Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
„Mikilvægt skref
í átt að stöðugleika og
kaupmáttaraukningu“
Hvetjum félagsmenn til að mæta og kynna sér nýja kjarasamninga VR.
Fimmtudaginn 9. janúar Kaupvangi 3b Egilsstöðum kl. 19:30
Mánudaginn 13. janúar Strandvegi 54 Vestmannaeyjum kl. 12:00
Þriðjudaginn14. janúar Hilton Nordica Hótel Reykjavík kl. 19:30
Kjarasamningar VR 2014
Formaður VR, Ólafía B. Rafnsdóttir, kynnir innihald nýrra
kjarasamninga á eftirtöldum stöðum:
Sýnum samstöðu og ábyrgð.
Sjávarorka ehf. heldur áfram rann-
sóknum til undirbúnings sjávar-
fallavirkjun í innanverðum Breiða-
firði. Gerðar voru mælingar á
straumum á liðnu sumri og verður
því haldið áfram næsta sumar.
Sigurjón Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sjávarorku, segir að rann-
sóknirnar miði að því að velja
heppilegan stað til að virkja. Stefnt
hefur verið að því að setja upp litla
tilraunavirkjun á næstu árum en
Sigurjón segir að framhaldið ráðist
af þeim niðurstöðum þeirra vís-
indarannsókna sem fyrirtækið
stundar. Landsvirkjun er stærsti
hluthafinn í Sjávarorku ásamt RA-
RIK og Skipavík í Stykkishólmi.
Sigurjón segir að þátttaka Lands-
virkjunar hafi eflt fyrirtæki enda
hafi Landsvirkjun yfir að ráða fólki
með sérþekkingu og tækjabúnaði.
Ekkert fyrirtæki sótti um mat á
sjávarfallavirkjun þegar auglýst
var eftir virkjanakostum vegna
væntanlegrar vinnu verkefnis-
stjórnar að þriðja áfanga ramma-
áætlunar. Sigurjón segir ekki tíma-
bært að tilkynna virkjun, fyrst
þurfi að rannsaka virkjanakostinn
betur. helgi@mbl.is
Rannsókn-
um haldið
áfram
Ekki tímabært að
meta sjávarfallavirkjun
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Bjórframleiðendur þurfa að farga
þeim jólabjór sem ekki selst áður en
sölutímabili jólabjórs lýkur. ÁTVR
setur reglur um sölutímabilið.
„Birgjar taka til baka það sem er
óselt af jólabjór,“ segir Sigrún Ósk
Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri
ÁTVR. „Tímabilið kláraðist í fyrra-
dag, en það var lítið magn sem ekki
seldist.
Agnes Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar,
sem framleiðir Kalda, segir reglur
um sölutímabil jólabjórs valda því að
framleiðendur þurfi að passa að
framleiða ekki meiri bjór en selst á
tímabilinu.
Skrúfstykki á
framleiðendur
„Bjórinn seldist að vísu allur hjá
okkur, en ef eitthvað væri eftir
þyrfti að urða hann hjá Efna-
móttökunni,“ segir Agnes. „Þetta er
gert til að fá áfengisgjaldið til baka,“
en það er um 100 krónur á hverja
flösku.
„Til þess er leikurinn gerður.
Þetta er ástæðan fyrir því að jóla-
bjór selst oft upp, það er svo mikið í
húfi fyrir framleiðandann að hafa
þetta rétt. Svo er dýrt að urða
hverja flösku, það kostar 10 krónur.
Það mætti ekki einu sinni gefa bjór-
inn og fella niður áfengisgjaldið,“
segir Agnes.
Farga óseldum jólabjór
Morgunblaðið/Ómar
Jólabjór Framleiðendur mega vara sig að framleiða ekki of mikið af bjór.
Farga jólabjórnum til að fá áfengisgjöldin til baka
Enn er unnið að frumrannsóknum
og forathugun á virkjun í efsta hluta
Stóru-Laxár í Hreppum. Lands-
virkjun fékk á árinu 2012 leyfi til að
rannsaka virkjunarkostinn.
Landsvirkjun tilkynnti Stóru-
Laxá sem mögulegan virkjanakost
vegna vinnu verkefnisstjórnar að
þriðja áfanga rammaáætlunar.
Samkvæmt upplýsingum Lands-
virkjunar beinast rannsóknirnar að
vatnamælingum og mælingum á
rennsli og að því að afla kortagagna.
Þá hafa fyrstu vettvangsrannsóknir
verið gerðar á jarðfræði svæðisins
og unnið að útfærslu á mögulegri
virkjun. Reiknað er með að for-
athugun ljúki í apríl næstkomandi.
helgi@mbl.is
Forathugun
Stóru-Laxár
lýkur í apríl
Morgunblaðið/Einar Falur
Laxárgljúfur Gagnrýnendur óttast
áhrif virkjunar á laxveiði.