Morgunblaðið - 04.11.2013, Blaðsíða 23
um allt og ekkert. Minningarnar
eiga eftir að lifa með mér alla tíð.
Þín vinkona,
Ragnheiður Jóna Grét-
arsdóttir (Ragga skáti).
Í dag kveðjum við okkar ást-
kæru vinkonu, Thelmu Björk,
sem var okkur afar kær. Ótal
minningar koma upp í hugann
um útilegur, jeppaferðir, partí,
sumarbústaði, barnaafmæli, mat-
arboð og margar fleiri sem ylja
okkur um ókomna tíð. Að sama
skapi er svo ólýsanlega sárt að
vita til þess að þær verða ekki
fleiri. Þórsmörk verður ekki söm
án hennar. Það er svo sárt að
horfa upp á 36 ára tveggja barna
móður, unnustu, dóttur, systur,
frænku og vinkonu kippt í burtu
fyrirvaralaust. Hún var alltaf svo
dugleg og eljusöm, það voru aldr-
ei nein vandamál og aldrei neitt
stress, hún tók öllu með jafnaðar-
geði og það var alltaf gott að leita
til hennar enda var hún ávallt úr-
ræðagóð, hjálpsöm og með góðar
ráðleggingar á reiðum höndum.
Hún var mikið náttúrubarn og
var mjög dugleg að ferðast um
landið með fjölskyldu og vinum.
Thelma var vinamörg og sást
það vel á kyrrðarstundinni sem
haldin var í skátaheimili Skjöld-
unga að kvöldi dagsins örlaga-
ríka þar sem húsfyllir var. Hún
var límið sem hélt vinunum sam-
an og reyndist örlagavaldur í lífi
margra enda átti hún óbeinan
þátt í að allnokkur sambönd og
börn eru til í dag, meðal annars
okkar. Það var í mars aldamóta-
árið 2000 að til stóð að fjölmenna
í skemmtiferð í bústað og án þess
að spyrja bauð hún vini sínum og
vini hans með. Það varð ekki aft-
ur snúið; báðir gengu þeir út og
eiga nokkur börn í dag, þótt ekki
fyndi hún Gumma sinn fyrr en
nokkrum árum síðar og hafa þau
verið óaðskiljanleg síðan. Fleiri
dæmi má nefna um sambönd sem
ekki væru til í dag ef ekki væri
fyrir Thelmu.
Elva Rut hóf skólagöngu sína í
Ingunnarskóla í haust og var allt-
af jafn gaman að rekast á Thelmu
á bílastæðinu fyrir utan eða veifa
til okkar brosandi í glugganum á
Maríuborg. Nú segist hún ætla
að veifa skærustu stjörnunni á
himninum í staðinn. Það er
ómögulegt að sætta sig við að fá
ekki að njóta nærveru Thelmu
lengur. Heimurinn er fátækari
án hennar.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku hjartans Gummi okkar,
Margeir Óli, Brynja Líf, Gurrý,
Gunni, Hildur og Jón Grétar.
Missir ykkar er þyngri en orð fá
lýst. Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur á þessum erfiðu tímum.
Blessuð sé minning okkar góðu
vinkonu og megi hún hvíla í friði.
Ragnhildur Sigurðardóttir,
Vilhjálmur Halldórsson og
Elva Rut Vilhjálmsdóttir.
Það er okkur um megn að
skilja af hverju þér var kippt út
úr lífi okkar svo fljótt. Þinn tími
var síður en svo kominn og sitj-
um við eftir og störum út í loftið
með spyrjandi augum, af hverju?
Okkur er efst í huga þakklæti
fyrir að hafa fengið að kynnast
þér, hlýju þinni og alúð, þakklæti
fyrir útilegurnar, kvöldvökurnar,
jeppa- og bústaðaferðirnar, spila-
kvöldin og allar hinar skemmti-
legu samverustundirnar.
Sveinlaug: Ég er þér ævinlega
þakklát fyrir allar góðu stundirn-
ar sem við áttum saman, við
sinntum skátastarfinu saman af
mikilli gleði og ástríðu og um
tíma bjuggum við nánast í skáta-
heimilinu í Sólheimunum. Saman
deildum við ýmsum leyndarmál-
um svo sem fyrstu stefnumótun-
um, fyrstu ástinni og fyrstu
djömmunum, og ekki síst öllum
skrautlegu rúntunum á Peugeot-
inum. Það verðmætasta sem þú
gafst mér var að koma okkur og
Magga saman.
