Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Hún sveif yfir hægt og hljótt,
eins og hún hefði sjálf orðað
það, án þess að trufla nokkurn
mann. Hélt reisn fram á síðasta
dag og hvarf á braut eftir
skamma sjúkralegu allt eins og
hún hafði sjálf óskað sér. Henn-
ar verður sárt saknað enda var
hún fasti punkturinn í lífi okk-
ar.
Hún var hraust og dugleg til
allra verka og stundaði sund
fram á síðustu ár. Lét sig ekki
muna um að fara fótgangandi í
sundlaugarnar eða til að heim-
sækja okkur í Kópavoginn svo
lengi sem kraftar hennar
leyfðu. Eftir hana liggur mikið
handverk af ýmsu tagi en hún
saknaði þess mest hin síðari ár
að geta ekki sinnt þeirri iðju.
Það var alla tíð gestkvæmt
hjá henni og flestir sem kynnt-
ust henni héldu tryggð við
hana. Eldhúsið var hennar fé-
lagsheimili og margir eiga góð-
ar minningar frá því að hafa
setið við eldhúsborðið hjá
henni, notið samverunnar, þegið
veitingar og tíu dropa af kaffi.
Hún hlustaði af athygli, gaf góð
ráð, sýndi vinum og vanda-
mönnum umhyggju og fylgdist
jafnframt með lífshlaupi þeirra.
Ekki er hægt að hugsa sér
betri ömmu. Vakin og sofin yfir
velferð okkar barnabarnanna,
glettin og góð og sá það já-
kvæða í fari fólks. Kenndi okk-
ur gömlu íslensku dægurlögin
sem við söngluðum samhliða
máltökunni. Ólík tungumál
komu ekki í veg fyrir góð sam-
skipti. Fræg eru kynni hennar
af hollenskum hjónum og símtöl
hennar við þau þar sem hver
talaði með sínu nefi. Hún sýndi
vinum okkar áhuga, spurðist
fyrir um þá og tók vel á móti
Ágústa
Guðjónsdóttir
✝ Ágústa Guð-jónsdóttir
fæddist á Eiríks-
bakka í Bisk-
upstungum 1. nóv-
ember 1921. Hún
lést á Landspít-
alanum 17. desem-
ber 2013 og fór út-
förin fram frá
Fossvogskirkju 7.
janúar 2014.
þeim í kaffi og
pönnukökur. Það
var einstaklega
gott andrúmsloft
við eldhúsborðið
hennar og allir fóru
glaðir frá fundi við
hana. Líf hennar
snerist meira um
umhyggju fyrir
öðrum en eigin
hag. Hún var hress
í anda allt fram á
síðasta dag, pírði augun og sá
spaugilegu hliðar tilverunnar.
Á síðustu árum upplifði hún
bernskuslóðirnar á nýja hátt
þegar hún dvaldi með okkur á
Eiríksbakka um helgar og á
sumrin. Í sumar sem leið var
hún hrókur alls fagnaðar á
harmonikkudansleik sem við
héldum þar fyrir vini okkar og
sveitunga. Gleðiglampi skein úr
augum hennar og ekki ólíklegt
að löngu liðnir dansleikir ung-
lingsáranna hafi rifjast upp.
Alla tíð naut hún þess að segja
okkur frá lífinu eins og það var
í Tungunum og við urðum
margs vísari um lífsbaráttu
fólks í sveitinni á þeim tíma
þegar hún var að vaxa úr grasi.
Að leiðarlokum viljum við
þakka móður, tengdamóður og
ömmu fyrir allar góðu stund-
irnar sem við áttum með henni.
Við þökkum jafnframt öllum
þeim sem sýndu henni ástúð og
vináttu og endurguldu henni þá
tryggð sem var hennar aðals-
merki í lífinu. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Kristján, Guðrún,
Skarphéðinn, Einar
og Margrét Anna.
Það er bjart yfir minningunni
úr Sólheimum þegar ég hugsa
til tengdamóður minnar,
Ágústu Guðjónsdóttur. Þar
bjuggu þau Skarphéðinn og
Ágústa þegar við Lóa fundum
hvort annað. Heimilið var bjart-
ur heimur eins og heiti göt-
unnar ber með sér enda réð þar
ríkjum vinátta, góðvild og mikil
glaðværð. Heimilisbragurinn
var með þeim hætti að það
hafði áhrif á alla sem þangað
komu. Við fórum ríkari frá
hverri heimsókn og það er ein-
mitt það sem einkennir minn-
ingar mínar um mæta tengda-
móður. Frá henni fór ég ætíð
með gott veganesti út í dagsins
önn. Og núna, þegar hún er fall-
in frá eftir liðlega fjörutíu ára
samfylgd, langar mig að orða
það þannig að þessi einstaka
kona hefur sannarlega nestað
mig til allra ferða sem ég á
ófarnar í framtíðinni.
