Morgunblaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
venjulegar, kínverskar konur,“ seg-
ir Kitty. Það er enda í anda verk-
efnis hennar því þátttakendur í því
eru sjálfboðaliðar, eingöngu konur
og það „venjulegar“ konur, þ.e. ekki
fyrirsætur, leikkonur eða konur
með reynslu af því að koma fram
fyrir framan kvikmyndatökuvélar.
Með gjörningum sínum leggur
Kitty áherslu á að konur eigi að
vera sáttar í eigin skinni, líða vel í
líkama sínum og losa um hvers kon-
ar hömlur, finna frelsi sköpunar-
innar og njóta hennar í góðra
kvenna hópi. Kitty heldur tökustað
og þema hvers þáttar leyndu fram á
síðustu stundu. Þátttakendur fá að
vita hvað stendur til þegar á töku-
stað er komið. Kitty segir konurnar
sækjast eftir þátttöku af ólíkum
ástæðum og hún fái til liðs við sig
afar fjölbreytta hópa, ólíkar konur
með ólíka lífsreynslu sem geri vinn-
una afar ánægjulega. Og hug-
myndaflugi Kitty virðast engin tak-
mörk sett, ef marka má þættina
sem finna má á vef verkefnisins,
theweirdgirlsproject.com. Sjón er
sögu ríkari.
Spurð að því hversu margir þætt-
ir hennar séu orðnir segist Kitty
telja að þeir séu orðnir 25, að með-
töldum mörgum sérþáttum sem hún
hefur unnið að beiðni fyrirtækja og
samtaka, m.a. Converse, Bláa lóns-
ins og UN Women. „Ég hef unnið
þætti hér á landi, í Kína, Þýskalandi
og Mexíkó og á nú í viðræðum um
gerð þáttar í Malasíu. Þá hefur mér
verið boðið að taka þátt í ýmsum
hátíðum, m.a. í Póllandi,“ segir
Kitty.
Upplýstar marglyttur á ís
Kitty er með mörg járn í eldinum
því hún vinnur einnig að ljósainn-
setningu sem verður afhjúpuð á
Vetrarhátíð í Reykjavík sem haldin
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Breska listakonan Kitty Von Some-
time mun taka upp næsta þátt sinn
í myndbandagjörningaverkefninu
Weird Girls Project hér á landi og
vill fá viðurkennda, íslenska fata-
hönnuði til samstarfs við sig. Síðasti
Weird Girls-þátturinn hér á landi
var tekinn upp í Bláa lóninu júlí
2012 en Kitty hefur farið víða um
lönd við gerð þátta sinna, m.a. til
Kína þar sem hún gerði þrjá þætti
fyrir skóframleiðandann Converse
og vann þar m.a. með íslenska fata-
hönnuðinum Munda. Hóf hún þar
með innreið sína í grein sem hún
kallar „fashion film“, tískukvik-
myndir eða -stuttmyndir, myndir
þar sem unnið er með verk tísku-
hönnuða á skapandi hátt út frá
ákveðinni tískulínu. Kitty segir slík-
ar myndir hafa slegið í gegn á und-
anförnum árum þar sem áhorf-
endur sjái um að dreifa þeim og
deila á netinu. Mundi hafi m.a. gert
nokkrar slíkar myndir. „Tískukvik-
myndir geta falið í sér stutta sögu
með persónum sem klæðast föt-
unum eða myndir á borð við þær
sem ég geri með sjónrænu konsepti
og ánægjulegar á að horfa,“ segir
Kitty.
Stílfært út frá þema
„Ég mun taka upp í ákveðnum
stíl og á ákveðnum stað sem mig
hefur lengi langað til að taka á. Ég
er komin með 25-30 konur í verk-
efnið eins og staðan er. Ég er að
leita að viðurkenndum hönnuði því
ég þarf að fá einhvern með breitt
úrval verka og vil að allt verði stíl-
fært með ákveðið þema í huga og út
frá tískulínu: hárgreiðslur, grímur,
hárkollur, andlitsfarða o.s.frv. Mig
hefur langað að vinna þessa mynd í
um eitt og hálft ár. Converse-
þættirnir voru fyrsta skrefið hjá
mér og ástæðan fyrir því að ég vildi
vinna með Converse í Kína er sú að
fyrirtækið notar bara venjulegt fólk
í tískumyndatökur sínar, fólk af
götunni og hjólabrettafólk m.a. og
verður 6.-15. febrúar nk. Mun hún
þar sýna stóra ljósskúlptúra, upp-
lýstar marglyttur unnar úr LED-
perum og glertrefjum, ofan á ís-
stöllum, eins og hún lýsir því. Mar-
glytturnar verða fimm talsins og
staðsettar í miðborginni. Þessir
skúlptúrar munu fara víðar, til
Færeyja og Bretlands og segir
Kitty að þeir verði fleiri í Bretlandi
en á Íslandi.