Nú kveðjum við yndislega vin-
konu og megi minning þín lifa um
ókomna tíð.
Kæri Guðmundur Skúli, Mar-
geir Óli, Brynja Líf og fjölskylda
Thelmu Bjarkar, við sendum
ykkur okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og megi guð gefa ykk-
ur styrk á þessum erfiðu tímum.
Ef við lítum yfir farinn veg og finnum
gamla slóð,
færast löngu liðnar stundir okkur nær.
Því að margar standa vörður þær sem
einhver okkar hlóð,
upp um fjöll, þar sem vorvindurinn
hlær.
Öll þau yndisfögru kvöld,
okkar litlu skátatjöld,
eru gömlum skátum endurminning
kær.
Þegar varðeldarnir seiða og við syngj-
um okkar ljóð,
suðar fossinn og töfrahörpu slær.
(Haraldur Ólafsson)
Kveðja,
Sveinlaug og Magnús
(Maggi).
Hún Thelma dó í morgun.
Þessum orðum gleymir maður
ekki. Það var eins og maður væri
sleginn, varð allur svo dofinn og
eins og tíminn stæði í stað en svo
áttar maður sig á því hvað þessi
orð merkja. Þau merkja það að
hún Thelma er ekki lengur á
meðal okkar. Hún Thelma sem
var alltaf svo glöð og hress og
alltaf var hún tilbúin að hjálpa
þegar einhver þurfti aðstoð við að
flytja eða eitthvað annað, þá
mættu þau Gummi og drifu verk-
ið af. Það var alltaf eins og þetta
væri létt verk þótt það hafi vaxið
manni í augum í upphafi. Við eig-
um eftir að minnast allra göngu-
túranna, afmælanna, jólaboð-
anna og útileganna þar sem
Thelma var alltaf tilbúin að leika
við börnin og alltaf var hún bros-
andi. Þótt manni fyndist hama-
gangurinn mikill var Thelma allt-
af jafnróleg. Við samhryggjumst
ykkur innilega, elsku Gummi,
Brynja Líf og Margeir Óli. Gurrý
og Gunni, Jón Grétar og Hildur.
Hugur okkar er með ykkur.
Dagný og Svavar.
Takk fyrir samveruna elsku
Thelma okkar, þín verður sárt
saknað.
Minningarnar streyma fram
og samverustundirnar rifjast
upp, hvort sem það voru bústaða-
ferðir, útilegur, heimsóknir eða
annað þá var alltaf gaman hjá
okkur og andrúmsloftið afslapp-
að. Nærvera þín var bara svo
þægileg og húmorinn yndislegur.
Þér og Gumma þínum þökkum
við fyrir okkur, því án ykkar
væru engin „Stebbi og Día“.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Elsku Gummi, Margeir Óli,
Brynja Líf, Gurrí, Gunni, Hildur,
Jón og aðrir aðstandendur, við
vottum ykkur okkar dýpstu sam-
úð.
Stefán, Díana, Borgþór
og Lára Jóhanna.
Elsku besta vinkona mín,
Þetta er svo ósanngjarnt, hver
tekur svona ákvörðun? Að taka
þig frá yndislegum manni og
tveimur yndislegum börnum,
dásamlegum foreldrum og systk-
inum og vinum sem elska þig og
dá.
Þú varst snillingur á mörgum
sviðum, upp úr stendur fram-
koma þín og þolinmæði við börn,
ekki bara þín eigin heldur öll
börn. Þú gafst þér alltaf tíma til
að tala við þau, spyrja hvernig
þau hefðu það og hvað þau væru
búin að vera að stússa sem er
mikill mannkostur og einkenndi
þig, Thelman mín.
Ég á fallegar og góðar minn-
ingar um þig, elsku vinkona.Við
kynntumst fyrir rúmlega 28 ár-
um – ég varð heimalningur á þínu
heimili og þú á mínu. Við áttum
margar góðar stundir saman,
eiginlega alveg óteljandi margar
sem ég er afar þakklát fyrir. Við
vorum miklir sálufélagar og
hleyptum engum inn í gengið
sem státaði af okkur tveim. Held
satt best að segja að það hafi ekki
allir skilið okkur og okkar fífla-
skap en því höfðum við ekki
áhyggjur af og vorum saman
bara tvær í nokkur ár í okkar eig-
in heimi. Það truflaði okkur fátt
nema kannski það að eiga ekki al-
veg eins hluti foreldrum okkar til
talsverða útgjalda.
