Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 35
málsmeðferðina. Það er t.d. mikið
áhyggjuefni að hér er fjöldi flótta-
manna fangelsaður fyrir að fram-
vísa fölsuðum skilríkjum. Oft er
það þó augljóslega þeirra eina leið
til að flýja ofsóknir og jafnvel
halda lífi.
Hingað hafa komið hópar flótta-
fólks í boði stjórnvalda frá 1956,
svokallaðir kvótaflóttamenn. Það
starf hefur tekist mjög vel og við
hjá Rauða krossinum bindum vonir
við að það verði fyrirmynd ann-
arrar flóttamannaaðstoðar hér á
landi.“
– En Rauði krossinn sinnir fleiri
verkefnum en flóttamannaaðstoð?
„Við sinnum margvíslegu hjálp-
arstarfi innanlands sem utan, t.d.
mjög mikilvægu langtímahjálp-
arstarfi í Afríku. En við sinnum
einnig neyðaraðstoð í kjölfar ham-
fara líkt og á Filippseyjum. Við
sendum bæði fjármagn og sendi-
fulltrúa með sérfræðiþekkingu.
Markmiðið er þó alltaf að hjálpa til
sjálfshjálpar, byggja upp þekkingu
heimamanna og gera þannig verk-
efni sjálfbær.“
Lagðist í ferðalög 18 ára
– Má ekki gera ráð fyrir að
áhugamálin tengist starfinu þínu?
„Jú. Ég fékk ferðabakteríuna 18
ára er ég fór mánaðar lestarferð
um Evrópu. Við Anna Karen höf-
um síðan ferðast talsvert til fram-
andi landa. Þannig upplifir maður
hvað við jarðarbúar erum í raun-
inni hvert öðru lík þótt við séum
alin upp í ólíkum menningar-
samfélögum.
Það er erfitt að taka einn stað
fram yfir annan en það var mjög
eftirminnilegt að koma til Na-
gorno-Karabakh og til Mongólíu,
Sýrlands og Írans. Afríkuríki sem
ég hef komið til eru líka í uppá-
haldi.
Fallegasta land sem ég hef kom-
ið til er líklega austurströnd
Grænlands, en skemmtilegasta
ferðin var gönguferð um Jak-
obsveginn á Spáni haustið 2011 þar
sem við Anna Karen gengum 150
km á tæpri viku með son okkar,
Óla Stein, sem þá var 10 mánaða.
Síðan eru ferðalög innanlands
vaxandi áhugamál. En börnin okk-
ar Önnu Karenar eru þó skemmti-
legasta áhugamálið.
Fjölskylda
Sambýliskona Atla er Anna Kar-
en Friðfinnsdóttir, f. 24.10. 1974,
tölvunarfræðingur. Foreldrar
hennar: Hjördís Torfadóttir, f.
23.1. 1943, hjúkrunarfræðingur, og
Friðfinnur Kristjánsson, f. 26.6.
1942, d. 27.12. 2008, blómaskreyt-
ingamaður.
Börn Atla og Önnu Karenar eru
Óli Steinn Thorstensen, f. 29.11.
2010, leikskólanemi með meiru, og
Eydís Anna Thorstensen, f. 8.2.
2013, heimaleikandi.
Systkini Atla eru Bryndís Guð-
jónsdóttir, f. 25.5. 1968, húsfreyja í
Mosfellsbæ; Hilda Björg Þorgeirs-
dóttir, f. 6.11. 1973, skipulagsfræð-
ingur í Hafnarfirði; Andri Már
Thorstensen, f. 3.6. 1979, tölvunar-
fræðingur og maraþonhlaupari í
Reykjavík.
Foreldrar Atla eru Óli Viðar
Thorstensen, f. 24.4. 1948, raf-
eindavirki í Reykjavík, og Anna
Laxdal Agnarsdóttir, f. 13.7. 1946,
starfsmaður á Vistheimili barna.
