Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Einstaka sinnum
á lífsleiðinni erum við svo hepp-
in að kynnast fólki sem hefur
virkilega góð áhrif á okkur og
við getum lært af, bara ef við
nennum að staldra við, hlusta
og taka eftir því hvað það hefur
að segja.
Fólk sem leiðbeinir og hefur
þolinmæði til að hlusta á okkur,
segir sína skoðun, leyfir okkur
að velja og hafna, og virðir okk-
ar skoðanir hvort sem þær
ganga í berhögg við það sem
það segir eða ekki. Fólk sem
lítur hvorki á sig sem fullkomið
né alviturt, sem maður getur
treyst fullkomlega fyrir öllum
sínum áhyggjum, hvort sem
þær eru stórar eða litlar. Fólk
sem er sátt við það sem það á
og hefur, öfundast ekki og get-
ur glaðst með þér yfir þínum
litlu sigrum og hughreyst þeg-
ar á þarf að halda. Fólk sem er
boðið og búið til að aðstoða.
Sannir vinir sem við tökum sem
sjálfsögðum hlut þangað til þeir
hverfa á braut og við getum
ekki kvatt þá með þeirri virð-
ingu sem þeir eiga skilið.
En ég get sagt við börn og
barnabörn vinar míns, munið
allt sem pabbi ykkar og afi
sagði, allt var það til að þið
yrðuð betri manneskjur, hvort
sem ykkur líkaði betur eða
verr. Ég veit að hann gerði
ekki minni kröfur á ykkur en
sjálfan sig.
Með þessu orðum kveð ég
einn af merkilegri mönnum
sem ég hef kynnst um ævina.
Vertu sæll og farðu í friði,
Ævar minn.
Guðjón Jónsson.
Kveðja frá Landssambandi
veiðifélaga
Ingimundur Ævar Þorsteins-
son, bóndi í Enni, vinur okkar
og félagi, hefur nú verið leystur
frá þrautum eftir erfið veikindi.
Skarð er höggvið í raðir veiði-
réttareigenda. Ævar tók virkan
þátt í störfum á vettvangi veiði-
mála. Hann átti lengi sæti í
stjórn Veiðifélags Blöndu og
Svartár og var formaður veiði-
félagsins um skeið. Ævar sótti
jafnan aðalfundi Landssam-
bands veiðifélaga og kvað mikið
að honum á þeim vettvangi.
Hann var átti auðvelt með að
koma fyrir sig orði og talaði
umbúðalaust þótt gamansemin
væri oft ekki langt undan. Á
mannamótum var Ævar hrókur
alls fagnaðar og hnyttin tilsvör
hans munu lifa. Það sópaði að
Ævari og sjónarsviptir er að
þessum félaga okkar. Fundir
landssambandsins verða nú fá-
tæklegri þegar Ævars nýtur
ekki lengur við. Ævar var
áhugasamur um veiðimál og
hafði sterkar skoðanir í þeim
efnum sem öðrum. Ógleyman-
legt er þegar hann leiddi hóp
fundarmanna eitt árið um
bakka Blöndu og sagði frá
leyndardómum árinnar. Hann
unni ánni og var ætíð manna
stoltastur þegar Blanda skipaði
sér í efstu sæti hvað varðar
fjölda veiddra laxa á stöng.
Ævar var traustur vinur,
óhræddur að segja til vamms,
eða hrósa eftir því sem honum
þótti. Landssamband veiði-
félaga kveður nú traustan fé-
Ingimundur Ævar
Þorsteinsson
✝ IngimundurÆvar
Þorsteinsson fædd-
ist 1. mars 1937 í
Enni. Hann lést á
Heilbrigðisstofn-
uninni á Blönduósi
23. desember 2013.
Ævar var jarðsung-
inn 4. janúar 2014
frá Blönduóskirkju.
laga. Á þeirri
stundu er þakklæti
samferðamönnum
hans efst í huga.
Landssamband
veiðifélaga sendir
fjölskyldu Ævars
innilegar samúðar-
kveðjur.
F.h. LV,
Óðinn
Sigþórsson.
