Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Jonsson & Roth er heiti bókar sem fjallar um
„Rafrækjuverkstæði Davíðs Þórs Jónssonar
& Odds Roth“; gjörninga sem framkvæmdir
voru af þeim félögum og aðstoðarfólki þeirra
á Seyðisfirði og í Mosfellsbæ síðustu tvö sum-
ur. Bókin er gefin út af Roth verlag, í
Reykjavík og Basel. Að sögn Godds, Guð-
mundar Odds Magnússonar prófessors, sem
er höfundur ljósmyndanna sem prýða bókina
auk þess sem hann hannaði hana og skrifaði
textann, kom bókin fyrst út í tengslum við
sýningar á meginlandi Evrópu á verkum afa
og föður Odds, þeirra Dieters og Björns
Roth.
Bókin skrásetur gjörninga félaganna sem
snúast um smíði skúlptúra, farartæki og tónlist, og eru hinar fjöl-
mörgu ljósmyndir svarthvítar og skrásetja gjörningana sem fram-
kvæmdir eru undir yfirskriftinni „create - destroy“.
Bók um verkefni Odds og Davíðs
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Fyrir mér er þetta svolítil þerapíup-
lata. Með því að búa til texta tekst
mér að ná út tilfinningum sem ég næ
ekki út með öðrum hætti,“ segir
Sveinn Guðmundsson sem nýverið
gaf út frumraun sína í tónlist, plötuna
fyrir herra spock, macgyver og mig.
„Þetta er svona rólyndis, þægileg gít-
artónlist með ís-
lenska texta,“
segir Sveinn.
Hann semur
bæði texta og
lög sjálfur. „Ég
spila svo á
kassagítar, smá bassa og melódíku
og Magnús Leifur Sveinsson, félagi
minn og forsprakkinn í hljómsveitinn
Úlpu, spilar á hljómborð, bassa, síló-
fón og ýmislegt annað.“ Félagi
Sveins, Kristján Hafsteinsson, leikur
á kontrabassa í þremur lögum.
Sveinn segist hafa verið virkur í bíl-
skúrsböndum í Hafnarfirði, heimabæ
sínum, á sínum yngri árum auk þess
sem hann hefur verið í karlakór.
Byrjaði í fjölskylduafmæli
Samstarf þeirra Magnúsar kvikn-
aði í fjölskylduafmæli. „Ég hafði allt-
af bara samið texta og geymt þá ofan
í skúffu. Svo var ég beðinn um að
spila eitt lag í fjölskylduafmæli.
Magnús var viðstaddur en hann var á
þeim tíma í hljóðupptökunámi og
vantaði lokaverkefni. Hann spurði
mig hvort ég ætti fleiri lög og bað
mig um að kíkja í stúdíóið sitt. Ég
spilaði 12 lög inn á teip, hann skilaði
inn verkefninu og fékk fína einkunn.
Í kjölfarið ákváðum við að halda
áfram, bæta hljóðfærum við og lyft-
um tónlistinni upp af þeim grunni
sem við höfðum búið til. Þetta var lít-
ill snjóbolti sem fór að rúlla og allt í
einu var ég kominn með 11 tilbúin
lög.“
Sveinn hefur sjálfur séð um að
gefa plötuna út. „Ég hef séð bæði um
útgáfu og dreifingu. Stundum hef ég
rekið mig á veggi en þá þarf ég bara
að finna leið yfir hindrunina,“ segir
Sveinn. Titill plötunnar er afar at-
hyglisverður enda er þar vísað í
frægar hetjur. Aðspurður segir
Sveinn plötuheitið hafa persónulega
þýðingu fyrir sig. „Herra Spock er
persóna úr Star Trek sem hefur allt-
af stjórn á hugsunum og lætur ekki
tilfinningar hlaupa með sig í gönur.
Hann er ein af hetjunum mínum og
lagið ½ vúlkani fjallar einmitt um að
mig langar til að líkjast honum.“
MacGyver er önnur hetja sem
Sveinn hefur alltaf verið hrifinn af.