Ég man kvöldið sem þú bauðst
mér í heimsókn og vildir kynna
mig fyrir honum Gumma þínum,
fundurinn fór fram en ekki eins
og vonir stóðu til en ansi mikið
erum við búnar að hlæja að því
síðustu ár.
Heppinn er hann Gummi að
hafa kynnst þér, elsku Thelma,
og þú honum. Þið voruð svo falleg
og flott saman. Svo ég tali nú ekki
um litla drenginn sem fylgdi
Gumma, Margeir Óla, sem þú
hugsaðir um og annaðist af alúð,
hlýju og umburðarlyndi eins og
góðri mömmu sæmir og þér var
lagið. Síðar eignuðust þið litla
augasteininn ykkar hana Brynju
Líf; elsku litla krúttan – mikið
finn ég til í hjartanu að vita til
þess að þau fái ekki að njóta þín
lengur.
Það var alltaf svo gott að koma
til ykkar hvort sem var í bústaði,
fellihýsið eða í Gullengið, alltaf
leið manni vel og var velkomin.
Núna í ágúst á Bifröst þegar við
Krummi brunuðum til ykkur í
bústað og áttum notalegan tíma
með ykkur fjölskyldunni og for-
eldrum þínum. Tekið á móti okk-
ur með kossum og ykkar fasta og
trygga faðmlagi sem var sameig-
inlegt „vörumerki“ ykkar
Gumma.
Laugardagurinn um daginn
þar sem við Krummi ætluðum að
stoppa stutt hjá ykkur og end-
uðum í hádegismat, kaffihress-
ingu og svo hann í kvöldmat með
skutli heim og við ræddum í sím-
ann um kvöldið hversu vel þeir
næðu saman gaurarnir okkar og
að við þyrftum að hittast oftar
með þeim.
Kvöldið sem við sátum fram á
nótt í góðra vina hópi og fórum
yfir öll heimsins mál, Gummi
sagði okkur að þegar þið mynduð
gifta ykkur þá vildi hann að Mar-
on gerði það og við hlógum og
ímynduðum okkur hvernig at-
höfnin færi fram og hvar þyrfti
að sækja um leyfi.
Ekki grunaði mig að það væri
okkar síðasti hittingur þegar þú
komst með litlu snúlluna þína í
heimsókn 20. október, við áttum
gott spjall og kvöddumst á tröpp-
unum eins og venja var. Brynja
Líf spjallaði við hænurnar og
kvaddi þær og ég horfði á eftir
ykkur inn í bíl, þú hlæjandi með
þinn smitandi hlátur og við
ákveðnar í að það væri stutt í
næsta hitting – það kemur að
honum en því miður ekki strax.
Yndislega Thelman mín, ég
sakna þín
Þín vinkona
Björk Rafnsdóttir.
Elsku vinkona mín, hún
Thelma Björk, er fallin frá og eft-
ir situr stórt gat í hjarta mínu.
Hún var með eindæmum yndis-
leg, góðhjörtuð, hjálpsöm, frá-
bær móðir og ótrúlega kraftmik-
il. Ég kallaði hana alltaf
vinkonuna með gullhjartað. Allt-
af var hægt að treysta á hana.
Þótt lífið sé ósanngjarnt og hún
tekin frá okkur allt of snemma er
ég svo óendanlega þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast henni
þann stutta tíma sem hún fékk að
vera með okkur.
Ég kynntist Thelmu Björk
þegar ég byrjaði í Skjöldungum
10 ára gömul. En okkar vinskap-
ur byrjaði þó ekki fyrr en við fór-
um að starfa saman. Fyrst var ég
flokksforingi hjá henni og síðar
vorum við sveitarforingjar sam-
an fyrir Ferfætlusveit. Við
skemmtum okkur konunglega á
þessum tíma enda var góður hóp-
ur í kringum okkur og mikið líf í
skátastarfinu. Á þessu tímabili
var líka mikið ferðast um landið,
gengið á fjöll, farið í útilegur og á
sveitaböll. Það var líka ósjaldan
rúntað um götur bæjarins á gráa
Peugeotnum, borðað popp með
súkkulaði og appelsínutrópí.