Kveðja frá
Veiðimálastofnun
Ævar Þorsteinsson bóndi í
Enni er látinn. Ævar sat í
stjórn Veiðifélags Blöndu og
Svartár og var um tíma for-
maður félagsins. Ég kynntist
Ævari fyrst sumarið 1985 þeg-
ar ég kom norður vegna rann-
sókna á fiskstofnum Blöndu
vegna virkjunar Blöndu. Virkj-
uninni fylgdu breytingar sem
bændur sem veiðirétt eiga
höfðu eðlilega talsverðar
áhyggjur af. Í landi Ennis er
góð laxveiði og þar er laxastigi.
Þar var komið fyrir laxakistu
þar sem lax og sjóbleikja sem
gengu upp ána voru mæld og
talin. Rannsóknir urðu viða-
miklar og stóðu um árabil. Svo
fór að virkjun árinnar hafði á
heildina litið jákvæð áhrif á
fiskgengd og veiði.
Fyrsta heimsókn mín til Æv-
ars er minnisstæð. Ævar þurfti
nú aðeins að taka þennan pilt
út og var alllengi setið við eld-
húsborðið í Enni og málin kruf-
in. Gengu þá augabrúnir bónda
upp og niður á víxl. Síðar
komst ég að því að ekki var
sjálfgefið að lenda réttum meg-
in hjá Ævari. Samskipti okkar
Ævars voru hins vegar frá
fyrstu stundu góð og leiddu til
góðrar og traustrar vináttu.
Gott var að eiga Ævar að og
vann hann með okkur að taln-
ingu og merkingu fiska á leið
upp Blöndu. Áttu mörg okkar á
Veiðimálastofnun góð samskipti
við Ævar í gegnum tíðina.
Stundirnar við eldhúsborðið í
Enni urðu margar og veiðimál-
in oft krufin, en ekki fór maður
heldur alveg varhluta af
hrossaræktinni, sem Ævar
stundaði af kappi og átti mörg
góð hross. Heimili þeirra Æv-
ars og Ingibjargar stóð okkur
alltaf opið. Fyrir það erum við
á Veiðimálastofnun afar þakk-
lát.
Við söknum vinar á Blöndu-
bökkum. Við sendum þér Ingi-
björg og ykkur Halldóra, Jó-
steinn, Fjóla og Ingibjörg og
fjölskyldur okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Sigurður Guðjónsson.
Vinur okkar, Ingimundur
Ævar Þorsteinsson, eða Ævar í
Enni, eins og við kölluðum
hann, hefur kvatt. Kallið kom
fyrr en okkur grunaði en eng-
inn má sköpum renna. Kynni
hófust í tengslum við laxveiði á
aðalfundi Landssambands
veiðifélaga, hvar Ævar hafði
gegnt trúnaðarstörfum um
skeið. Hann var fulltrúi fyrir
Veiðifélag Blöndu/Svartár,
Birna fyrir Veiðifélag Gljúfurár
í Borgarfirði. Í kjörbréfanefnd
aðalfundarins var Ævar for-
maður, Birna sérlegur ritari
hans. Þar með var vinátta
tryggð, sem hélt.
Þessi öðlingur, sem var
nokkuð hrjúfur að utan en
mjúkur hið innra, minnir
kannski ögn á íslenska náttúru
sem hann unni mjög, ekki síst
fagurgrænum túnum sem þau
hjón ræktuðu mörg. Breyttu
melum í iðjagræna velli. Andlit-
ið rúnum rist af lífinu, sem ekki
hafði alltaf farið um mjúkum
höndum, en sléttist úr þegar
brosað var. Skapið allnokkuð,
skoðanir miklar, það gat hvesst
og blásið, veðurhamur orðið
töluverður, hagl hrotið af
hvarmi. En svo braust sólin
fram í gegnum skýin, leiftur
kom í augun, blik af stríðn-
ispúka sem átti sér stundum
sjálfstætt líf. Ræktun vináttu,
greiðasemi, umhyggja, glens og
gaman var ekki síður hluti af
persónuleikanum. Tilsvörin
skemmtileg, hnyttni í svörum
og frásagnargáfa ríkuleg. Það
var gaman og hressilegt að um-
gangast Ævar í Enni. Hann var
ekki feiminn við að upphefja
sitt, ekki síst þegar kom að
hrossum og ræktun þeirra og
því síður feiminn við að segja
skoðanir sínar. Um það sköp-
uðust oft töluverðar umræður,
allar í góðu og glensi.