Það er stórt skarð fyrir skildi
enda skipaði hún stóran sess í
hjarta mér. Svarið mitt við því
er að heiðra minningu hennar
sem var alltaf ljúf, alltaf hlýleg,
alltaf þess albúin að hlusta og
spjalla. Hún hafði einhvern sér-
stakan skilning á reynslu ann-
arra og var einstaklega fær um
að setja sig í spor annarra.
Þannig opnaði hún spjallið, en
það var í fullu samræmi við
áhuga hennar á líðan og skoðun
annarra. Hún virti skoðanir en
var hreint ekki alltaf sammála.
Það var þó á þann einstaka hátt
að hún var jákvæð og opin. Og
það var ekki bara þannig að
hún sæi ekki neikvæðni heldur
hafði hún einstaka gáfu til að
breyta neikvæðu í jákvætt.
Einhvern veginn held ég að
við getum lengi lært af lífs-
viðhorfi Ágústu hvernig hægt
er að mæta hverju sem er. Það
sýndi hún vel í veikindum
Skarphéðins og þegar Guðjón
sonur þeirra féll frá á besta
aldri. Heimilið var henni allt og
yfir það breiddi hún yndisleik
og ástúð. Fyrir það erum við
þakklát og þakka ég góðum
Guði fyrir vinskapinn og
tryggðina en líka fyrir ómet-
anlegt atlæti í garð barna okkar
og barnabarna þessara einstöku
hjóna. Baklandið hefur sannar-
lega verið gott á Eiríksbakka
og átthagar hennar ríkir að
hafa alið slíka konu. Þeim fjár-
sjóði sem henni var falinn skil-
aði hún ríkulega til næstu kyn-
slóða. Á þessum tíma eftir jól
og áramót kemur eitt sálmavers
öðru fremur upp í huga, en það
hefst á orðunum „Kynslóðir
koma, kynslóðir fara.“ Minning-
in verði gleði okkar. Það er
kveðja mín og hjartans þökk
fyrir sólargeislana í kringum
Ágústu Guðjónsdóttur.
Magnús Kristinsson.
Það er með miklum söknuði
sem ég kveð ömmu Ágústu.
Amma var líklega allra ömmu-
legasta amma sem hægt er að
hugsa sér. Hún bakaði pönnu-
kökur, prjónaði peysur, eldaði
grjónagraut og gerði þetta allt
saman skellihlæjandi. Hlýjan
frá henni gat hitað upp heilu
húsin og það var ekki hægt
annað en að komast í gott skap
þegar hún hló.
Ég var svo heppinn að fá að
búa hjá ömmu í tæplega tvö ár.
Ég hafði fengið inni í Verzl-
unarskólanum og foreldrum
mínum fannst ekki koma til
greina að ég færi að flytja frá
Eyjum og búa einn í Reykjavík.
Amma tók mér opnum örmum
og er ég afar þakklátur fyrir
tímann sem ég bjó hjá henni.
Amma var lítið að skipta sér af
náminu hjá mér og treysti mér
fyllilega til þess að sjá um það
sjálfur. Hún hafði öllu meiri
áhyggjur af því hvort ég nærð-
ist nóg og passaði vel upp á að
alltaf væru kökur á borðum
með kaffinu og góður matur á
kvöldin. Ef eitthvað var eftir á
fatinu horfði hún á mig og
sagði: „Magnús, við skulum nú
ekki fara að leifa.“ Það kom því
ekkert annað til greina en að
klára matinn og var ég því í
góðum holdum eftir fyrsta vet-
urinn hjá ömmu. Húmor skorti
hana ekki og við gátum hlegið
og grínast svo tímunum skipti.
Sama hvað ég reyndi náði ég
aldrei að fá hana til að tala um
pólitík. Jákvæðni og virðing fyr-
ir fólki voru alltaf í fyrirrúmi. Á
síðustu árum þegar heilsunni
var farið að hraka kvartaði hún
aldrei og sagðist alltaf hafa það
„bara svipað“. Svo setti hún
kaffikönnuna í gang, bauð mér
upp á malt og dró fram að
minnsta kosti tvær tegundir af
kökum. Það er nú líkast til.
Amma hafði lifað tímana
tvenna og þess vegna gat mað-
ur stundum fengið upp úr henni
ótrúlegar sögur. Við Skarphéð-
inn spurðum hana á ferming-
ardegi Margrétar Önnu hvernig
fermingardagurinn hennar
sjálfrar hefði eiginlega verið.