Ekki er þó allt upp talið því í
sumar verður frumsýnd heimild-
armynd eftir Brynju Dögg Frið-
riksdóttur, I Want to be Weird,
sem fjallar um Kitty og Weird
Girls-verkefnið. Brynja hefur fylgt
Kitty eftir í nokkur ár með hléum
og verður myndin sýnd á RÚV og
hefur auk þess verið seld sjónvarps-
stöð í Póllandi. Þá mun hún að öll-
um líkindum verða sýnd í Svíþjóð,
Frakklandi, Þýskalandi og á alþjóð-
legum kvikmyndahátíðum.
Í lóni Úr einum af þáttum Weird Girls-verkefnis Kitty Von Sometime, sér þætti sem gerður var fyrir Bláa lónið og var tekinn upp í lóninu.
Furðufljóð og íslensk fatahönnun
Kitty Von Sometime leitar íslenskra fatahönnuða fyrir næsta þátt gjörningasyrpunnar Weird Girls
Project Sýnir ljósainnsetningu á Vetrarhátíð Heimildarmynd um Kitty frumsýnd í sumar
Ljósmynd/Egill Bjarki
Skapandi Kitty býr á Íslandi og hef-
ur vakið athygli víða um heim fyrir
Weird Girls-verkefnið.
Bandarískir fornleifafræðingar á
vegum Fíladelfíuháskóla hafa fund-
ið gröf sem talin er vera gröf
egypska faraósins Sobekhotep I.,
og þykir um afar merkan fund að
ræða. Ríkti hann í þrjú ár, fyrstur
konunga 13. konunsveldisins en það
fór með völdin í ríkinu á árunum
1781-1650 fyrir Krist. Gröfin fannst
um 500 km fyrir sunnan Kaíró.
Grafhýsi faraósins var reist úr
gulum kalksteini, yfir því var reist-
ur píramídi sem nú er að mestu
horfinn en vegleg grafarþróin er úr
rauðum kvarssandsteini. Meðal
þess sem komið hefur í ljós er árit-
uð lágmynd með nafni konungsins,
prýdd mynd af honum, og leifar
íláta sem á sínum tíma hafa geymt
innyfli konungsins, auk ýmissa ann-
arra hluta.
Í frásögn af fundinum í The Art
Newspaper segir að ráðherra forn-
leifa í Egyptalandi vonist til þess að
uppgraftrarsvæðið verði opnað al-
menningi sem fyrst, þótt uppgreftri
á svæðinu verði ekki lokið.
Fleiri merkar minjar hafa nýlega
fundist í landinu. Nærri Luxor
fundu japanskir fornleifafræðingar
glæsilega skreytta gröf embættis-
manns sem hefur séð um korn-
birgðir og bjórgerð fyrir hæst-
ráðendur um 1100 fyrir Krist.
Hvílustaður Hin mikla grafþró Sobekhotep I. faraós sem kom í ljós.
Vegleg gröf faraós
kemur í leitirnar
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Hvernig heyrir þú?
1. Ef kliður er, áttu þá erfitt með að ná því sem er sagt?
2. Hváirðu oft?
3. Hækkarðu oft það mikið í sjónvarpi eða útvarpi að öðrum finnst það óþægilegt?
4. Finnst þér aðrir muldra?
5. Hefurðu són í eyrunum?
6. Biðurðu aðra stundum um að segja þér hvað var sagt á fundum sem þú varst á?
7. Áttu erfitt með að skilja það sem er sagt við þig síma?
8. Áttu erfitt með að heyra sömu hljóð og aðrir heyra, svo sem fuglasöng?
9. Hefurðu verið að staðaldri í miklum hávaða og þá sérstaklega í vinnunni?
10. Heyrirðu varla þegar dyrabjallan eða síminn hringir?
11. Finnst þér auðveldara að skilja raddir karla en kvenna?
Hafirðu svarað játandi einhverjum af þessum spurningum þá getur ástæða þess verið
heyrnarskerðing. Til að fá úr því skorið er mælt með því að þú farir í greiningu hjá heyrnarfræðingi.
Sími 534-9600
Netfang heyrn@heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
Komdu í
greiningu
hjá faglæ
rðum
heyrnarf
ræðingi
Ert þú
farin/n að
forðast að vera í
margmenni vegna
þess að þú
heyrir illa?