Úr frændgarði Atla Viðars Thorstensen
Atli Viðar
Thorstensen
Magnús Einar Jóhannesson
læknir á Hofsósi
Rannveig Tómasdóttir
húsfr. á Hofsósi
Agnar Magnússon
verslunarm. í Rvík
Anna Guðný Laxdal
húsfr. í Rvík
Anna Laxdal Agnarsdóttir
starfsmaður á Vistheimili barna
Jóhannes Laxdal Helgason
hreppstjóri í Tungu á
Svalbarðsströnd
Helga Níelsdóttir Laxdal
húsfr. í Tungu á Svalbarðsströnd
Kristjana Rósa Þorsteinsdóttir
húsfr. í Öxnadal, síðar Akureyri
Svanlaugur Jónasson
b. í Öxnadal, síðar verkstj.
á Akureyri
Hulda Klara Svanlaugsdóttir
hjúkrunarfr. í Rvík
Vilmar Herbert Thorstensen
verkam. í Rvík
Óli Viðar Thorstensen
rafvirki í Rvík
Anine Brenstine Thorstensen
foringi í Hjálpræðishernum
Ole Thorstensen
skósmíðam. í Rvík
Í útreiðartúr Atli og Anna Karen í
Gobi-eyðimörkinni í Mongólíu.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Guðrún Lárusdóttir, skáld ogalþm., fæddist á Valþjófsdalí Fljótsdal 8.1. 1880. Hún var
dóttir Lárusar Halldórssonar, pró-
fasts og alþm. á Valþjófsdal, og k.h.,
Kirstínar Katrínar Guðjohnsen hús-
freyju.
Lárus var sonur Halldórs, pró-
fasts og alþm. á Hofi í Vopnafirði
Jónssonar, bróður Guðrúnar, ömmu
Sveins Björnssonar forseta.
Kirstín Katrín var systir Þórðar
Guðjohnsen á Húsavík, afa raf-
magnsveitustjóranna Aðalsteins
Guðjohnsen og Jakobs Guðjohnsen.
Systir Kirstínar var Marta Guðjohn-
sen, móðir Eufemíu Waage leik-
konu, móður Indriða Waage leikara,
og móðir Einars Viðar söngvara,
föður Jórunnar Viðar tónskálds.
Önnur systir Kirstínar var Kristjana
Guðjohnsen, móðir Péturs borgar-
stjóra og Jóns söngstjóra Halldórs-
sona. Þriðja systir Kirstínar var
Anna L. Thoroddsen, móðir Emils
Thoroddsen tónskálds. Kirstín var
dóttir Péturs Guðjohnsens, alþm.,
dómorganista og kórstjóra í Reykja-
vík, og Guðrúnar Sigríðar Knudsen.
Eiginmaður Guðrúnar var Sigur-
björn Á. Gíslason, prestur, ritstjóri
og kennari í Reykjavík, og eignuðust
þau tíu börn en þrjú þeirra dóu í
barnæsku og tvær dætur þeirra
drukknuðu í Tungufljóti, ásamt
móður sinni, er bifreið sem fjöl-
skyldan hafði farið með í ferðalag
rann út í fljótið. Meðal barna Guð-
rúnar og Sigurbjörns voru Lárus,
minjavörður Reykjavíkurborgar;
Halldór Ástvaldur, verslunarmaður í
Reykjavík; Gísli, forstjóri hjúkr-
unarheimilisins Grundar; Friðrik
Baldur, stórkaupmaður í Reykjavík,
og Kirstín Lára, kennari í Reykja-
vík.
Guðrún naut góðrar barna- og
unglingamenntunar í heimahúsum.
Hún var bæjarfulltrúi í Reykjavík
1912-18 og varð önnur konan sem
var kjörin á þing, þingmaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn frá 1930 og til
æviloka.
Guðrún lést í hinu sviplega slysi
sem getið er um hér að framan, hinn
20.8. 1938.
