Morgunblaðið - 04.11.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
L
eiðtogaþjálfun fyrir full-
orðna er í brennidepli
hjá skátahreyfingunni
þessa dagana. Laugar-
daginn 16. nóvember
verður haldið leiðtoganámskeið fyrir
fullorðna sem leiða sjálfboðastarf í
skátafélögum og líka fyrir þá sem
áhuga hafa á framlagi skátastarfsins
til samfélagsins. Ólafur Proppé er
formaður fræðsluráðs Bandalags ís-
lenskra skáta og nýtir tíma sinn til
góðra verka eftir að hann lét af
störfum sem prófessor við Kenn-
araháskólann en hann er einnig fyrr-
verandi rektor skólans. „Síðasta árið
höfum við hér á Íslandi verið að end-
urskilgreina störf sjálfboðaliða inn-
an hreyfingarinnar sem og leiðtoga-
þjálfunina,“ segir Ólafur og vísar
þar meðal annars til nýs hlutverks
fyrirliða sjálfboðaliðastarfs. Hlut-
verk hans er að vera í stjórn skátafé-
laga eða starfa náið með stjórninni
og er markmið þessa framtaks að fá
fleiri fullorðna í skátastarfið.
Hvernig er góður leiðtogi?
Það felst eitt og annað í því að
vera leiðtogi í skátastarfinu. Miklu
fleira en að stýra hópi. „Góð leið-
togaþjálfun hefur almennt gildi fyrir
þá sem taka þátt í henni út í sam-
félagið, í einkalífi hvers og eins. Það
er gjarnan sagt á alþjóðavettvangi
og annars staðar að skátastarf í
sjálfu sér sé leiðtogaþjálfun, að efla
sjálfstæði, virkni og ábyrgð ein-
staklinganna,“ segir Ólafur.
Þegar talað er um leiðtoga er
ekki einungis átt við þá sem eru
endilega alltaf í forystu. „Góður leið-
togi getur unnið með fólki, leitt hópa
en líka verið hluti af hópnum og
þannig unnið með fólki.“
Leiðtogi í eigin lífi
Til er slagorð sem skátarnir
vísa gjarnan til og það er „Leiðtogi í
eigin lífi“, þannig að skátastarfið
miðar ekki að því að ala upp ein-
hvers konar „elítu“ til að stýra hópn-
um. „Þvert á móti því eftir því verð-
ur heimurinn betri sem fleiri
einstaklingar ná því að verða leið-
togar í eigin lífi. Og þetta er auðvitað
líka lýðræðisuppeldi,“ segir Ólafur.
Skipulögð leiðtogaþjálfun hefur
verið í tæp hundrað ár innan skáta-
hreyfingarinnar og er byggt á sama
grunni og í upphafi.
Skátastarf er frá-
bært fyrir fullorðna
Í hugum margra eru skátar börn sem stunda útivist og vinna góðverk. Það er ekki
fjarri sanni en það sem gleymist stundum er að fjöldi fólks byrjar í skátunum á
fullorðinsaldri. Skátastarfið er síður en svo eingöngu fyrir börn heldur líka frá-
bært fyrir fullorðna. Það sem heillar marga er uppeldishlutverk hreyfingarinnar
og margir vilja vera leiðtogar í eigin lífi og taka þátt í þessu góða og gefandi starfi.
Formaður Ólafur Proppé.
Gaman Það má læra margt áhugavert í skátastarfi fullorðinna.
Íslenskir matreiðslumenn eru býsna
öflugir og með mörg járn í eldinum.
Frammistaða ungra matreiðslu-
manna og nema hefur verið fram-
úrskarandi á heimsvísu eins og við
sjáum í keppnum á borð við Bocuse
d́Or og af afrekum kokkalandsliðsins.
Á hverju ári er keppt um titilinn bak-
ari ársins, matreiðslumaður ársins og
fleira.
Á síðunni www.veitingageirinn.is er
hægt að fylgjast með hvað er á döf-
inni hverju sinni, sjá hvaða viðburðir
eru framundan, lesa fréttir úr öllum
geiranum, láta vita af nýjum veit-
ingastöðum, nýjum matseðlum og
fleira. Þarna er öllum upplýsingum
safnað saman á hlutlausan hátt.
Vefurinn hefur verið starfræktur í
heil sautján ár og að honum koma
matreiðslumenn sem vilja með stolti
kynna sína fagiðn og gera það í sjálf-
boðavinnu.
Vefsíðan www.veitingageirinn.is
Ljósmynd/Ásgeir I. Long/veitingageirinn.is
Suðupottur Á síðunni er að finna allt um íslenska veitingaflóru frá A-Ö.
Veitingageirinn á Íslandi
Málverkasýning verður opnuð í
menningarsal Hrafnistu í Hafnarfirði
á morgun, þriðjudaginn 5. nóvember.
Þar sýnir Hrafnhildur Gísladóttir mál-
verk sín. Hrafnhildur er fædd árið
1959 og er alin upp með myndlist allt
um kring. Hún hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum.
Sýningin í Hrafnistu verður opin
alla daga en best er að líta inn á
bilinu frá klukkan 15 til 17. Opnunin á
morgun er klukkan 13.30 og verður
heitt á könnunni auk þess sem kórinn
mun syngja.
Það er tilvalið að bregða sér í bíltúr
í fjörðinn og fá sér kaffi í leiðinni.
Endilega …
… skoðaðu málverk
Nóvembermánuður verður við-
burðaríkur í Bókasafni Seltjarn-
arness eins og fyrri ár. Viðburðir
tengdir jólaundirbúningi verða
nokkrir en einnig eitt og annað fyrir
börnin og djassunnendur.
Í dag klukkan 16 mun Seltirning-
urinn og trompetleikarinn Ari Bragi
Kárason leika tónlist ásamt píanó-
leikaranum Kjartani Valdimarssyni.
Þeir félagar koma fram á tónleika-
röð sem ber yfirskriftina Tónstafir
og er sérstakt samstarfsverkefni
Bóksafns Seltjarnarness og Tónlist-
arskóla Seltjarnarness. Þriðjudags-
kvöldið 5. nóvember kemur Bók-
menntafélag Seltjarnarness saman
til að ræða bókina Maður sem heitir
Ove eftir Fredrik Bachman. Þessi
sænska metsölubók hefur heldur
betur slegið í gegn en hún fer nú
sigurför um heiminn, enda fjallar
hún um hallarbyltingu í hverfis-
samtökum, grimma æsku, djúpa ást
og myrka sorg. Eitthvað sem getur
ekki verið annað en áhugavert um-
ræðuefni fyrir lestrarhesta. Aðgang-
ur er ókeypis.
Vetrardjass á bókasafninu
Ari Bragi, Kjartan Valdimarsson
og Tónstafir á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Kristinn
Listamaður Ari Bragi er einn rómaðasti trompetleikari þjóðarinnar.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.