Eitt sinn ætluðum við að
ganga upp í Kút á Hellisheiðinni í
svartaþoku. Við byrjuðum að elta
vörðurnar, en það gekk ekki vel
þegar á leið. Að lokum snerum
við við og þá beið eftir okkur lög-
reglubifreið því þeir höfðu verið
að fylgjast með þessum ljósum á
ferð um heiðina. Við fengum því
lögreglufylgd til Hveragerðis við
hið skemmtilega lag „I’m Blue
(Da Ba Dee Da Ba Die)“. Þeir
hækkuðu í botn og þeir tóku
Night at the Roxbury-höfuð-
sveiflu. Við höfum nú mikið gert
grín að þessari lögreglufylgd
okkar.
Vænst þykir mér þó um Þórs-
merkurferðirnar okkar. Ég hef
ekki tölu á öllum ferðunum sem
við fórum saman. Það skipti ekki
máli hvort það var tveggja
manna kúlutjald eða fellihýsi, þar
leið okkur alltaf vel. Oftar en ekki
tókum við að okkur að vera land-
verðir, en alltaf með því skilyrði
að við fengjum frí á laugardags-
kvöldum.
Við höfum alltaf náð að halda
sambandi þrátt fyrir búsetu mína
erlendis og þegar við heyrðumst
var alltaf eins og við hefðum
heyrst í gær. Það er í raun alveg
ótrúlegt hvað við náðum vel sam-
an þrátt fyrir hvað við erum ólík-
ar. En mér þykir mjög vænt um
hvað sambandið okkar var aftur
orðið sterkt síðustu ár. Það er nú
helst að þakka börnunum okkar.
Það hefur verið svo gaman að
fylgjast með Thelmu Björk í
móðurhlutverkinu. Hún hefur
staðið sig svo vel og náð svo vel til
Margeirs Óla og hann hefur verið
svo duglegur í hlutverki stóra
bróður hennar Brynju Lífar. Við
skunduðum í gönguferðir, bæjar-
ferðir og kaffihúsaferðir með
stelpurnar og þær voru svo kátar
með hvor aðra. Svo var stundum
skutlast í kaffi í Gullengið eða
fjölskyldan til okkar í Espigerðið.
Þessa tíma á ég eftir að sakna
mikið. Ef ég verð til hálfs jafn
góð móðir og hún var þá verð ég
hamingjusöm móðir.
Elsku Gummi, börn og fjöl-
skylda, megi minningin um
Thelmu Björk lifa með ykkur og
gefa ykkur styrk í þeirri þraut
sem þið gangið núna í gegnum.
Hvíl í friði, elsku vinkona, takk
fyrir allar góðu minningarnar.
Þyrí.
Á köldu haustkvöldi streyma
fram minningar um yndislega
vinkonu. Á stundu sem þessari er
ég í senn þakklát fyrir þann tíma
sem við fengum og sár yfir því að
hafa ekki fengið meiri tíma til að
skapa fleiri góðar minningar.
Leiðir okkar Thelmu lágu saman
í skátunum fyrir um 23 árum
þegar hún tók við sem flokksfor-
ingi minn í Gazellum. Thelma
hafði brennandi áhuga á því sem
hún var að gera og eftir mikla
svaðilför á skátamót í Danmörku
árið 1992 var það nokkuð ljóst að
hún gæfist ekki svo auðveldlega
upp. Árin liðu og við tók vinátta
sem var ómetanleg.
Þær voru ófáar stundirnar
sem við áttum saman, hvort sem
það var heima eða að heiman og
alltaf var mikil gleði og glaumur
sem einkenndi þær stundir. Nú
þegar leiðir skilja situr eftir lítil
fjölskylda sem vantar klettinn
sinn. Thelma var svo lánsöm að
kynnast Gumma, þau bjuggu sér
og Margeiri Óla syni Gumma fal-
legt heimili í Gullenginu. Thelma
tók Margeiri strax opnum örm-
um og gaf honum allt það sem
hún gat gefið af sér og sömu sögu
má segja um Margeir, það gaf
Thelmu heilmikið að hafa hann í
lífi sínu. Fjölskyldan stækkaði og
fæddist þeim Gumma dóttirin
Brynja Líf haustið 2011. Tími
þeirra sem fjölskylda var alltof
stuttur en ég trúi því og treysti
að Thelma hafi lagt grunn að
góðri framtíð hjá þeim systkinum
og þetta sé tími sem þau muni
alltaf búa að. Það er mikið verk
fyrir höndum hjá Gumma en
hann, svona heilsteyptur og góð-
ur, mun fara vel með það verk.
