Morgunblaðið - 04.11.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.11.2013, Blaðsíða 15
jurtum fyrir 25 árum, árið 1988. „Þá vissi fólk varla hvað um var að ræða, en núna er allt annað upp á ten- ingnum,“ segir Ingólfur. Spurð hver sé vinsælasta kryddjurtin segja þau það vera basilíkuna. „Við ræktum langmest af henni, kóríander kemur fast á hælana og svo hefur myntan verið að sækja í sig veðrið. Ætli það tengist ekki eitt- hvað vinsældum mojito-kokteilsins!“ segir Ingólfur kíminn. Lífrænt er eftirsótt Á Engi er lífræn ræktun og svo hefur verið í um 20 ár. Sigrún og Ingólfur segja sífellt fleiri sækjast eft- ir lífrænum afurðum og eftirspurnin hér á landi sé orðin meiri en sem framleiðslunni nemur. „Það vantar í rauninni fleiri lífræna ræktendur,“ segir Ingólfur. „Við sjáum ekki fyrir okkur að rækta meira eins og staðan er í dag. En þetta breytist örugglega með ung- um garðyrkjubændum sem koma nýir inn í stéttina.“ Hvað er skemmtilegast að rækta? „Ég veit það eiginlega ekki,“ segir Sigrún. Þetta er auðvitað bara vinna og býsna erfið. En þegar vel gengur, þá er gam- an að rækta allt.“ Er hægt að rækta allt á Íslandi? „Það er líklega hægt að rækta flest. Spurningin er hvað fólk er tilbúið að greiða fyrir það. Sumar tegundir eru dýrar í fram- leiðslu og fólk þarf að vera skynsamt,“ segir Sigrún. Morgunblaðið/Kristinn Garðyrkjubændur Sigrún og Ingólfur í gróðurhúsinu. Kræsingar Heitt súkkulaði í bolla og konfekt úr smiðju Mika úr belgísku og frönsku súkkulaði með ljúffengum fyllingum smellpassar með. Hvernig gengur að reka veit- ingastað hér á Reykholti? „Mjög vel. Það er hjá okkur eins og flestum öðrum hér á Íslandi; mikið að gera yfir sumarið en minna yfir veturinn. En það hefur reyndar verið mikil aukning yfir vetrartímann á þeim tíma sem við höfum rekið staðinn,“ segir Bozena. Og vissulega er óhætt að tala um aukningu, en viðskiptin hafa aukist fjórfalt frá árinu 2010 og um 50% frá því í fyrrasumar. Humar með chilisósu Eins og vænta má leggur Mika áherslu á súkkulaði í matargerð sinni, en fjölmarga humarrétti má einnig finna á matseðlinum. Margir réttanna eru býsna nýstárlegir, t.d. humarsalat með chilisósu og hvítri súkkulaðisósu og Flúðasveppir með jarðarberjum, mozzarellaosti og súkkulaðisósu. „Súkkulaði er svo spennandi,“ segir Mika. Passar súkkulaði með öllum mat? „Kannski ekki með öllum mat, en með mörgu.“ Hvernig súkkulaði er vinsæl- ast? „Þetta dökka. 66-70% súkkulaði er mjög vinsælt, en annars er þetta mjög svipað. Konur eru reyndar meira fyrir hvítt súkkulaði.“ Spurð hvort pólskra áhrifa gæti á matseðlinum segja þau svo ekki vera, nema kannski einstöku sinnum í eftirréttunum. Áhersla á eigin einkenni Systur Bozenu og foreldrar Mika búa einnig á Flúðum. Hjónin segja gott að búa í svo litlu sam- félagi, auðvelt hafi verið að aðlagast lífinu og tilverunni. „Það skipti miklu máli að við ákváðum strax að læra íslensku. Við fórum á námskeið og vorum alltaf ákveðin í að læra málið.“ Spurð hvað þau hafi að leið- arljósi við reksturinn segjast hjónin leggja áherslu á að skapa sér sér- stöðu. „Við gerum nánast allt frá grunni, bökum brauðið og búum til humarsoðið í súpurnar. Konfektið og heita súkkulaðið búum við líka til hérna. Við viljum að þeir sem koma hingað finni að þeir eru hjá Mika, við leggjum áherslu á okkar eigin ein- kenni. Ef maður leggur sig fram, þá gengur þetta vel.“ Café Mika Veitingastaðurinn er í húsi Bjarkarhóls í Reykholti í Bisk- upstungum. Þar er opið allan ársins hring, alla daga vikunnar. „Það hefur einhvern veginn æxl- ast þannig að íslenski hesturinn hefur orðið aðalmyndefnið hjá mér,“ segir myndlistarkonan og myndlistarkennarinn Sigurlína Kristinsdóttir í Reykholti. Hún er með vinnustofu sína í hesthúsi sem hýsir hross á veturna og vinnur þar verk sín á marg- víslegan hátt; olíumálverk, kola- myndir og skúlptúr og segist nota ýmsar aðferðir í hugmynda- vinnunni. „Ég skissa t.d. mikið hross í sínu náttúrulega um- hverfi, stundum tek ég ljós- myndir og vinn eftir þeim.“ Hvað er það við íslenska hest- inn sem höfðar svona sterkt til þín? „Hann er svo íslenskur, hann er hluti af landinu og rétt eins og landslagið á hann sér ótal hliðar. Það er þessi kraftur og hreyfing hestsins sem ég leitast við að koma til skila.“ annalilja@mbl.is Sigurlína málar íslenska hestinn Morgunblaðið/Kristinn Myndlistarkona Sigurlína málar og teiknar íslenska hestinn. Myndlist í hesthúsi Hestamyndir Listaverk Sigurlínu hanga uppi í hesthúsinu. Reykholt og Laugarás eru tveir þéttbýliskjarnar í Biskupstungunum og þar er fjöldi garðyrkjustöðva, enda mikill jarðhiti á svæðinu. Byggð hófst í Reykholti. Þetta eru vinsælir viðkomustaðir ferðamanna, enda fjölmargar sumarhúsabyggðir í grenndinni. Að auki er stutt á Gullfoss og Geysi. Íbúar eru samtals rúmlega 300 talsins Skannaðu kóðann til að skoða mynd- skeið á mbl.is  Næsta umfjöllunarefnið á 100 daga hringferð Morg- unblaðsins er Laugarvatn. Á morgun Innihald: 300 g smjör, 240 g hrásykur, 225 g dökkt súkkulaði (helst 70%), 4 stór egg, 150 g hveiti, 240 g ristaðar hnetur. Aðferð: Smjör og helmingurinn af sykr- inum er þeytt saman, súkkulaðið er brætt og blandað saman við. Eggin þeytt saman við hinn helm- inginn af sykrinum og því bland- að varlega saman við súkku- laðiblönduna. Að síðustu er hveiti og hnetum blandað saman við, deiginu hellt í smurt meðalstórt form og bakað í um 12 mínútur við 180°C. Brownies að hætti Mika MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.