Merkir Íslendingar
Guðrún
Lárusdóttir
100 ára
Jónasína Þrúður
Kristjánsdóttir
90 ára
Ásthildur Magnúsdóttir
Hreinn Ólafsson
Kristrún Guðjónsdóttir
Margrét Kröyer
85 ára
Haukur Hafliðason
Jón Sigurður Eiríksson
80 ára
Einar L. Benediktsson
75 ára
Ásta Ólafsdóttir
Lilja Þorleifsdóttir
Sigurður Sigurðsson
70 ára
Einar Óskarsson
Guðný Sigríður
Þórðardóttir
Helgi Sigurlásson
Hrafn Steindórsson
Jón Sævar
Alfonsson
Karitas Haraldsdóttir
Othar Petersen
60 ára
Bjarni Friðrik Bjarnason
Halldóra F. Sverrisdóttir
Kolbrún Karlsdóttir
50 ára
Anna Bjarnadóttir
Ása Bjarnadóttir
Edda Kristín Reynis
Erna Sigurbjörg
Traustadóttir
Gyða Álfheiður
Jósepsdóttir
Haukur Þórhallsson
Helga Helgadóttir
Jafet Egill Gunnarsson
Janya Bunjanthai
Maríus Helgason
Óðinn Þór Hallgrímsson
Piotr Wojciech Byzdra
Rúnar Berg Aðalbjörnsson
Sveinbjörn Eysteinsson
Tadeusz Jablonski
Vera Heinemane
Þórir Örn Grétarsson
40 ára
Anna Guðrún Pind
Jörgensdóttir
Ásta Lilja Björnsdóttir
Berglind Bragadóttir
Eiður Már Arason
Gunnhildur Inga
Rúnarsdóttir
Hólmfríður Björnsdóttir
Hólmgeir Sigurgeirsson
Jón Gauti Jónsson
Viðarsson
Magnús Oddsson
María Huld Pétursdóttir
Sveinn Ásgeirsson
30 ára
Bjarni Ágústsson
Freyr Steinar
Gunnlaugsson
Guðrún Stella Ágústsdóttir
Hallgrímur Ingi Ólafsson
Kristján Hagalín
Guðjónsson
Til hamingju með daginn
30 ára Guðný ólst upp á
Höfn, er búsett í Reykja-
vík, lék knattspyrnu með
KR, er íþróttafræðingur
frá HR og stundar nám í
mannauðsstjórnun við HÍ.
Maki: Aðalsteinn Sverr-
isson, f. 1982, íþrótta-
fræðingur.
Dóttir: Andrea Inga Að-
alsteinsdóttir, f. 2013.
Foreldrar: Inga Herdís
Harðardóttir, f. 1949, og
Einar Ingi Jóhannsson, f.
1947.
Guðný Guðleif
Einarsdóttir
30 ára Ellen ólst upp í
Reykjavík, er búsett í
Kópavogi, lauk BSc-prófi í
hagfræði frá Coastal Kar-
oline University og er
sérfr. hjá Glitni þrotabúi.
Maki: Davíð Þórisson, f.
1983, vörustjóri hjá Skelj-
ungi.
Dóttir: Lilja María, f.
2012.
Foreldrar: Inger María
Ágústsdóttir, f. 1958, og
Bergsveinn Ólafsson, f.
1960.
Ellen M. Berg-
sveinsdóttir
30 ára Friðrik ólst upp á
Vopnafirði, er þar búsett-
ur, lauk sveinsprófi í raf-
virkjun og er rafvirki á
Vopnafirði.
Bræður: Einar Skúli Atla-
son, f. 1978, málmsmiður,
og Adam Snær Atlason, f.
1990, málmsmiður.
Foreldrar: Erla Runólfs-
dóttir, f. 1957, verslunar-
maður á Vopnafirði, og
Atli Jónsson, f. 1955,
verksmiðjustjóri á Siglu-
firði.
Friðrik Óli
Atlason
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
HREINSI- OG SMUR-
EFNI, GÍROLÍUR,
SMUROLÍUR OG
RÚÐUVÖKVI
FYRIR ALLAR GERÐIR BIFREIÐA
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.