Thelma var ekki mikið fyrir að
trana sér fram eða bera tilfinn-
ingar sínar á torg, en hún var
traustur vinur, mat heiðarleika
mikils og var alltaf til staðar. Við
fráfall hennar myndaðist stórt
skarð í litla vinahópinn okkar,
skarð sem ekki verður fyllt en við
munum ylja okkur við góðar og
fallegar minningar um yndislega
vinkonu.
Þar sem englarnir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú,
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku fjölskylda, Gummi,
Margeir Óli, Brynja Líf og aðrir
ástvinir, hugur minn er hjá ykk-
ur.
Linda Frederiksen.
Thelmu kynntist ég í Skátafé-
laginu Skjöldungum þegar ég var
um 10 ára gömul. Hún var foring-
inn minn í skátaflokknum Gazell-
um og fjórum árum eldri en ég.
Þegar ég hugsa til þess í dag þá
skil ég hversu mikil vinna þetta
var fyrir Thelmu, eitthvað sem
ég hugsaði lítið um þegar ég var í
flokknum. Við vorum margar
stelpurnar í flokknum og allt
annað en rólegar. Thelma náði
hinsvegar með þolinmæði, þraut-
seigju og einstökum áhuga á
skátastarfinu að halda hópnum
saman og í dag eru bestu vinkon-
ur mínar margar hverjar út skát-
unum. Sumarið 1992 fór stór hóp-
ur af stelpum úr skátafélaginu á
skátamót í Danmörku. Þetta mót
var afar skemmtilegt, mikið gekk
á en við vorum átta stelpur sam-
an í tjaldi og Thelma foringinn
okkar en ég get ímyndað mér að
Thelma hafi verið ansi þreytt eft-
ir mótið. Hún var stór partur af
því að gera þessa ferð ógleym-
anlega og sýndi þar og sannaði
hversu óeigingjörn og fórnfús
hún var.
Vinahópurinn úr skátunum
hefur haldið sambandi í mörg ár,
farið í ótal útilegur, gítarpartí,
sumarbústaðaferðir eða dags-
ferðir um landið og var það oftast
að frumkvæði Thelmu sem við
komum saman. Þegar Thelma
kynntist Gumma stækkaði svo
vinahópurinn enn frekar. Einn
daginn fyrir um þremur árum
fengum við vinirnir tölvupóst frá
Thelmu þar sem við vorum beðin
um að mæta við Langholtskirkju
á laugardegi og sagði Thelma
ekki mikið meira í póstinum.
Margir veðjuðu á að nú ætluðu
Thelma og Gummi að ganga í það
heilaga. Sú varð ekki raunin,
heldur hafði Thelma skipulagt
póstaleik um hverfið, með alls-
konar þrautum, sem endaði í mat
og drykk í Gullenginu hjá þeim
Gumma. Þetta var æðislegur
dagur sem aldrei gleymist.
Ég fékk að vinna með Thelmu,
fyrst hjá Símanum og svo í skáta-
heimilinu fyrir um tveimur árum.
Það var frábært að vinna með
henni. Hún gekk alltaf beint í
verkin og það var alltaf hægt að
treysta á hana. Hún var vinsæl í
skátafélaginu meðal allra, vann
þar ótrúlegt starf og margir eiga
Thelmu margt að þakka fyrir
það.
Það var alltaf stutt í hláturinn
hjá Thelmu og hún hafði frábær-
SJÁ SÍÐU 24
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 29,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 28. október.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 6. nóvember kl. 13.00.
Ástfríður M. Sigurðardóttir, Jón Gíslason,
Hulda Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR,
Austurvelli, Eyrarbakka,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
Selfossi,
laugardaginn 2. nóvember.
Þórhildur Gísladóttir, Einar Kjartansson,
Kristján Gíslason, Ólöf Guðmundsdóttir,
Hrafnhildur Gísladóttir, Guðbjörn Ólafsson,
Margrét Bragadóttir, Bjarni Jakobsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
HÁKON SVEINN DANÍELSSON,
Hvassaleiti 56,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 30. október.
Valgerður Proppé,
Elísabet Hákonardóttir, Halldór K. Valdimarsson,
Marteinn Hákonarson,
Helgi Daníelsson, Sigrún Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.