Heimsóknir hefðu að sönnu
mátt vera fleiri að Enni þar
sem Ævar bjó með sinni mætu
konu, Ingibjörgu Jósefsdóttur,
en ekkert þýðir að fjasa um
það, eins og Ævar hefði sjálfur
sagt. Að hans mati var óþarft
að eyða tíma í fjas, því síður að
velta sér upp úr smámunum.
Aldrei heyrðum við hann
kvarta, þótt á stundum hefði
e.t.v. verið ástæða til. Ævar í
Enni kom til dyranna eins og
hann var klæddur. Það var ekki
síst sá kostur sem við kunnum
að meta. Greinilegt var jafn-
framt í öllu spjalli að bóndinn í
Enni hafði lesið töluvert, verið
gefin rík athyglisgáfa og því
glöggur á menn og skepnur.
Margar athugasemdir hans um
menn eða málefni báru þess
merki.
Það verður tómlegt að koma
á aðalfund Landssambands
veiðifélaga í vor. Ekki verður
tekið lagið sunnan undir vegg,
troðið í pípu eða landsmálin
krufin, það verður gert á öðr-
um vettvangi, síðar. Við mun-
um sakna vinar í stað en þökk-
um kærlega fyrir vináttu,
samveru og samvinnu. Ástvin-
um öllum eru sendar innilegar
samúðarkveðjur.
Birna og Brynjar, Borgum.
Ævar í Enni var jarðsunginn
frá Blönduóskirkju 4. janúar
2014.
Ævar í Enni var vinur minn.
Hann var ekki allra, hann var
sérvitur og dyntóttur og er nú
genginn inn á grænar grundir
almættisins að líta eftir upp-
vaxandi folöldum á þeim slóð-
um. Það er mér tilefni til að
vera stoltur að hafa kynnst
Ævari og Ingibjörgu í Enni og
að eiga dálítinn vináttuþráð þar
heim á bæ. Það var ekki öllum
gefið. Að skiptast á skoðunum
við hann í eldhúsinu heima í
Enni voru gullstundir. Hann
sat þarna á móti mér, skarpur í
andliti, tottandi pípustert, grá-
sprengt hárið kastaðist til, á
bak við gleraugu glömpuðu
stríðnisleg, hlý augu undir
þykkum brúnum og hrekkja-
legt, góðlegt bros lék á vörum
hans. Hann var stundum stór-
yrtur og naut þess að sjá við-
mælandann kikna, hann var
skarpgreindur og skoðanir
hans á málefnum voru skýrar
og ótvíræðar. Hann var afskap-
lega hreinskiptinn. Í spjalli
okkar kom skýrt fram hlýja
hans og umhyggja til héraðsins
og þekking á mönnum og mál-
efnum. Hann bar virðingu fyrir
jörðinni sem hann hafði afkomu
sína af og væntumþykjan
leyndi sér ekki þegar dýrin og
fólkið í hans nánasta umhverfi
komu til umræðu. Hann var
dulur um persónuleg málefni
og sagði fátt en þegar hann
tjáði sig þar um fór ekki á milli
mála hver vilji hans var.
Við áttum samskipti um efn-
istöku úr landi hans til að
byggja grjótgarð við Blönduós-
bryggju, hugmyndin var að
kjarnagrjót kæmi frá Enni og
stórgrýti framan úr sveit. Þeg-
ar ég kom að málinu árið 1988
var allt í háalofti í samskipt-
unum við Ævar og stefndi í
óefni. Hann taldi vonlaust að
ræða við þessa vitleysinga á
Blönduósi og eftir okkar fyrsta
samtal um þessi málefni leist
mér ekki á blikuna. En við náð-
um saman og allt fór vel. Hvíti
fákurinn var þá gjarnan settur
á borðið þegar árangur náðist.
Síðan höfum við verið vinir ég
og Ævar í Enni og ég skaust
stundum uppeftir án þess að
eiga erindi. Stundum kom hann
á kontórinn, að vanda fasmikill.
