Morgunblaðið - 10.01.2014, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2014
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Barátta ASÍ og Samtaka atvinnulífs-
ins gegn hækkunum á verði og gjald-
skrám fyrirtækja og stofnana virðist
vera farin að skila sér nú þegar, enda
eigir þessir aðilar mikið undir því að
kjarasamningar verði samþykktir.
Eftir því sem leið á gærdaginn tóku
að berast tilkynningar frá fram-
leiðslufyrirtækjum og verslunum
þar sem hætt var við áður boðaðar
hækkanir eða tilkynnt um lækkun.
Þannig hætti Reykjavíkurborg við
hækkanir í bílastæðahúsum, Emm-
essís hætti við sínar hækkanir, Mat-
fugl boðaði lækkun á kjúklingum og
verslanir Bónuss og Hagkaupa boða
verðlækkun á fjölda vörutegunda á
næstu dögum.
Innlend framleiðslufyrirtæki
glíma hins vegar við mikla hækkun á
hráefniskostnaði. Í yfirlýsingu frá
Nóa-Síríusi, sem boðað hefur hækk-
un um 2,5-9% frá 22. janúar nk., seg-
ir m.a. að eitt helsta hráefnið hafi
hækkað um helming á einu ári. Því
hafi verið óhjákvæmilegt að hækka
listaverð. Þá kemur fram í máli for-
stjóra Lýsis hér neðar á síðunni að
þar hafi helsta hráefnið hækkað um
20% á síðasta ári.
Þeir aðilar sem hætt hafa við
hækkun nefna flestir að ef forsendur
kjarasamninga bregðist þá verði
gripið til hækkana á ný. Þannig
áskilur borgin sér rétt til að taka
gjaldskrárnar til endurskoðunar
seinna á árinu.
Ábendingar á vertuaverdi.is
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
sendi í gær bréf til 10 fyrirtækja þar
sem skorað var á þau að draga boð-
aðar verðhækkanir sínar til baka.
Var vísað til þess að lág verðbólga
væri ein helsta forsenda nýgerðra
kjarasamninga, svo tryggja mætti
stöðugleika og
aukinn kaupmátt.
Í bréfinu var fyr-
irtækjunum gef-
inn nokkurra
daga frestur til að
draga hækkan-
irnar til baka,
annars yrðu nöfn
þeirra birt með
áberandi hætti,
neytendum til upplýsingar. „ASÍ lít-
ur verðhækkanir á vörum og þjón-
ustu alvarlegum augum, þær eru
ekkert annað en hrein ögrun við
launafólk í landinu,“ sagði m.a. í bréfi
forseta ASÍ.
Henný Hinz, hagfræðingur á hag-
deild ASÍ, segir við Morgunblaðið að
mikil og jákvæð viðbrögð hafi fengist
strax í gær við áskorun ASÍ. Auk
þess að safna upplýsingum og taka
við ábendingum frá fólki, um fyrir-
tæki sem hafa hækkað hjá sér verð,
þá muni ASÍ einnig taka saman lista
yfir þau fyrirtæki sem ekki ætla að
hækka verð.
Bendir Henný einnig á vefsíðuna
vertuaverdi.is, þar sem hægt er að
setja inn ábendingar um verðbreyt-
ingar. „Sem betur fer hefur þetta
skapað umræðu. Það er hiti og reiði í
fólki útaf þessum verðhækkunum.
Við vonum að þessi hvatning skili sér
í því að fyrirtæki sjái að sér. Það er
stuttur tími til stefnu,“ segir Henný
og vísar þar til þess að nýgerður
kjarasamingur er nú í atkvæða-
greiðslu. Gæti það skýrst í kringum
22. janúar nk. hvort hann verður
samþykktur eða felldur.
Spurð hvort boðaðar hækkanir
geti ekki haft áhrif til hækkunar á
verðbólgu segir Henný það væntan-
lega koma í ljós í næstu mælingu
Hagstofunnar á neysluvísitölunni.
Ef ekki verði brugðist við þessum
hækkunum þá sé hætt við að verð-
bólgan fari sömu leið.
Ráðherra lofar breytingum
Þó að sum fyrirtæki virðist hafa
brugðist við áskorunum ASÍ og SA
þá stendur það eftir að ríkið hækkaði
ýmis gjöld um áramótin, m.a. komu-
gjöld á heilsugæslustöðvum um 20%.
Einnig voru gjöld á áfengi og tóbaki
hækkuð, sem og á eldsneyti, en mið-
að þar við hækkun verðlags.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra svaraði ekki skilaboðum
Morgunblaðsins í gær en hann lofaði
því í samtali við RÚV að færa til
baka „sumar“ af þeim gjaldskrár-
hækkunum sem tóku gildi um ára-
mótin, ef kjarasamningarnir yrðu
staðfestir. Jafnframt gagnrýndi
Bjarni framleiðendur og birgja fyrir
að hækka verð. Sagði hann það
„glapræði“ að grafa þannig undan
kjarasamningunum.