Hófst þá löng frásögn af ferða-
laginu í kirkjuna þar sem riðið
var á hestum yfir ár og vötn.
Fyrir okkur hljómaði þetta auð-
vitað ótrúlega og ég get rétt
ímyndað mér hvernig það
hljómaði í hennar eyrum þegar
við sögðum henni frá einhverju
sem var að gerast á facebook
eða instagram.
Minningin um Ágústu Guð-
jónsdóttur mun lifa. Ég er
þakklátur fyrir að hafa átt hana
að og tek mér lífsgleði og já-
kvæðni hennar til fyrirmyndar.
Takk fyrir allt, amma mín.
Magnús Berg.
Elsku amma mín, mikið
fannst mér sárt að fá símtalið
um að þú hefðir kvatt okkur.
En nú veit ég að þér líður vel.
Þú varst alltaf svo góð og glöð,
já glöð, nú veit ég líka að hlát-
urinn lengir lífið, amma! Níutíu
og tveggja ára – þvílík hetja,
gerðir nánast allt sjálf en marg-
ir hlutir voru orðnir þér erfiðir.
Þegar við fluttum til Reykjavík-
ur árið 2000 fórum við með
krakkana í sunnudagaskólann á
hverjum sunnudagsmorgni og
eftir það komum við til þín. Þú
varst búin að elda handa okkur
grjónagraut og eftir það kölluðu
krakkarnir þig „Ömmu grjónó“.
Það þurfti svo lítið til að gleðja
þig, smáinnlit stytti daginn
mikið fyrir þig og við vorum
dugleg að renna við hjá þér í
einn kaffi og hjónabandssælu,
stundum malt og stundum bara
vatn, sem þér fannst nú frekar
leiðinlegt vildir gera svo vel við
alla.
Elsku amma, ég hugsa til þín
á hverjum degi og hverja mín-
útu og fannst mjög erfitt að
fara til Reykjavíkur og koma
ekki við í Ofanleitinu. Ég veit
að afi Skarphéðinn og Guðjón
frændi hafa tekið vel á móti
þér.
Elska þig endalaust. Hvíl í
friði, elsku amma mín.
Þín
Elfa Ágústa.
Hvort sem var í Sólheimum
eða í Ofanleiti heyrðist stundum
raulað úr eldhúsinu „hæ, hæ,
hæ“. Þetta var notaleg vísa og
margoft hef ég vísað í hana þó
maður hafi sem unglingur
kannski flissað yfir söngnum.
Það er óraunverulegt að vita
ekki af ömmu í sínu sæti í eld-
húsinu enda var maður ekki
viðbúinn því að hún kveddi svo
fljótt sem raun bar vitni.
Fyrir nokkru þegar ég heim-
sótti hana með dóttur mína, þá
innan við ársgamla, sagði hún
mér frá því hvað hún hefði verið
heppin á sínum tíma að hafa
eignast barnavagn. Hún hefði
getað farið með barnið í rútu
eða strætó og svo gengið dágóð-
an spöl að mér skildist til að
heimsækja afa sem var á
sjúkrahúsi á Vífilsstöðum. Í
raun er ekki svo langur tími
síðan þetta var en manni finnst
aðstæður hafa nokkuð breyst
síðan þá.
Það var atriði hjá krökkunum
mínum þegar að komið var til
ömmu að komast í nuddið í la-
zyboy-stólnum. Þegar þau voru
minni voru það sessurnar á eld-
hússtólunum sem voru notaðar
sem leikfang. Amma naut þess
mjög að fá langömmubörnin
heim til sín og fylgjast með
uppátækjum þeirra.
Blessuð sé minning ömmu
Ágústu.
Selma Hafliðadóttir.
Um hádegisbilið 17. desem-
ber sl. hringdi Sigfinna Lóa og
tjáði okkur að móðir hennar,
hún Ágústa, hefði látist þá um
nóttina. Manni bregður alltaf
við slíkar fréttir þrátt fyrir að
aldurinn sem slíkur bankaði á
dyrnar. Ágústa blessunin lenti í
því að detta og lærbrotna og fór
hún í aðgerð í kjölfarið, sem lík-
aminn ekki þoldi. Kallið var
komið.
Við hjónin kynntumst Ágústu
í gegnum Lóu dóttur hennar
þegar gaus í Eyjum. Þau kynni
urðu hreint frábær. Jafnan var
kíkt í kaffi er við vorum á ferð-
inni og eftir að við eignuðumst
íbúð í næsta húsi við hana í Sól-
heimunum varð kaffisopinn
daglegur er dvalið var í bænum.
