet til vorsins 1967 er Guð-
mundur Hermannsson bætti það.
Gunnar náði besta árangri í kúlu-
varpi í Evrópu 1945 er hann kast-
aði 15,57 m. Hann varð Evr-
ópumeistari á
Evrópumeistaramótinu í Ósló 1946,
setti Norðurlandamet 1949, er
hann kastaði 16,41 m og varð Evr-
ópumeistari á Evrópumeist-
aramótinu í Brüssel 1950 er hann
kastaði 16,74 m.
Á sama Evrópumeistaramóti
varð annar KR-ingur, Torfi Bryn-
geirsson, Evrópumeistari í lang-
stökki, og litlu munaði að Örn Clau-
sen yrði Evrópumeistari í tugþraut
og íslenska boðhlaupssveitin sigr-
aði í sinni grein. Þetta var því án
efa ein fræknasta keppnisför í ís-
lenskri íþróttasögu.
Gunnar var besti drengur og vel
liðinn, en var á yngri árum nokkuð
baldinn með víni og háði harða
glímu við Bakkus. Hann starfaði
lengst af á vegum Reykjavík-
urborgar, þar af í 30 ár hjá Vatns-
veitu Reykjavíkur.
Gunnar lést 28.5. 1995.
Merkir Íslendingar
Gunnar
Huseby
85 ára
Hörður Pálsson
Lovísa Sveinsdóttir
Sigurgeir Jónasson
Svanhildur
Guðmundsdóttir
80 ára
Ingólfur Hauksson
Ísleifur Bergsteinsson
Sigríður Karlsdóttir
75 ára
Kristinn Viðar Pálsson
Steinunn E. Jónsdóttir
Víðir Hafberg Kristinsson
70 ára
Ingvi Tómasson
Jakob Páll Sigurbjörnsson
Steinar Baldursson
Þórir G. Björnsson
60 ára
Aðalheiður Þ.
Sigurðardóttir
Guðmunda
Guðmundsdóttir
Jolanta Kaczynska
Jóhann Grétar Sigurðsson
Kristvin Erlingsson
Oddný Guðmundsdóttir
Októvía Hrönn Edvinsdóttir
Stefán Stefánsson
50 ára
Audrius Girjotas
Ásta Björg Guðjónsdóttir
Grazyna Stankiewicz
Jóhann Tryggvason
Jón Benedikt Larsen
Karl Arnar Arnarson
Kristín S. Ingimarsdóttir
Lihua Sun
Olga Sigrún Olgeirsdóttir
Óli Björn Einarsson
Stefán Kordtsen Bryde
Svanur Arthúrsson
Þór Gíslason
40 ára
Eva Heiða Önnudóttir
Hermann Hallberg
Þorfinnsson
Iveta Skuja
Kári Árnason
Linda María Þórhallsdóttir
Lína Hrönn Þorkelsdóttir
Melkorka Guðmundsdóttir
Súsanna Valsdóttir
30 ára
Alda Halldórsdóttir
Ásta Hrönn Ásgeirsdóttir
Brynjar Marinó Húnfjörð
Gilbert Prince Gyimah
Haraldur Gísli Árnason
Ingvi Þór Hjaltason
Jie Gan
Joanna Szymankiewicz
Sverrir Haraldsson
Tomasz Konopka
Þorsteinn Ragnar Jónsson
Til hamingju með daginn
30 ára Linda Ósk ólst
upp í Kópavogi, útskrif-
aðist sem fatahönnuður
frá Köbenhavns Mode og
Design Skole, stundar
hönnun og rekur Leyni-
búðina við Laugaveg.
Maki: Stephen Paul Ro-
bert, f. 1978, smiður.
Börn: Mina Jara, f. 2008,
og óskírð, f. 2013.
Foreldrar: Anna Frið-
bertsdóttir, f. 1962, og
Guðmundur Þór Sig-
urgeirsson, f. 1962.
Linda Ósk
Guðmundsdóttir
30 ára Eygló ólst upp í
Vestmannaeyjum, er bú-
sett í Hafnarfirði, lauk
prófum í margmiðl-
unarfræði og stundar
nám í viðskiptafr. við HÍ.
Maki: Guðmundur Már
Einarsson, f. 1982, tölv-
unarfræðingur.
Dóttir: Sveinbjörg Júlía
Kjartansdóttir, f. 2004.
Foreldrar: Heiða Björg
Scheving, f. 1960, og Sig-
urður Ingi Sveinbjörns-
son, f. 1956.
Eygló Scheving
Sigurðardóttir
30 ára Gísli Þór ólst upp í
Ólafsfirði og Borgarnesi,
er búsettur í Reykjavík,
lauk stúdentsprófum og
stundar nám í tölv-
unarfræði við HR.
Maki: Helga Jónsdóttir, f.
1989, leiðbeinandi.
Synir: Patrekur Darri, f.
2003; Róbert Leó, f.
2006; Alex Þór, f. 2008,
og Davíð Þór, f. 2010.
Foreldrar: Ásbjörn Gísla-
son, f. 1962, og Elísabet
H. Pálsdóttir, f. 1962.
Gísli Þór
Ásbjörnsson
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Eyðir vondri lykt úr loftkælingunni og miðstöðinni.
Þrífur og sótthreinsar þannig að blásturinn verður aftur ferskur.
Auðvelt að nota án þess fjarlægja frjókorna-eða loftsíuna
Kemur í veg fyrir ofnæmisviðbrögð.
Eyðir sýklum, gerlum og fúkkalykt sem koma úr loftkælingunni.
Virka efnið í brúsanum dreifist um
loftkælinguna með viftunni í
miðstöðinn í bílnum.
ÞÝSK
GÆÐAVARA
Innihald: 150 ml Vörunúmer: 4065
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
Eyðir sýklum, gerlum og
fúkkalykt í miðstöðinni
Klima Fresh