Varðandi komugjöld í heilsugæsl-
unni sagði Bjarni við RÚV að fjár-
magn vegna þeirrar hækkunar
myndi ekki renna í ríkissjóð heldur
skilaði það 90 milljóna króna tekjum
beint til heilsugæslustöðvanna.
Sagði Bjarni þessi gjöld ekki hafa
hækkað frá árinu 2008.
Barist gegn hækkunum
Fyrirtæki lækka verð eða hætta við hækkun Brugðist við áskorun frá ASÍ og
Samtökum atvinnulífsins Framleiðslufyrirtækin glíma við hækkun á hráefni
Morgunblaðið/Golli
Vöruverð Verslanir Bónuss og Hagkaupa hafa nú þegar boðað lækkanir á
vöruverði. Verð í Bónus lækkar í dag á 600 vörum sem fluttar eru beint inn.
Henný Hinz
Steingrímur J. Sigfússon,
fulltrúi VG í efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis, óskaði í
gær eftir eftir fundi í nefndinni
við fyrsta tækifæri. Tilefnið var
sögð staða nýgerðra kjara-
samninga í kjölfar fregna af
verðhækkunum, bæði hjá hinu
opinbera og á almennum mark-
aði. Steingrímur óskaði jafn-
framt eftir því að fjár-
málaráðherra, forsætisráðherra
og forysta SA yrði kölluð á
fundinn til þess að skýra stöð-
una og hvernig standa ætti við
gerða kjarasamninga. Sagði
Steingrímur hækkanir geta étið
upp ávinning launafólks af
samningunum.
Vill fund um
verðhækkanir
STEINGRÍMUR HJÁ VG
Helgi Vilhjálmsson, eigandi
sælgætisgerðarinnar Góu,
sendi í gær frá sér yfirlýsingu
þar sem hann hvetur mat-
vöruframleiðendur og kaup-
menn til samstöðu í „stríðinu
gegn verðbólgu“ á þessu ári.
Í samtali við Morgunblaðið
segist hann hafa verið harður
í því frá árinu 2009 að hækka ekki verð hjá sér
og við það ætli hann að standa áfram enn um
sinn. „Ég tók þátt í hruninu og gerði mér grein
fyrir að ballið var búið,“ segir Helgi, sem hvetur
kollega sína til að grípa nú þegar til aðgerða.
Stöðva þurfi verðbólguna og ríkið þurfi að gera
sitt. Einnig þurfi að stokka upp lífeyrissjóðakerf-
ið og hækka greiðslur til lífeyrisþega. „Það þarf
að fara yfir allan pakkann, lífeyrissjóðirnir eru
orðnir alltof stórir, eiga fimmföld fjárlögin.“
Helgi í Góu ekki hækkað
verð hjá sér frá 2009
Lýsi hf. hækkaði verð á
þorskalýsi um 7% um ára-
mótin og omega-lýsi um 3%.
„Við höfum því miður dregið
þessa hækkun en þorskalifur
hefur hækkað um 20% á síð-
asta ári. Við sátum lengi yfir
þessu og þetta er það
minnsta sem við komumst af
með. Það yrði óeðlilegt ef við myndum ekki
bregðast við 20% hækkun á okkar helsta hrá-
efni, þarna liggja engir aðrir efnahagslegir
þættir að baki,“ segir Katrín Pétursdóttir, for-
stjóri Lýsis. Um 95% afurða Lýsis fara á er-
lenda markaði og þar hefur fyrirtækið orðið að
hækka verð um allt að 30%. „Við skiljum
áhyggjur af verðbólgunni en viljum ekki vega
að rekstrargrundvelli Lýsis og starfsmanna
þess með því að selja vörurnar með tapi.“
Lýsi hækkar vegna 20%
hækkunar á þorskalifur
20%
hækkun á komugjaldi á
heilsugæslustöð á dagvinnutíma.
21%
hækkun á gjaldi fyrir vitjun
heilsugæslulæknis á dagvinnutíma.
3,3%
hækkun á gjaldskrá vatns- og
fráveitu Orkuveitu Reykjavíkur
4,5%
hækkun RARIK á dreifingu
rafmagns í dreifbýli.
8,3%
hækkun hjá Póstinum fyrir A-póst.
8,7%
hækkun hjá Póstinum fyrir B-póst.
5%
hækkun á nautakjöti hjá KS.
17,8%
hækkun á heimtaugagjaldi, eða
línugjaldi, hjá Símanum.
10,6%
hækkun á mínútugjaldi úr
talsíma í farsíma hjá Símanum.
34,5%
hækkun á stofngjaldi fyrir
heimasíma hjá Tali.