Ágústa var ein af þessum
ljúfu og góðu konum. Hún var
alltaf hress og vildi allt fyrir
alla gera. Eldri sonur okkar
naut góðs af góðvild hennar,
þegar hann hélt í skóla til
Reykjavíkur. Þá var hún
Ágústa svo sannarlega betri en
engin og urðu þau góðir vinir
og ræddu málin oft og lengi yfir
tebolla.
Ágústa, við þökkum þér vin-
samlegheitin og vinskapinn í
gegnum tíðina. Alla ferða- og
komukaffibollana, eins og við
kölluðum þá okkar í millum og
spjallið er þeim fylgdi. Hafðu
þökk fyrir allt og allt. Þér hefur
örugglega verið vel tekið hand-
an móðunnar miklu.
Kæru systkin og fjölskyldur,
við sendum ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur og
megi algóður Guð styrkja ykkur
í sorginni.
Sverrir og Kolbrún.
Ágústa, kær vinkona mín, er
nú látin í hárri elli. Ég kynntist
henni fyrir allmörgum árum.
Tildrög þess voru að tengdason-
ur hennar, Magnús, og dóttir,
Lóa, sem búa í Vestmannaeyj-
um höfðu miklar áhyggjur af
henni. Hún bjó ein í góðri íbúð
við Ofanleiti, sá alveg um sig
sjálf en leiddist einveran. Hún
var mjög mannblendin, elskaði
að hafa fólk í kringum sig. Sem
dæmi um það leigði hún t.d.
tveimur hollenskum stúlkum
herbergi þegar hún var með
stóra íbúð í Sólheimum. Þessar
tvær hafa alltaf haft samband
við hana, heimsótt hana og fjöl-
skyldu hennar síðan. Þær meira
að segja skírðu syni sína annan
Ágúst og hinn Magnús henni til
heiðurs.
Fjöldi unglinga fékk að búa
hjá henni meðan á skólagöngu
þeirra stóð í Reykjavík. Ég fór
að venja komur mínar til henn-
ar, mætti í gegnum árin á mið-
vikudögum, lengi vel fórum við í
góða bíltúra t.d. til Hvera-
gerðis, Selfoss og suður með
sjó. Við heimsóttum oft vinkon-
ur hennar og mágkonu, svil-
konu.
Hún veitti mér góða sýn á líf-
ið í sveitinni á Eiríksstöðum.
Móðurmissi og hvernig fólk
komst af á árum áður. Hvernig
fólk skemmti sér og hvað það
var gaman að vera til.
Hún fór tvisvar til þrisvar á
ári í hvíldarinnlögn á Hrafnistu,
hún elskaði að vera þar, hitta
fólk og vera í öryggi.
Flestir vilja vera heima hjá
sér eins lengi og hægt er. Þegar
fólki finnst tími til kominn að
fara á dvalarheimili á að sjálf-
sögðu að vera pláss til staðar.
Af því að hún átti íbúð og var
ekki heilaskert kom hún ekki til
greina. Það var þrifið hjá henni
tvisvar í mánuði. Hjúkrunar-
konur komu kvölds og morgna
að sinna henni sl. ár sem hún
mat mikils. Það er dapurlegt að
fólki sé meinað að njóta ellinnar
eins og það vill. Hún sem var
svo félagslynd hefði gjarnan
viljað komast á dvalarheimili.
Ágústa á yndislega fjölskyldu
sem allt vildi fyrir hana gera,
sem hún var afskaplega þakklát
fyrir. Lóa t.d. var í viku hjá
henni um daginn sem hún var
himinlifandi yfir.
Öll börnin komu eða létu
heyra í sér daglega, þar var
Guðrún tengdadóttir hennar
ekki undanskilin. Það er dásam-
legt að eiga svona góða að enda
kunni hún að meta það.
Ég vil þakka henni allar
ánægjustundirnar sem við átt-
um saman. Það er mannbæt-
andi að þekkja fólk eins og
Ágústu.
Að leiðarlokum bið ég henni
blessunar og öllu hennar fólki.
Guð gefi öllum birtu og yl,
gleði, hreki úr brjóstum hryggð.
Að leiðarlokum ég þakka vil
langa vináttu, hlýju og tryggð.
(sa)
Sigurbjörg Axelsdóttir.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir)
Það fór margt í gegnum hug-
ann þegar mamma sagði mér á
sunnudagsmorgni að Dúddi
frændi hefði kvatt fyrr um nótt-
ina. Tárin streymdu ósjálfrátt.