Ég og fjölskylda mín fluttum
frá Blönduósi 2005. Þráðurinn
slitnaði ekki en spjallstundirn-
ar urðu strjálli. Ég vissi ekki af
óhappi hans og fráfall hans er
mér harmsefni. Ég sakna góðra
stunda í Enni. Blessuð sé minn-
ing góðs drengs sem var bráð-
skarpur en í sjálfstæði sínu
ekki allra. Ingibjörg í Enni,
skyldmenni og afkomendur
eiga hug minn á kveðjustund
og bið ég þeim öllum Guðs
blessunar og styrks.
Ófeigur Gestsson.
✝
Elskulegur bróðir okkar,
EYJÓLFUR SIGURBJÖRNSSON,
Garðbraut 85,
Garði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði,
fimmtudaginn 26. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 10. janúar kl. 13.00.
Steinunn Sigurbjörnsdóttir,
Friðrik Sigurbjörnsson.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
EYJÓLFUR ÓLAFSSON
vörubifreiðastjóri,
Fiskakvísl 7,
verður kvaddur frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 9. janúar kl. 13.00.
Þeir, sem vildu minnast hans, leyfi líknarfélögum
að njóta þess.
Ágústa Högnadóttir,
Elín Ingibjörg Eyjólfsdóttir,
Júlíus Helgi Eyjólfsson, Svala Huld Hjaltadóttir,
Katrín Lilja og Guðjón Ágúst.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRÓLFUR PÁLSSON
lést á Landspítala, Fossvogi fimmtudaginn
2. janúar.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 9. janúar kl. 11.00
Innilegar þakkir til starfsfólks á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund og starfsfólks á
deild B 2 Landspítala, Fossvogi.
Eydís María Þórólfsdóttir,
Dóra Kristín Þórólfsdóttir, Sigurður Ómar Ásgrímsson,
Inga Þórólfsdóttir, Einar Baldvin Axelsson,
Kristján Máni, Eva Kristín, Svanhvít Þóra,
María Björk, Hildur Herdís og Axel Þór.
✝
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona og
barnabarn,
DAGNÝ ÖSP RUNÓLFSDÓTTIR,
Bjarkarheiði 6,
Hveragerði,
verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju
föstudaginn 10. janúar kl. 14.00.
Guðrún Hanna Guðmundsdóttir, Runólfur Þór Jónsson,
Hrefna Lind Heimisdóttir, Friðjón Þórðarson,
Una Ósk Runólfsdóttir, Haukur Benedikt Runólfsson,
Kristinn Hólm Runólfsson, Berglind Kvaran Ævarsdóttir,
Thelma Rún Runólfsdóttir, Þráinn Ómar Jónsson,
Valgerður Magnúsdóttir, Guðmundur Jónsson,
Una Runólfsdóttir, Kristján Jónsson.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
mánudaginn 23. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og langömmubarn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGA-LILL MARIANNE ÓLAFSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
laugardaginn 28. desember.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 10. janúar kl. 15.00.
Ólafur Ólafsson,
Ásta Sólveig Ólafsdóttir, Ágúst Kárason,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Bjarni Ólafur Ólafsson, Margrét Sigmundsdóttir,
Páll Ólafsson, Sigríður Dóra Gísladóttir,
Gunnar Alexander Ólafsson, Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir,
Ólafur Ólafsson, Magnfríður S. Sigurðardóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞÓRÐUR ÁRNASON,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á Dvalarheimilinu Höfða laugardaginn
28. desember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
10. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Dvalarheimilið Höfða.
Sigríður Sigurjónsdóttir,
Guðrún Þórðardóttir, Ingileifur S. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, mamma, amma,
langamma, tengdamóðir,
EVA JÓNSDÓTTIR,
Vesturbraut 1,
Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 1. janúar.
Útför hennar fer fram í Grafarvogskirkju
föstudaginn 10. janúar klukkan 13.00.
Benóný Gunnar Þorsteinsson,
Ásdís Ámundadóttir og fjölskylda,
Hrönn Ámundadóttir og fjölskylda.