5,8%
hækkun á pakkagjaldi fyrir
50 Gb ljósnet hjá Tali.
5%
hækkun á próteindrykknum
Hámarki hjá Vífilfelli.
3%
hækkun á áfengisgjaldi.
2,2%
hækkun á kartoni af sígarettum
í heildsölu hjá ÁTVR.
2,5-9%
hækkun á sælgæti hjá Nóa-Síríusi.
7%
hækkun á þorskalýsi hjá Lýsi.
4,2%
hækkun hjá Brúneggi.
DÆMI UM HÆKKANIR
»
Brúnegg hf. hækkaði verð á
eggjum til verslana um 4,2%
um áramótin. Kristinn Gylfi
Jónsson framkvæmdastjóri
segist telja þá hækkun hóflega
í ljósi 30-40% hækkunar á fóð-
uraðföngum frá árinu 2012. Sú
hækkun hafi að vísu aðeins
gengið til baka að undanförnu
en hún standi þó að stærstum hluta.
„Það er ljóst að fóðurverð er áfram dýrt og við
höfum aðeins sett hluta af þeirri hækkun út í verð-
lagið. Síðan hafa umbúðir hækkað og margskonar
innlendur kostnaður. Þessi hækkun var óhjá-
kvæmileg og tengist ekki kjarasamningunum. Eng-
inn gerir að gamni sínu að hækka verð en við erum
í harðri samkeppni. Við skiljum afstöðu vinnumark-
aðarins, þetta eru viðkvæmir tímar, en það verður
að horfa til þess að gildar ástæður fyrir hækkun
eru hjá flestum fyrirtækjum,“ segir Kristinn Gylfi.
Viðkvæmir tímar en enginn
hækkar að gamni sínu
Georg Ottósson, fram-
kvæmdastjóri Flúðasveppa,
hefur lýst því yfir að fyr-
irtækið muni ekki hækka verð
á sveppum á þessu ári. Hvetur
hann önnur framleiðslufyr-
irtæki til að gera slíkt hið
sama, til að forsendur ný-
gerðra kjarsamninga haldi.
„Ég vil höfða til samviskunnar um að standa
saman að þessu með þjóðarsátt. Ég geri þetta
með þeirri von að gengið haldist þokkalegt. Mín
stefna hefur verið að fylgja vísitölu neysluverðs
en ég ætla að stoppa það núna,“ segir Georg og
vonast jafnframt til að Seðlabankinn lækki stýri-
vextina. Þeir séu alltof háir hér á landi.
„Síðan geri ég þá kröfu á ríkið að standa við
loforð um að draga hækkanir til baka, líkt og
Reykjavíkurborg gerði og fleiri sveitarfélög,“
segir Georg Ottósson.
Flúðasveppir hækka ekki og
hvetja til þjóðarsáttar
Síminn hækkaði verð um
áramótin með 2,3% áhrifum
á meðalreikning heimilis.
Einstök gjöld hækkuðu þó
um allt að nærri 18%, eins
og heimtaugagjald. Gunn-
hildur Arna Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans,
segir heimtaugagjaldið hafa
verið verðlagt lágt hjá Símanum síðustu ár og
kostnaður hækkað. Þrátt fyrir hækkunina sé
heimtaugagjaldið 620 krónum lægra en hjá
Gagnaveitu Reykjavíkur. Hún segir ein-
ingaverð óbreytt á þjónustuþáttum sem skipti
heimilin mestu máli, eins og farsímaáskrift og
sjónvarpi Símans. Þá hafi meðalverð á mínútu
í farsímaáskrift lækkað um 5,7% á tólf mán-
aða tímabili, frá nóvember 2012 til nóvember
2013.
Heimtaugagjald Símans
hækkaði um nærri 18%
Árni Ingvarsson, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Íslensk-ameríska, sem er stór inn-
flytjandi á mat- og neysluvöru frá Evrópu og
Bandaríkjunum, segir engar verðbreytingar
hafa orðið hjá þeim um áramótin á vöru til versl-
ana. „Við höfum alltaf verið gegnsæ varðandi
verðlagningu tengda genginu og skilað öllum
slíkum breytingum til okkar viðskiptavina. Síðan
í mars 2008 höfum við tekið stöðu á helstu við-
skiptagjaldmiðlum einu sinni í viku, alltaf sama
dag.. Ef gengi hefur breyst plús eða mínus 2%
eða meira, hvort sem er vegna styrkingar eða
veikingar krónu, þá höfum við skilað því strax út
í verðlagið á öllum innfluttum vörum. Varðandi
innlenda framleiðsluvöru þá hefur viðmið okkar
verið að ef gengi breytist meira en plús mínus
5% þá kallar það á verðbreytingar. Gengisbreyt-
ingar eru því aldrei meira en viku að skila sér.
Við teljum það heiðarlegast gagnvart neyt-
endum,“ segir Árni.
Engar verðbreytingar hjá Ís-
lensk-ameríska um áramót