Ég mun alltaf vera þakklát fyrir
þá heppni að hafa farið og heim-
sótt hann daginn áður og fengið
að smella einum kossi á kinn
hans og kveðja hann í hinsta
sinn. Dúddi frændi er sá maður
sem manni þótti svo hrikalega
vænt um – hann var eitthvern-
veginn ekki bara Dúddi frændi,
hann var svo miklu miklu meira.
Dúddi var fyrirmyndar maður,
Þorvarður
Þorvarðarson
✝ Þorvarður Þor-varðarson
fæddist 24. júlí
1927 í Hafnarfirði.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir
sunudaginn 29. des-
ember 2013 og fór
útförin fram frá
Grensáskirkju 7.
janúar 2014.
skemmtilegur, góð-
hjartaður og alveg
einstaklega dugleg-
ur. Það sem kemur
upp í hugann núna
er að hann sagði
alltaf „halló halló“
en ekki bara
„halló“, ég pældi
mikið í þessu sem
barn, afhverju að
segja halló tvisvar
en ekki einu sinni,
þetta fannst mér einkenna
Dúdda ásamt því að hafa verið
svo einstaklega góðhjartaður –
hann vildi öllum vel. Ég mun
minnast Dúdda alla mína tíð.
Minning um góðan mann mun
lifa. Hvíldu í friði, elsku frændi.
Þín frænka.
Þóra Björg Abigael.
Mikið var ég fegin að hafa
heimsótt þig, elsku Dúddi minn,
hinn 28. desember. Að þú mynd-
ir kveðja nokkrum tímum seinna
kom mér ekki á óvart. Eitthvað
fannst mér við andardrátt þinn
og húðlit og svo mjög af þér
dregið. Þegar ég sá þig var verið
að leiða þig fram í göngugrind-
inni til að gera þig fínan. Þú
hefðir nú miklu frekar viljað fá
að lifa Erlu, þú barst hana alltaf
á höndum þér, en þessu fáum
við víst ekki ráðið.
Hugurinn reikar aftur í tím-
ann þar sem ég skottast með
mömmu í heimsókn til ykkar í
Brekkugerðið og í bíóið. Þegar
talað var um Dúdda þá var það
Dúddi og Erla í sama orðinu
enda voru þið svo samrýmd og
ástfangin hjón. Erla svo mikill
töffari, akandi um á Mustang,
þú með áhyggjur af hvað hún
keyrði greitt, ljúf og góð kona.
Stundum varð maður að snúa til
baka og hringja í símann þegar
maður stóð fyrir utan, því Erla
var með kántríið í botni. Fallega
húsið ykkar var ævintýraheimur
fyrir unga að heimsækja, þar
var sundlaug og garður á þak-
inu. Þið svo þægileg heim að
sækja. Allar samverustundirnar
með stórfjölskyldunni sem voru
aldeilis skemmtilegar og jóla-
boðin alveg frábær á árum áður.
Þið voruð sex systkinin og öll
með börn á svipuðu reki, svo það
var mikið fjör. Þú réðst mig, 12
ára stelpuskott, í sætavísustarf í
bíóið og var ég hjá þér í vinnu í
nokkur ár með skóla og einnig
var Þórður frændi þar við störf.
Þið bræður voru miklir öðlingar
og miklir vinir og þú saknaðir
hans alltaf sárt eftir fráfall hans.
Það var líka mikið fjör í sveitinni
þinni á Fellsströnd í „den“ þar
sem þið nutuð ykkar svo sann-
arlega, þú, Erla og fjölskyldan
ykkar. Það var svo sannarlega
alltaf mikill samgangur hjá okk-
ur, Dúddi minn, og eftir að
mamma heitin dó þá hringdi ég
ekki bara í þig, heldur þú líka í
mig og það þótti mér svo vænt
um. Það er svo sannarlega mikið
vinarþel í því. Á öllum gleði- og
sorgarstundum voru þið Erla
með okkur og við með ykkur.
Elsku Dúddi minn, áfram fylgist
ég með Erlu og heimsæki hana
á morgun. Þá er afmælisdag-
urinn hennar og verð ég með
pönnsur í farteskinu þar sem
það er hennar uppáhald. Nú
ertu kominn til uppáhalds-
frænku og -frænda, mömmu og
pabba og hafa þau örugglega
tekið fagnandi á móti þér ásamt
fleirum. Þú berð þeim kveðju
mína.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum.)
Við Garðar og fjölskyldan
okkar öll, minnumst góðs
frænda sem var okkur svo kær.
Samúðarkveðjur sendum við
Hjalta og Ernu, Erni og Karitas
og fjölskyldum þeirra.
Hafdís.