MacGyver var þekktastur fyrir það
að geta með hugviti sínu komist
klakklaust út úr öllum ófærum sem
hann lenti í. Titill plötunnar ber einn-
ig keim af einni af uppáhalds-
hljómsveitum Sveins, Jethro Tull.
Hljómsveitin breska gaf út lagið For
Michael Collins, Jeffrey and Me.
Sveinn segist hafa heillast af þessum
lagatitli.
„Svolítil þerapíuplata“
Fyrir herra spock, macgyver og mig er fyrsta sólóplata
Sveins Guðmundssonar Vísað í hetjur í plötutitli
Úr skúffunni „Ég hafði alltaf bara samið texta og geymt þá ofan í skúffu,“ segir Sveinn. Hann lék eitt lag í fjöl-
skylduafmæli og vinur hans sem var í hljóðupptökunámi var þar staddur, fékk Svein í hljóðver og úr varð plata.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
18
16
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
LÁTTU FAGMENN
META GULLIÐ
Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt
gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku
á þessu sviði.
Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla
og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri
skartgripagæðum.
Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og fram-
leiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri.
Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega
ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum.
Það skiptir mestu máli.
Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki.
Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18.
Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Lau 25/1 kl. 19:30 aukas. Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn.
Sun 19/1 kl. 19:30 aukas. Fim 30/1 kl. 19:30 Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn.
Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Fös 31/1 kl. 19:30 69.sýn
Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn.
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús.
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 17/1 kl. 19:30
Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 16/1 kl. 19:30 Fös 24/1 kl. 19:30
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn Sun 9/2 kl. 13:00
Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn Sun 2/2 kl. 13:00 Sun 16/2 kl. 13:00
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Pollock? (Kassinn)
Fös 10/1 kl. 19:30 Lau 18/1 kl. 19:30 Lau 1/2 kl. 19:30
Sun 12/1 kl. 19:30 Fös 31/1 kl. 19:30
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýningar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi)
Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00
Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 18/1 kl. 13:30 Sun 26/1 kl. 16:00 Sun 9/2 kl. 16:00
Lau 18/1 kl. 15:00 Sun 2/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00
Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar.
Sveinsstykki (Stóra sviðið)
Fös 10/1 kl. 19:30 Aukas.
Aukasýning í janúar. Ekki missa af Arnari Jónssyni í þessum einstaka einleik.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Refurinn – síðustu sýningar
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Sun 12/1 kl. 13:00 Fös 24/1 kl. 19:00 Sun 2/2 kl. 13:00 aukas
Fös 17/1 kl. 19:00 Lau 25/1 kl. 13:00 Fim 6/2 kl. 19:00 aukas
Lau 18/1 kl. 13:00 Sun 26/1 kl. 13:00 Fös 7/2 kl. 19:00 aukas
Sun 19/1 kl. 13:00 Fim 30/1 kl. 19:00 Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Mið 22/1 kl. 19:00 aukas Lau 1/2 kl. 13:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Jeppi á Fjalli (Gamla bíó)
Fös 10/1 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Lau 18/1 kl. 20:00
Lau 11/1 kl. 20:00 Fim 16/1 kl. 20:00 Sun 19/1 kl. 20:00
Sun 12/1 kl. 20:00 Fös 17/1 kl. 20:00
Flytur í Gamla bíó í janúar vegna mikilla vinsælda. Síðustu sýningar!
Hamlet (Stóra sviðið)
Fös 10/1 kl. 20:00 fors Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Lau 25/1 kl. 20:00 aukas
Lau 11/1 kl. 20:00 frums Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k.
Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k.
Mið 15/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Sun 2/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 frums Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Þri 25/2 kl. 20:00 15.k
Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Fös 28/2 kl. 20:00 16.k
Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k
Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k
Mið 5/2 kl. 20:00 aukas Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Sun 23/2 kl. 20:00 14.k
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Refurinn (Litla sviðið)
Mið 8/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00
Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt. Síðustu sýningar